Fyrir leik
Barátta spútnik liðanna
Leiknismenn voru ekki taldir með neitt sérlega sterkt lið fyrir tímabil og því var þeim spáð 9. sæti í deild. Eins og er, eru þeir að spila töluvert betur en það og eru í 5. sæti sem er jafnframt síðasta umspils sætið. Þetta hafa þeir gert meðal annars vegna frábærri frammistöðu Ólafs Íshólm sem var valinn í lið fyrri hlutans hér á fótbolti.net.
Gróttumönnum var einnig spáð ekkert sérlega góðu gengi eða 10. sæti en þeir eru sem stendur í því áttunda. Svo sem ekki langt því frá en lykilmunurinn er að þeir eru 8 stigum frá fallsæti. Bakvörðurinn Tristan Freyr Ingólfsson er sá leikmaður sem hefur helst fengið að skína hjá Gróttumönnum en hann var einnig valinn í úrvalslið fyrri hlutans.


Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Leiknis gegn Gróttu í 12. umferð Lengjudeildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Leiknisvelli.




