Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
1 - 7
Breiðablik
Breiðablik
0 - 15' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 212' Bryndís Eiríksdóttir (sjm)0 - 322' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 426' Agla María Albertsdóttir 0 - 535' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 645' Agla María Albertsdóttir Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir 64'1 - 61 - 784' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Leik lokið!
Leik lokið á Hlíðarenda
Þægilegur sigur Breiðabliks sem stjórnuðu þessum leik staðreynd. Ég þakka fyrir mig, skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld.
90. mín
3 mínútur í uppbót
89. mín
Færi!
Aukaspyrnan var löng og rataði á Bryndísi sem setti boltann framhjá.
Breiðablik
88. mín
Peysutog

Lilja Þórdís Guðjónsdóttir

Breiðablik
85. mín
InnLilja Þórdís Guðjónsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
Breiðablik
85. mín
InnElísabet María Júlíusdóttir
ÚtLíf Joostdóttir van Bemmel
Breiðablik
84. mín
Hún ætlar ekki að hætta!

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Sunna Rún Sigurðardóttir)

Breiðablik að komast upp að endamörkum enn og aftur. Í þetta skiptið er það Sunna sem leggur boltann út á Hrafnhildi sem gerir engin mistök og klárar vel.
Valur
80. mín
InnGlódís María Gunnarsdóttir
ÚtKolbrá Una Kristinsdóttir
Þreföld breyting
Valur
80. mín
InnÁsa Kristín Tryggvadóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
Valur
80. mín
InnSigrún Ísfold Valsdóttir
ÚtKimberley Dóra Hjálmarsdóttir
79. mín
DAUÐAFÆRI!
Agla María finnur Líf inni á teignum en hún hittir ekki boltann í úrvals færi og Valur sparka frá.
76. mín
Löng sókn sem endar með skoti yfir markið
Valur að spila vel. Ísabella Sara og Margrét spila vel á milli sín og Ísabella kemur boltanum á Emmu sem skýtur í varnarmann. Boltinn berst síðan til Málfríðar sem skýtur yfir.
73. mín
Valur að fá aukaspyrnu á hættulegum stað
Lillý Rut tekur skot sem fer langt framhjá.
72. mín
Hvernig endar þessi ekki í netinu?!
Margrét gerir frábærlega. Hún kemur boltanum á Emmu sem er í dauðafæri rétt fyrir framan vítapunktinn, en skýtur í slá. Valur fengu horn í kjölfarið en ekkert varð úr því.
Valur
68. mín
InnHelga Rut Einarsdóttir
ÚtArnfríður Auður Arnarsdóttir
Breiðablik
68. mín
InnKaritas Tómasdóttir
ÚtKatelyn Duong
67. mín
Ísabella Sara að gera vel
Ísabella fer framhjá einni og nær fínu skoti sem Taylor ver. Aðeins meira út við stöng og þessi hefði sungið í netinu.
Valur
64. mín
Þær klóra í bakkann!

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir

Ragnheiður fær boltann við vítateiginn. Hún kemur sér á hægri löppina og tekur lúmskt skot sem endar í fjærhorninu.
62. mín
Fyrirgjöf
Ísabella Sara með hættulega fyrirgjöf sem Taylor blakar frá. Valur aðeins að banka þessa stundina.
59. mín
Aukaspyrna á góðum stað fyrir Val
Boltinn kemur inn á teiginn og þær ná skoti sem Taylor ver þægilega.
57. mín
Hrafnhildur Ása!
Ólöf með sendinguna í gegn á Hrafnhildi Ásu. Hún er í dýrindis færi en Tinna nær að lesa hana og ver.
55. mín
Fyrstu 10 rólegar
Rólegar fyrstu 10 í seinni hálfleik. Bæði lið að skiptast á að sækja.
Breiðablik
52. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
Edith getur ekki haldið leik áfram
49. mín
Edith liggur eftir og fær aðhlynningu
Hún er utan vallar þessa stundina
47. mín
Skot
Ísabella Sara með skot langt utan af velli sem fer yfir.
46. mín
Breiðablik sparka þessu í gang
Valur
45. mín
InnEmma Hawkins
ÚtSóley Edda Ingadóttir
Emma að spila sinn fyrsta leik
Breiðablik
45. mín
InnOlga Ingibjörg Einarsdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
45. mín
Flautað til hálfleiks á Hlíðarenda
Þetta er með lífsins ólíkindum. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær 6 mörk í fyrri hálfleik. Breiðablik með öll tök á leiknum, Valur hafa varla komist í boltann í fyrri hálfleik. Í þau fáu skipti sem Valur hefur boltann reyna þær að senda í gegn, en það er alltaf skallað frá. Breiðablik hafa í rauninni gert það sama en munurinn er sá að það hefur virkað frábærlega hjá þeim.
Breiðablik
45. mín
Flugeldasýning á Hlíðarenda!

