Fotbolti.net
@fotboltinetHelgi Inguson
Lengjudeild karla
Kórinn
HK
HK
0 - 0
ÍR
ÍR
Dómari: Hreinn Magnússon
Fyrir leik
HK
HK er í 4. sæti deildarinnar með 22 stig og í þéttum pakka í baráttunni um umspilssæti. Liðið hefur verið í erfiðleikum með að tengja saman sigra en eftir 3-4 sigur gegn Ægi á föstudaginn var, fær HK tækifæri til þess að vinna tvo leiki í röð í fyrsta skipti í tvo mánuði nú á eftir.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
ÍR
ÍR er í 9. sæti deildarinnar með 12 stig og liðið hefur einungis fengið 5 stig í síðustu 8 leikjum. Breiðhyltingar gerðu hins vegar sterkt jafntefli í síðasta leik, gegn Þrótti, þar sem þeir léku manni færri í 70 mínútur.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Dómarateymið
Hreinn Magnússon verður á flautunni í dag. Honum til aðstoðar eru Kári Mímisson og Ronnarong Wongmahadthai á flöggunum. Þórður Georg Lárusson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkominn í Kórinn
Góðan daginn kæri lesandi og vertu velkominn í textalýsingu frá leik HK og ÍR í 14. umferð Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.