Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
Leiknisvöllur
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 1
Grótta
Grótta
0 - 174' Mattías Kjeld (víti)Eiríkur Örn Beck 89'
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Grótta með sigurinn hér í kvöld. Þetta var jafn lengur út í eitt en dómara ákvarðanir hvort sem þær voru réttar eða ranga skáru um sigurinn.
93. mín
Gísli með spyrnuna alltof nálægt markmanni og Guðmundur grípur boltann.
93. mín
Leiknismenn fá horn, ein mínúta eftir og Óli Íshólm fer inn í teig.
91. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
Leiknir R.
89. mín
Leiknismenn einum færri!

Eiríkur Örn Beck

Eiríkur seinn í tæklinguna og er frekar hátt með boltann og takkana á undan sér. Mér sýnist þetta allavega fara þannig fram. Þórður mjög vel staðsettur og ég treysti því að hann hafi sé þetta vel.
Leiknir R.
88. mín
Gult spjald

Nemanja Pjevic

Full mikið að kvarta á bekknum.
86. mín
Gróttumenn með horn sem þeir lyfta inn í teig. Einar Tómas nær skalla í fínu færi en setur hann yfir.
84. mín
Leiknismenn vilja víti
Barningur inn á teig eftir fyrirgjöf, og heimamenn vilja víti. Rangstaða hins vegar dæmd.
84. mín
Björgvin Brimi með skotið fyrir utan teig viðstöðulaust. Dúndurfast, en rosalega hátt yfir markið.
82. mín
ÓLI NÁLÆGT ÞVÍ AÐ GEFA MARK!
Boltinn kemur inn á teig Leiknismanna og Ólafur á bara að taka þennan bolta. Hann slær hins vegar bara eitthvað til hans og boltinn er laus fyrir framan sóknarmenn Gróttu. En þá kemur Daði Bærings og nær virkilega mikilvægri hreinsun.
Grótta
80. mín
InnEinar Tómas Sveinbjarnarson
ÚtTristan Freyr Ingólfsson
Grótta
80. mín
InnPatrik Orri Pétursson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Leiknir R.
78. mín
InnBirnir Breki Burknason
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
Leiknir R.
74. mín
Gult spjald

Daði Bærings Halldórsson

Fékk gult fyrir að mótmæla vítadómnum.
Grótta
74. mín
Virkilega góð vítaspyrna!