Agla María Albertsdóttir (stoðsending: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir)

Hrafnhildur Ása kemur með háan bolta á Öglu. Hún hægir aðeins á sér áður en hún tekur frábært skot sem fer í slána og inn. Þessar tvær að spila frábærlega saman í dag.
43. mín
Líf í færi
Agla María kemur boltanum á Líf, en skotið er framhjá.
41. mín
DAUÐAFÆRI!
Líf gerir frábærlega, kemst upp að endamörkum og kemur boltanum á Ólöfu sem er ein og óvölduð en lætur verja frá sér.
40. mín
Skot
Arnfríður með skot rétt fyrir utan vítateig sem fer yfir markið.
Breiðablik
35. mín
Þrenna!

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )

Agla María fær boltann rétt fyrir framan miðju. Það er mikið svæði á milli hafsenta Vals. Hún sér hlaup Hrafnhildar Ásu og rennir boltanum í gegn á hana. Hún gerir engin mistök og klárar þægilega í fjærhornið.
31. mín
Horn fyrir Breiðablik
Boltinn kemur inn á teiginn. Þær ná skoti sem Tinna ver í annað horn. Boltinn kemur inn á teiginn og önnur hornspyrna niðurstaðan. Valur hreinsa frá í þetta skiptið.
28. mín
Skot og horn
Líf í þröngu færi, en nær fínu skoti sem Tinna ver í horn. Ekkert verður úr þessari spyrnu.
Breiðablik
26. mín
Þetta fer að verða ljótt!

Agla María Albertsdóttir

Agla María fær háan bolta í gegn. Hún er allt í einu ein á móti Tinnu og klobbar hana.
25. mín
Algjör einstefna fyrstu 25
Breiðablik hafa öll tök á þessum leik og líta út fyrir að bæta við fleiri mörkum.
25. mín
Horn fyrir Breiðablik
Þær taka þetta stutt. Síðan kom fyrirgjöf sem var hreinsuð frá.
Breiðablik
22. mín
Hún er að eiga stórleik!

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Elín Helena Karlsdóttir)

Þetta var skrýtið. Elín er í baráttunni rétt fyrir framan miðjuna. Hún sparkar boltanum burt við návígi og hann ratar á Ásu sem vippar honum yfir Tinnu í markinu.

Blikar komnar í ansi góða stöðu.
20. mín
Fyrirgjöf og horn
Agla María kemur með boltann inn á teiginn en það er hreinsað í horn. Boltinn flýgur yfir allan pakkann og ekkert verður úr þessu horni.
18. mín
Mark en rangstaða dæmd
Hrafnhildur Ása sólar eina og nær skoti sem Tinna ver út í teiginn. Ólöf fylgdi á eftir en rangstaða dæmd.
17. mín
Leikurinn hefur aðeins róast eftir markið
Rólegt þessa stundina. Bæði lið að halda vel í boltann.
Breiðablik
12. mín
Þær eru að tvöfalda!

Bryndís Eiríksdóttir (sjm)

Hrafnhildur Ása kemst enn og aftur upp að endamörkum. Hún kemur með fastan bolta á fjær sem fer í Bryndísi og í netið. Lítið sem Bryndís gat gert í þessu.
9. mín
Hætta og horn
Sóley gerir vel, kemst upp að endamörkum og kemur með góðan bolta á fjær og Valur fá horn. Ekkert verður úr þessu horni.
Breiðablik
5. mín
Fyrsta markið komið!

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Edith Kristín Kristjánsdóttir)

Edith Kristín kemur með frábæran bolta í gegn á Hrafnhildi Ásu sem er ein á auðum sjó við vítapunktinn og klárar snyrtilega í fjærhornið.
3. mín
Hættulegur bolti
Hrafnhildur Ása kemst upp að endamörkum og kemur með góða fyrirgjöf, en það er hreinsað frá.
2. mín
Breiðablik að fá fyrsta horn leiksins
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
1. mín
Heimakonur byrja með boltann
Þær sparka honum í innkast og pressa.
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl
Allt að verða klárt á Hlíðarenda og liðin ganga út á völl.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Matthías gerir tvær breytingar á liði sínu eftir tap gegn ÍBV. Helga Rut Einarsdóttir og Nadía Atladóttir fá sér sæti á bekknum. Í þeirra stað koma Sóley Edda Eiríksdóttir og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir.

