SKÝRSLAN: Vítaspyrnudrama á Blönduósvelli
Hvað réði úrslitum?
Hvar á maður að byrja?! Manni fannst heimamenn betri í fyrri hálfleik þrátt fyrir að fá á sig mark, en svo í seinni hálfleik fannst maður sjá annað Kára-lið inná. Þeir voru algjörlega frábærir og líka í framlengingunni. Vítaspyrnukeppni er bara 50/50 og Káramenn hreinlega bara óheppnir.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Bjarni Aadnegard
Dáðasti sonur Húnabyggðar, það er ekkert annað. Maðurinn spilaði 123 mínútur og var allan tímann eins og naut inná. Tala nú ekki um jöfnunarmarkið til að senda leikinn í vítaspyrnukeppni.
2. Stefán Logi Sigurjónsson
Mark og stoðsending. hjá Stefáni í dag. Hefði verið í fyrsta ef þetta mark hjá honum hefði ekki verið svona mikið klafs inn í teig sem endar einhvern veginn í markinu. Frábær stoðsending í fyrsta markinu og spilaði frábærlega allan leikinn.
Atvikið
Klárlega jöfnunarmarkið. Maður hélt að þetta væri búið en svo einhvern veginn gerist þetta. Manu með flottan bolta inn, manni fannst eftir á að hyggja að Kasper hefði getað gert betur þarna en frábær skalli hvort sem er hjá Sigga.
Hvað þýða úrslitin?
Kormákur/Hvöt eru hér með komnir í 8-liða úrslit, en Kári eru hér með dottnir úr leik.
Vondur dagur
Heilt yfir fannst mér enginn einn vera slæmur í dag. Allir lögðu sitt af mörkum og stóðu sig mjög vel. Vörnin hjá heimamönnum var að vísu mjög há í fyrra markinu fannst manni. Manni fannst Kasper hefði getað gert betur í jöfnunarmarkinu en ég get ekki sett hann sem heila málið í ,,Vondan dag''. Hann er bara 19 ára og á langan feril eftir og vonandi mun hann bara standa sig með sóma!
Dómarinn - 8
Róbert var með flotta línu. Ekkert sem manni fannst skrýtið nema kannski jöfnunarmark Kára þegar hann segir fyrst nei en línuvörður segir já. Annað en það var hann heilt yfir frábær



