Fotbolti.net
@fotboltinetMagnús Atlason
Magnús Atlason
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
12°, skýjað og logn. Frábærar aðstæður.
ÍR
ÍR
1 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Jón Arnar Sigurðsson 21'0 - 149' Eiríkur Þorsteinsson BlöndalJóhann Birnir Guðmundsson 50'Emil Nói Sigurhjartarson 78'1 - 1
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Flautað til leiksloka hér í Breiðholti. ÍR-ingar mega vera sáttir með stigið, Þróttarar bitlausir í dag. Viðtöl og skýrsla á leiðinni. Ég þakka fyrir mig
90. mín
90+2
Adam reynir skotið fyrir utan teig en skotið vel framhjá.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
87. mín
ÍR kallar eftir öðru víti
Frábær sprettur hjá Hákoni en Eiríkur nær honum á endanum inn í teig. Öxl í öxl og Hákon fellur við. ÍR-ingar gjörsamlega trylltir.
Þróttur R.
84. mín
Stöðug mótmæli

Adam Árni Róbertsson

Veit ekki afhverju Þróttarar mótmæltu þessu, kom beint eftir færið fór forgörðum.
84. mín
Áfram sækja Þróttarar
Baneitruð sending fyrir markið og skot Daníels Karls beint á Vilhelm.
Þróttur R.
82. mín
InnDaníel Karl Þrastarson
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
Þróttur R.
81. mín
Spjald eftir spjald

Tryggvi Snær Geirsson

ÍR
78. mín
ALLT JAFNT

Emil Nói Sigurhjartarson

Setur hann niður í vinstra hornið, Þórhallur í boltanum en nær ekki nægilega sterkri hendi í boltann. Alvöru lokamínutur framundan!
Þróttur R.
77. mín
Mótmæli

Hlynur Þórhallsson

77. mín
VÍTI
ÍR-ingar fá víti. Get ekki sagt á hverjum var brotið á en víti réttilega dæmt. Þróttarar malda í móinn en lítið hægt að segja við þessu. Upplagt marktækifæri.
76. mín
Korter eftir af þessum leik. Fáum við fleiri mörk í þetta?
ÍR
74. mín
Gult spjald

Kristján Atli Marteinsson

Togar Þróttara niður þegar þeir eru að hefja sókn.
ÍR
73. mín
InnHákon Dagur Matthíasson
ÚtOrri Bjarkason
72. mín
Þróttarar hafa farið mjög illa með góðar stöður manni fleiri. Ná ekki að tengja saman mikilvægar sendingar við vítateiginn.
Þróttur R.
71. mín
Gult spjald

Eiríkur Þorsteinsson Blöndal

Brýtur á hættulegum fyrirgjafastað. ÍR-ingar ná ekki að nýta sér þetta.
65. mín
Aron kemur boltanum í netið en rangstaða dæmt, engin mótmæli og líklegast hárrétt.
ÍR
63. mín
InnÓliver Andri Einarsson
ÚtStefán Þór Pálsson
Tvöföld skipting
ÍR
63. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtGuðjón Máni Magnússon
59. mín
Guðjón kominn í fína stöðu inn í teignum en Þróttarar ná að pota boltanum frá.
54. mín
DAUÐAFÆRI
Aron Snær mjög nálægt því að tvöfalda forystuna. Fær alveg frían skalla inn á teignum en skallinn beint á Vilhelm. Þarna var illa farið með gott færi.
ÍR
50. mín
Ekki skánar það

Jóhann Birnir Guðmundsson

ÍR ósáttir með brot sem dæmt var við varamannaskýlið. Mælirinn fyllist hjá Gunnari sem veifar rauða spjaldinu á Jóhann. Uppsafnað.
Þróttur R.
49. mín
Gestirnir brjóta ísinn

Eiríkur Þorsteinsson Blöndal

Fyrirgjöf fer yfir allan pakkann og Eiríkur er fyrstur á boltann á fjærsvæðinu og klárar snyrtilega í fjærhornið. 1-0.
Þróttur R.
46. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Þróttarar með öryggisskiptingu í hálfleik. Vilhjálmur á gulu.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Gunnar flautar til hálfleiks eftir hörku fyrri hálfleik. Heimamenn mjög ósáttir með dómgæsluna, Jóhann átti orð við tríóið eftir hálfleiksflautið. Sjáumst aftur eftir korter eða svo.
ÍR
45. mín
45+1

Halldór Atli Kristjánsson

Halldór með óþarfa brot uppi við endalínu. Heimamenn ósáttir og gult spjald líka á bekkinn.
45. mín
Einni mínútu bætt við
44. mín
ÍR - ingar vilja víti eftir aukaspyrnu en ekkert dæmt. Hefði verið ansi soft.
40. mín
Hörkuskot
Orri kemur sér í færi og lúðrar boltanum á markið en Þórhallur ver í hornspyrnu. ÍR-ingar aðeins að sækja í sig veðrið þessa stundina.
39. mín
Brynjar Gautur með góða sendingu inn fyrir en rangstaða réttilega dæmd.
36. mín
Guðjón Máni gerir vel í teignum og nær lúmsku skoti á nærstöngina en Þórhallur ver vel í horn.
34. mín
Það hafa enn ekki orðið mörg færi í þessum leik fyrir utan tvo skalla Þróttara
28. mín
Gestirnir hafa verið í stórsókn síðastliðnar mínútur
Þróttur R.
25. mín
Hiti í þessu

Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson

Vilhjálmur virðist slá í Halldór Atla eftir í baráttu þeirra á milli og ÍR kallar eftir rauðu spjaldi. Jóhann þjálfari mest ósáttur allra og á orðaskipti við Vilhjálm.
22. mín
SLÁIN
Sendingin inn í teiginn og Hlynur skallar í slánna.
ÍR
21. mín
Alvöru brekka fyrir ÍR

Jón Arnar Sigurðsson

Boltinn laus og Örn Bragi og Jón Arnar í kappi um boltann. Örn er fyrri til og Jón tæklar Örn í leiðinni. Seinna gula þremur mínútum á eftir því fyrra, aftur brotið á Erni og lítið hægt að mótmæla þessu broti.
ÍR
18. mín
Gult spjald

Jón Arnar Sigurðsson

Stoppar góðan sprett Arnar Braga meðfram kantinum sem gerði mjög vel. Heimamenn komnir með 2 gul eftir tæpar 20 mínútur.
15. mín
Boltinn í bakið á Gunnari dómara þegar ÍR-ingar reyna skiptingu yfir kantana. Dómarakast og áfram gakk.
ÍR
11. mín
Gult spjald

Sigurður Karl Gunnarsson

Stoppar sprett Adams Árna sem var kominn að vítateigslínu. Þróttarar fá aukaspyrnu á góðum stað.
7. mín
Fyrsta færi leiksins
Eiríkur með fína fyrirgjöf inn á teiginn en skalli Vilhjálms Kaldals beint á Vilhelm í markinu.
4. mín
Adam Árni fer harkalega aftan í Kristján í skallabaráttu. ÍR fær aukaspyrnu á fínum fyrirgjafastað en ekkert kom úr henni.
1. mín
Heimamenn sparka þessu af stað!
Fyrir leik
Fer að bresta á
Liðin komin út á völlinn og áhorfendur farnir að tínast inn. ÍR-ingar í sínum hvítu heimabúningum og Þróttarar í sínum dökkbláu varabúningum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin dottin inn
Báðir þjálfarar gera 3 breytingar á liðum sínum eftir töpin í síðustu umferð. Jóhann tekur Hrafn Hallgrímsson, Oliver Andra Einarsson og Ísak Atla Atlason út úr liðinu í stað Halldórs Atla Kristjánssonar, Jón Arnars Sigurðssonar og Stefán Þórs Pálssonar eftir 1-0 tapið gegn Aftureldingu. Sigurvin tekur Viktor Steinarsson og Unnar Stein Ingvason úr liðinu auk Baldurs Hannesar Stefánssonar sem fékk rautt í 1-0 tapinu gegn Njarðvík í síðustu umferð. Í stað þeirra koma Stefán Þórður Stefánsson, Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson og Örn Bragi Hinriksson.
Fyrir leik
Ásgeir Orri spáir í spilin
Ásgeir Orri Magnússon markmaður Keflavíkur spáir 3-2 sigri heimamanna í kvöld. "ÍR-ingar hafa ekki farið vel af stað en hérna snúa þeir þessu við. Drillaðir Þróttarar mæta á grasið og verða í brasi. Minn maður Óliver Andri verður í gír og skorar 1 mark og verður með 2 stoðsendingar. Hann verður valinn maður umferðarinnar og Jóhann Birnir þjálfarinn."
Fyrir leik
Mættust í 2. umferð
Þróttur bar sigur úr býtum í fyrri leik liðanna. Þá komust Þróttarar í 3-0 í fyrri hálfleik eftir að Ágúst Unnar Kristinsson, leikmaður ÍR, fékk rautt strax á 18. mínútu. ÍR-ingar klóruðu í bakkann í seinni og leikurinn endaði 3-1.
Fyrir leik
Þróttur
Það er aðra sögu að segja frá Þrótti sem sitja í 3. sæti, tveimur stigum frá Aftureldingu á toppnum. Þeir eru þó sigurlausir í síðustu tveimur svo þeir þurfa helst sigur í kvöld til að halda sér almennilega í titilbaráttunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
ÍR
ÍR-ingar hafa verið í brasi þetta tímabilið. Þeir sitja í 9. sæti deildarinnar með 11 stig og eru þremur stigum frá botninum. Þeir hafa fengið einungis fengið 4 stig í síðustu 7 leikjum. ÍR-ingar hafa verið duglegir að skora en hafa sömuleiðis fengið á sig allt of mörg mörk þetta tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Dómaraeftirlitsmaður leiksins verður Lúðvík Þorgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
13. umferð hefst í dag
13. umferðin hefst í dag með 4 leikjum, hún heldur svo áfram á morgun með einum leik fyrir norðan og lýkur svo á mánudag með stórleik Vestra og Fylkis. Föstudagur 10. júlí Ægir - HK (19:15) ÍR - Þróttur (19:15) Leiknir - Grótta (19:15) Njarðvík - Grindavík (19:15) Laugardagur 11. júlí Völsungur - Afturelding (14:00) Mánudagur 13. júlí Vestri - Fylkir (20:15)
Fyrir leik
Lengjudeildin kallar
Verið velkomin kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik ÍR og Þróttar í 13. umferð Lengjudeildarinnar sem spilaður er á Þarfaþingsvellinum.
Mynd: Lengjudeildin
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.