Ian David gerir eina breytingu á liði sínu eftir sigur gegn Víkingi. Olga Ingibjörg Einarsdóttir er á bekknum og í hennar stað kemur Þórdís Elva Ágústsdóttir. Hún er að spila sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik.

Fyrir leik
Vallaraðstæður dagsins
Það er smá úði í dag. Völlurinn er blautur sem býður upp á hraðan og spennandi leik.
Fyrir leik
Blikar sækja öflugan miðjumann

Þórdís Elva er gengin til liðs við Breiðablik frá Þrótti og er leikfær í dag.
Fyrir leik
Félagaskiptatíðindi hjá heimakonum

Emma Hawkins er gengin til liðs við Val frá ástralska félaginu Canberra United og er leikfær í dag.


Ágústa María heldur til Vestmannaeyja og mun spila með ÍBV.
Fyrir leik
Næstfæst mörk á sig
Þrátt fyrir traustan varnarleik hefur stigasöfnun Vals ekki verið í samræmi við frammistöðuna aftast á vellinum. Liðið hefur aðeins fengið á sig 14 mörk í 11 leikjum, næstfæst allra liða í deildinni. Gæti það verið vörn Valsara sem gerir gæfumuninn í kvöld?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Markahæstar hjá Breiðablik
Líf Joostdóttir van Bemmel og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir hafa átt gott tímabil og eru markahæstar hjá Breiðablik með sex mörk hvor. Þær hafa farið fyrir öflugum sóknarleik Blika, sem hafa skorað næstflest mörk allra liða í deildinni. Geta þessar tvær gert gæfumuninn í kvöld?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Brynjar Þór Elvarsson er aðaldómari í dag. Honum til aðstoðar eru Bryngeir Valdimarsson og Óliver Thanh Tung Vú. Fjórði dómari er Ásgeir Viktorsson og eftirlitsmaður er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
Sædís Rún spáir útisigri Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Sædís Rún fékk það verkefni að spá fyrir 12. umferð Bestu deildar kvenna. Hún var að ganga til liðs við þýska liðið Köln.

Valur 1 - 3 Breiðablik (19:15 á þriðjudag)
Stórleikur umferðarinnar þar sem Breiðablik hefur betur. Agla María og Olla skora svo kemur Þórdís Elva með sitt fyrsta mark fyrir Blix. Mark Vals kemur úr föstu leikatriði þar sem Málfríður gerir sárabótamark.

Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin áttust við í 4. umferð í æsispennandi leik þar sem Breiðablik fagnaði dramatískum 3-2 sigri. Líf Joostdóttir van Bemmel kom Blikum yfir snemma leiks, en Margrét Brynja Kristinsdóttir svaraði með tveimur mörkum fyrir Val. Sunna Rún Sigurðardóttir jafnaði metin í uppbótartíma áður en Málfríður Anna Eiríksdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 95. mínútu sem tryggði Breiðablik sigurinn. Hægt er að lesa um fyrri viðureignina hér fyrir neðan.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik hefur átt öflugt tímabil og eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Þær eru í 2. sæti, tveimur stigum á eftir toppliði FH sem hafa verið mjög sterkar á tímabilinu. Þeim var spáð 1. sæti fyrir tímabilið og eiga sterkan möguleika á að ná því. Þær byrjuðu mótið á miklu skriði, en hafa tapað tveimur af síðustu fimm. Í síðustu umferð fengu þær Víking í heimsókn og unnu þar þægilega 4-1 sem var mikilvægt eftir svekkjandi 3-2 tap gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Valur
Valur unnu síðast leik 25. maí, eftir það gerðu þær 4 jafntefli og töpuðu einum. Þær sitja í 9. sæti eftir 11 umferðir en þeim var spáð 6. sæti fyrir tímabilið. Það er því óhætt að segja að tímabilið hefur ekki verið nógu gott hingað til. Í síðustu umferð héldu þær til Vestmannaeyja en töpuðu þar 2-1 gegn ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Kæru lesendur, verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Hlíðarenda þar sem Valur og Breiðablik eigast við. Þetta er 12. umferð Bestu deildar kvenna og leikið verður á slaginu 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.