SKÝRSLAN: HK unnu Ægi í kaflaskiptum leik
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikur leiksins var rosalegur, sjö mörk og stanslaus skemmtun og hálfleiks tölur voru 4-3 fyrir HK. Í seinni hálfleik gerðist mun minna en það er ekki hægt að segja að hann hafi verið leiðinlegur. Í seinni hálfleik voru HK með góða stjórn á leiknum og þrátt fyrir að hafa ekki bætt við marki gerðu þeir vel að halda stöðunni í þeirra hag.
Bestu leikmenn
1. Karl Ágúst Karlsson
Karl Ágúst skoraði fyrsta mark HK í leiknum, það mark var gullfallegt, hann sólaði þrjá og kláraði lista vel. Karl lagði einnig upp þriðja mark HK eftir góðan sprett.
2. Dominik Radic og Jordan Adeyemo
Dominik og Jordan spiluðu frammi í sínum liðum og skoruðu báðir tvö mörk.
Atvikið
Atvikið er þessar fjórar mínútur í fyrri hálfleik þar sem skoruð voru þrjú mörk. Ótrúlegur kafli.
Hvað þýða úrslitin?
Með sigri HK lyfta þeir sér upp í 4. sæti deildarinnar með 22 stig. Staða Ægis er óbreytt á botni deildarinnar.
Vondur dagur
Alfredo Ivan Sanabria og Stefan Dabetic spiluðu vinstra megin í vörn Ægis í dag og áttu sérstaklega erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik. Fyrstu þrjú mörk HK komu upp vinstri hlið Ægis og þeir litu ekki vel út í þeim mörkum.
Dómarinn - 7
Dómarateymið var flott í dag, engir dómar sem voru vitlausir, Ægir vildu hendi í seinni hálfleik en eftir að ég leit aftur á atvikið sýndist mér Aðalbjörn negla það.


