Katie Cousins í fjórða sinn í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Þróttur R.

Mynd: Þróttur R.

Katie Cousins er aftur gengin í raðir Þróttar en hún gerir samning út næsta tímabil.
Cousins kom fyrst til Þróttar árið 2021 og hefur síðan þá spilað 80 leiki í efstu deild á Íslandi, með bæði Þrótti og Val.
Hún fór frá Þrótti í byrjun þessa árs og gekk í raðir Damaiense í Portúgal þar sem Kristján Guðmundsson þjálfar en er nú mætt aftur í Þrótt.
Cousins mun formlega ganga í raðir félagsins þegar glugginn opnar þann 17. júlí.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir Þróttara enda hefur Cousins verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar síðustu ár.
„Við erum himinlifandi með að fá Katie Cousins til okkar aftur enda er hún leikmaður sem getur skipt sköpum hvar sem hún spilar. Katie skrifar undir samning út árið 2027 og
við hlökkum til að fylgjast með henni enn og aftur í liði Þróttar,“ sagði Kristján Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar Þróttar um komu Cousins.
Cousins á alls 102 leiki og 20 mörk í öllum keppnum á Íslandi og kemur hún því til með að hjálpa Þrótturum gríðarlega í baráttu þeirra í Bestu deildinni.