Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
Vel blautt en stillt og fínt veður
FH
FH
7 - 3
Stjarnan
Stjarnan
Ída Marín Hermannsdóttir 14'1 - 0Ída Marín Hermannsdóttir 26'2 - 02 - 129' Andrea Mist PálsdóttirBirna Kristín Björnsdóttir 32'3 - 1Hafrún Birna Helgadóttir 35'4 - 14 - 269' Murielle TiernanHrönn Haraldsdóttir 72'5 - 2Nia Raisa Christopher 77'6 - 2Hrönn Haraldsdóttir 87'7 - 27 - 390' Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: FH-vélin tætti Stjörnuna í sig í tíu marka leik

Hvað réði úrslitum?

Ég er bara hreinlega enn að ná mér eftir þennan leik! En gæðin, krafturinn og trúin hjá þessu FH liði er á einhverju öðru plani þessa daganna! 20 mörk í 3 síðustu leikjum og annað 7-3 sigur á heimavelli í röð! Stjarnan átti bara engin svör við sóknarleik FH í dag og það réði úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Hafrún Birna Helgadóttir

Það er fáránlega erfitt að velja besta mann leiksins í dag svo margar sem gera tilkall! Hafrún fær samt þennan titil í dag hún var ógeðslega góð bara hvar sem var á vellinum! Setti mark og var stöðugt ógnandi. Það sem hún hefur vaxið í sumar!

2. Ída Marín Hermannsdóttir

Er bara frábær leikmaður og þvílíkur svindlkall í þessari deild! Setti tvö fyrstu mörkin og kom FH liðinu í góða stöðu. Það þarf svo sem ekkert að eyða fleiri orðum um hversu mögnuð hún er! Við vitum það öll, aðrar sem gera tilkall sem bestar í kvöld eru að öðrum ólöstuðum Andrea Rán, Ingibjörg og Hrönn sem átti frábæra innkomu í seinni hálfleik.

Atvikið

Ég set þetta á fimmta mark FH á 72. mínútu. Stjarnan var nýbúin að minnka muninn í 4-2 með marki Murielle Tiernan og í smá stund kviknaði von um að leikurinn gæti orðið spennandi. Þá gekk Hrönn Haraldsdóttir á lagið eftir samskiptaleysi í vörn Stjörnunnar, klobbaði Skibu og kom FH í 5-2.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það bara að FH er ennþá á toppnum nú með 29 stig eða 2 stiga forskot á Breiðablik í 2. sætinu. Stjarnan hins vegar er enn í 3. sætinu með 21 stig en markatalan hins vegar hríðféll eftir leikinn.

Vondur dagur

Vondur dagur hjá Stjörnunni bara í heild, þær höfðu fyrir leikinn fengið fæst mörk á sig en voru opnaðar aftur og aftur í Kaplakrika. Það er aldrei gott að fá 7 mörk í pönnuna í einum leik!

Dómarinn - 7

Man ekki eftir neinu vafaatriði hjá dómaratríóinu í þessum leik. Var ekkert að stoppa leikinn að óþörfu og það er það sem við viljum!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.