Mattías Kjeld

Mattias tekur spyrnuna fasta niður í hægra hornið. Ólafur giskar á rétt horn en nær ekki til boltans.
73. mín
VÍTI FYRIR GRÓTTU!
Gestirnir með fyrirgjöfina inn í teig og Andri ætlar upp í skallann og þá kemur Leiknis varnarmaðurinn að aftan og keyrir í bakið á honum í skalla einvíginu. Þetta er soft, en Leiknismaðurinn vissulega frekar groddaralegur.
70. mín
Mjög flott uppbygging á skyndisókn hjá Leikni. Axel fær svo boltann fyrir utan teig, tekur eina flotta hraðabreytingu til að búa sér til pláss og tekur skotið, en það var laust á nær og Guðmundur með þetta.
Grótta
67. mín
InnHrannar Ingi Magnússon
ÚtNökkvi Már Nökkvason
66. mín
Flott tilþrif hjá Björgvin Brima fyrir utan teig. Tekur svo skotið en það fer framhjá.
62. mín
Shkelzen Veseli tekur skotið úr spyrnunni, en þetta var ekki góð tilraun. Meðfram jörðinni á nær og Guðmundur ekki í neinu veseni.
61. mín
Leiknismenn fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig við hægri hlið teigsins.
60. mín
Fínt skot!
Gróttumenn sækja hratt og Andri Freyr fær boltann rétt fyrir utan teig. Hann tekur skotið en þessi fer rétt yfir markið.
59. mín
Leiknismenn í færi!
Heimamenn vinna boltann á vallarhelmingi Gróttu og snúa vörn í sókn. Axel Freyr geysist upp kantinn og leggur boltann á Eirík sem er að koma í hlaupið undir hann. Eiríkur tekur svo fast skot þegar hann kemur inn á teiginn en ekki hnitmiðað, hátt yfir.
Grótta
57. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtKristófer Dan Þórðarson
Kristófer haltrar af velli
55. mín
Leiknismenn með horn og Gísli tekur bara fastan bolta stutt inn á teiginn. Rúrik er í fínni stöðu og reynir skotið en í varnarmann.
52. mín
SLÁIN!!
Frábær bolti inn fyrir hjá Rúrik á Anton sem er í hlaupinu inn á teig. Anton nær sendingunni fyrir teig á Dag Inga sem tekur skotið í slánna, boltinn dettur fyrir Leiknismann sem á skot í varnarmann, svo dettur boltinn aftur fyrir Dag sem tekur skotið yfir. Besta færi leiksins hingað til.
51. mín
Gísli Alexander reynir skotið af löngu færi, en yfir markið.
48. mín
Rúrik lyftir boltanum inn í teig en gestirnir hreinsa.
47. mín
Eins og í fyrri vinna Leiknismenn fyrsta horn hálfleiksins.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Markalaust í hálfleik, og það kemur ekki á óvart miðað við gang leiksins. Leiknismenn hafa pressað vel og verið meira með boltann en eru í stökustu vandræðum á síðasta þriðjung að skapa alvöru færi. Gestirnir aðeins reynt að sækja hratt en að sama skapi ekki náð að gera mikið með sínar stöður.
45. mín
Eiríkur Örn reynir skotið af rosalega löngu færi. Skotið hátt yfir!
43. mín
Lúmskt skot!
Gestirnir keyra hratt upp hægra megin og Mattias Kjeld kemur með fyrirgjöfina, boltinn fer af varnarmanni og berst tul Nökkva, hann tekur skotið fyrir utan teig sem leit ekki mjög sannfærandi út. Boltinn hrekkur hins vegar af varnarmanni og rúllar rétt framhjá. Óli í markinu hefði ekki náð þessum.
39. mín
Góður bolti inn í teig hjá gestunum og Andri nær skalla úr góðu færi en hann stangar þennan yfir.
36. mín
Dauðafæri!!
Þorsteinn Emil gerir mjög vel á vinstri kantinum fyrir heimamenn, fer framhjá einum og kemur svo með boltann inn í teig. Anton Fannar er þar mættur beint fyrir framan markið og fær alveg frían skalla, en hann setur hann yfir!
34. mín
Mattias Kjeld með mjög skemmtilega sendingu inn í teig, aðeins fyrir aftan Andra sem reynir bakfallspyrnuna en nær ekki nógu góðri snertingu á boltann, og boltinn endar framhjá.
28. mín
Þórður dómari með skilaboð!
Kallar til sín Grím Inga sem er víst búinn að vera fara í taugarnar á honum, og segir hátt og skýrt: Hættu að öskra á mig. Hættu!
25. mín
Gestirnir fá færi!
Kristófer Dan með fastan bolta fyrir frá hægri. Boltinn beint á Andra sem er í góðu færi inn í teig en varnarmenn heimamanna vel staðsettir og Andri með skotið í þá.
20. mín
Aukaspyrna hjá Gróttu
Gróttumenn með aukaspyrnu á fínum stað. Tristan Freyr tekur spyrnuna, og hún er alls ekki galin. Föst á leiðinni á fjær, en rétt framhjá.
17. mín
Gangur leiksins
Leiknismenn að pressa mjög stíft og eru að gera það vel. Leikurinn spilast mest á vallarhelmingi Gróttumanna en heimamenn eru ekki að ná að búa sér til neitt mjög hættulegt. Gróttumenn reyna við skyndisóknirnar en sama þar, hafa ekki náð að skapa mikið.
12. mín
Það er skógarhlaupið
Áhugavert úthlaup hjá Guðmundi Rafn markverði Gróttu. Hann kemur lengst út úr teig og er rétt á undan að ná skallanum frá marki, munaði litlu að þetta yrðir slæmt!
7. mín
Leiknismenn í færi!
Shkelzen með virkilega flotta vippu inn á teig sem dettur beint fyrir Dag Inga sem er kominn í flott færi. Hann tekur skotið,, fast en frekar beint á Guðmund í markinu.
3. mín
Gísli Alexander lyftir boltanum inn í teig og heimamenn ná skotið en beint í varnarmann og Gróttumenn ná svo taki á boltanum.
2. mín
Leiknismenn vinna fyrsta horn leiksins.
1. mín
Þórður flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Leikmenn og dómarar ganga til vallar. Þetta er alveg að bresta á!
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari Leiknis gerir tvær breytingar á sínu liði sem gerði ótrúlegt 3-3 jafntefi við Völsung í síðustu umferð. Þorsteinn Emil Jónsson og Eiríkur Örn Beck koma inn í liðið. Bogdan Bogdanovic sest á bekkinn, en Marko Veselinovic er ekki með í dag þar sem hann meiddist í síðasta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu gerir þrjár breytingar á sínu liði frá 2-1 sigri þeirra gegn HK í síðustu umferð. Dagur Bjarkason, Kristófer Dan Þórðarson og Nökkvi Már Nökkvason koma inn í liðið. Hrannar Ingi Magnússon, Axel Sigurðarson og Hrannar Ingi Magnússon þurfa að sætta sig við spítuna til að byrja með allavega.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Fyrir leik
Dómarinn
Þórður Þorsteinn Þórðarsson verður með flautuna í kvöld en honum til aðstoðar verða Kristofer Bergmann og Nour Natan Ninir. Eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Inig Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Spáin
Ásgeir Orri Magnússon, sem hefur leikið frábærlega í marki Keflavíkur í sumar, spáir í leikina. Leiknir R. 0 - 0 Grótta (19:15 í kvöld) Þetta verður alveg hundleiðinlegur leikur. Bæði lið verða í miklu brasi að finna sig í gegnum vörnina en Grótta brennir af vítaspyrnu.
Fyrir leik
Barátta spútnik liðanna
Leiknismenn voru ekki taldir með neitt sérlega sterkt lið fyrir tímabil og því var þeim spáð 9. sæti í deild. Eins og er, eru þeir að spila töluvert betur en það og eru í 5. sæti sem er jafnframt síðasta umspils sætið. Þetta hafa þeir gert meðal annars vegna frábærri frammistöðu Ólafs Íshólm sem var valinn í lið fyrri hlutans hér á fótbolti.net.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Gróttumönnum var einnig spáð ekkert sérlega góðu gengi eða 10. sæti en þeir eru sem stendur í því áttunda. Svo sem ekki langt því frá en lykilmunurinn er að þeir eru 8 stigum frá fallsæti. Bakvörðurinn Tristan Freyr Ingólfsson er sá leikmaður sem hefur helst fengið að skína hjá Gróttumönnum en hann var einnig valinn í úrvalslið fyrri hlutans.
Mynd: Grótta
Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Leiknis gegn Gróttu í 12. umferð Lengjudeildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Leiknisvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.