Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir þessa liða!
17 sinnum hafa þessi lið mæst samkvæmt glæsilegu heimasíðu KSÍ, en Þróttur hefur sigrað 12 leiki, Fram aðeins sigrað einn og liðin skilið jöfn fjórum sinnum. Vissulega er einnig talið með Reykjavíkurmót og innanhúsmót með í þessu
Fyrsti leikur liðanna gerðist fyrir allnokkrum árum, nánar tiltekið 1972! Þá var Íslandsmót kvenna haldið í fyrsta sinn og lið kepptu í tveimur riðlum! Leikur þessara liða fór 2-2, en ekki veit ég um markaskorara leiksins!
Í almennum knattspyrnuleik er stærsti sigur Þróttar 0-8, en hann fór fram 2. febrúar 2022 í Reykjavíkurmótinu fræga. Í þeim leik skoraði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir þrennu! En ef talið er í óhefðbundnum knattspyrnuleik þá sigraði Þróttur 19-3 í futsal móti og var það stærsti sigurinn á mótinu það árið.
Eini sigur Fram í viðureignum þessa liða kom fyrir rúmum 50 árum, nánar tiltekið 15 júní 1975, en þar sigraði Fram 2-1 á gamla Framvellinum. Því miður get ég ekki fundið markaskorara eða slíkt, en Fram hlýur að vilja ná sínum öðrum sigri í dag.
Fyrir leik
Fram á tímabilinu
Fram situr í neðsta sæti með aðeins 7 stig eftir 10 leiki. Úlfarsárdælingar hafa aðeins sigrað tvo, gert eitt jafntefli og tapað sjö.
Í seinustu umferð dróg heldur betur til tíðinda, en Fram sigraði Breiðablik 3-2!
Helsti markaskorari Fram, Taylor Marie Hamlett var að sjálfsögðu á skotskónum þann daginn, en af þeim 11 mörkum sem Fram hefur skorað í deildinni í ár hefur hún skorað sjö af þeim!
Síðan er spurning um félagsskiptagluggann sem opnar eftir tvo daga. Ég hef ekkert heyrt um hvort Fram ætlar að sækja einhvern leikmann fyrir seinni helminginn af tímabilinu.

Fyrir leik
Þróttur á tímabilinu
Þróttur situr í 5. sæti með 13 stig eftir 10 leiki, en þessi leikur er spilaður í 12. umferð! Þróttur hefur sigrað fjóra, gert eitt jafntefli og tapað 5.
Stórar fréttir bárust í gær en Þórdís Elva, einn af lykilleikmönnum Þróttar, gerði samning við Breiðablik, en samningur Þórdísar við Þrótt var að renna út eftir tímabil.
Seinna um daginn bárust Þrótturum þó gleðifréttir en Katie Cousins sneri aftur í lið Þróttar nú í fjórða sinn! Fyrr á þessu ári fór hún frá Laugardalnum yfir til Portúgals, nánar tiltekið Damaiense, en Kristján Guðmundsson þjálfar það lið.
Mesti markaskorari Þróttara í deildinni þetta tímabilið hefur verið Sigríður Theód. Guðmundsdóttir en hún hefur skorað 4 mörk í 9 leikjum.

Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins er Arnar Ingi Ingvarsson, en honum til halds og trausts eru Guðmundur Kristinn Davíðsson, Nour Natan Ninir og Ágúst Hjalti Tómasson

Fyrir leik
Gott og blessað kvöldið kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá AVIS-vellinum, en hér munu Þróttur og Fram mætast í 12. umferð Bestu Deildar kvenna!







