Leik lokið!
120. mín
Víti misnotað
Dagur Traustason
Dagur fer hægra megin. Arnar líka váááá, Afturelding vinnur þetta.120. mín
MAAAARK!
Axel Óskar Andrésson
Fer í vinstra hornið, Óli í hina áttina.120. mín
MAAAARK!
Hlynur Sævar Jónsson
Fer í mitt markið, öruggt.120. mín
Víti misnotað
Bjartur Bjarmi Barkarson
Fer í það vinstra neðra horn, Óli líka!!!!120. mín
Víti misnotað
Nikulás Val Gunnarsson
Fer í vinstra, Arnar Daði fer í það sama.120. mín
Víti misnotað
Óðinn Bjarkason
Beint í slána.120. mín
MAAAARK!
Kári Sigfússon
Skorar af öryggi.120. mín
MAAAARK!
Andi Hoti
Fer í hægra hornið.120. mín
Klúðrað víti
Arnór Breki Ásþórsson
Arnór Breki fer í hægra neðra hornið, Arnar Daði giskar rétt og ver. Lélegt víti og örugg varsla.120. mín
MAAAARK!
Joacim Emil Godhei Holtan
Öruggt í vinstra megin. Óli í hina áttina.120. mín
MAAAARK!
Guðmundur Tyrfingsson
Fer í vinstra hornið, Arnar í hægra.120. mín
MAAAARK!
Elmar Kári Enesson Cogic
Fyrsta vítið, fer í hægra hornið, Óli í vinstra.120. mín
Vító
Já já, það er komið að því spennann er að stigmagnast. Hver vinnur? Fylkismenn völdu Ólaf sem mann leiksins, er sammála því en nær hann að vera hetjan í dag?
120. mín
+1 í uppbótar.
117. mín
Hendi á Kára, klaufalegt.
116. mín
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtBart Kooistra
116. mín
Aron Snær er kominn úr skónum
115. mín
Dauðafæri
Hár bolti inn í teiginn á Kooistra sem skallar fram fyrir markið á Holtan sem skallar inn í teiginn á Elmar en Ólafur ver skotið samt, ótrúlegt.
113. mín
Gult spjald
Aron Snær Guðbjörnsson
113. mín
Hoti hoppar ofan á Dag, brot á Hoti.
112. mín
Dauðafæri
Kári með háan bolta inn í teig, Dagur rís manna hæst en skallar framhjá markinu, þetta átti að vera 2-1.
111. mín
Elmar Kári stekkur upp í loftið eftir að hafa kljást við Dag. Leikaraskapur að mínu mati.
109. mín
Horn fyrir Fylki sem er skallað burt.
108. mín
Guðmundur Tyrfings fær boltann á fjær, keyrir inn í teiginn, tekur skotið en það er blokkað.
106. mín
Bjartur Bjarmi missir boltann og ákveður að renna í áttina að honum, fer í Aron. Þetta átti að vera gult á Bjart.
106. mín
Seinni hálfleikur framlengingar
Jæja, 15 mín eftir + uppbótar. Gestirnir byrja.
105. mín
Hálfleikur
Spennannnnnn. Þetta fer í vító líklega.
105. mín
Þetta stefnir líklega í vító.
105. mín
+1 í uppbótar.
103. mín
Kári tekur aukaspyrnu ekki langt frá teignum, tekur skotið sem er rétt yfir markið.
102. mín
Kári með háan bolta inn í teig sem Arnar Daði lemur burt, Andi Hoti hrindir Aron Snæ í teignum en dómarinn dæmir ekki neitt, stórt. Eftir að hafa séð þetta aftur, þá setur Hoti báðar hendur á Aron, pjúra víti segi ég.
100. mín
Nálægttttttt
Boltinn inn í teig Aftureldingar, Axel situr fótinn fyrir og boltinn dettur á Kára sem er rétt fyrir utan teiginn. Kári lætur vaða og boltinn fer rétt framhjá markinu.
97. mín
Gult spjald
Nikulás Val Gunnarsson
96. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtBirkir Eyþórsson
96. mín
Nálægt
Horn fyrir Aftureldingu, skallinn rétt yfir markið.
95. mín
Dauðafæri
Hár bolti yfir vörn Fylkis, beint á Kooistra sem er 1v1 en skotið er beint á markvörðinn.
94. mín
Holtan kemur með sendingu fram fyrir markið sem Ólafur grípur.
94. mín
Kári með háa sendingu inn í teig sem Arnar Daði grípur.
93. mín
Holtan er að sleppa í gegn en varnarmenn Fylkis ná að setja pressu á hann og hann missir boltann.
91. mín
Fyrri hálfleikur framlengingar
Heimamenn byrja fyrri helming framlengingar.
90. mín
Framlenging
Það er komið að framlengingu, spennan er að stigmagnast.
90. mín
+4
Birkir Eyþórsson
90. mín
+3
Horn fyrir Aftureldingu, boltinn skoppar inn í teignum. Ólafur nær honum en Aftureldingar leikmaður tekur hann af honum. Gunnar dæmir brot.
90. mín
+1
Afturelding í skyndisókn en þeir ná ekki skotinu.
90. mín
+4 í uppbótartíma.
88. mín
Afturelding kemst inn í teig Fylkis. Elmar með boltann en vörn Fylkis nær að setja pressu á hann og blokka hann af.
87. mín
Guðfinnur reynir að senda á fjær en sendingin er léleg.
85. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
85. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
85. mín
Nálægggtttttt
Kári með sendingu inn í boxið, boltinn dettur á Tuma, hann reynir að komast framhjá leikmanni sínum og nær að skjóta en Arnar Daði ver, boltinn dettur á Dag sem reynir bakfallsspyrnu en skotið er framhjá.
84. mín
Leikurinn lyktar af framlengingu...
82. mín
Enes sleppur í gegn á hægri kantinum, kemst inn í teiginn en missir svo boltann.
81. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtSævar Atli Hugason
80. mín
Gult spjald
Orri Sveinn Segatta
79. mín
Orri Segatta með sendingu fram fyrir markið, boltinn dettur á Hoti sem rennur á meðan hann sparkar boltanum út fyrir horn.
77. mín
Guðmundur með sendingu inn í boxið, skölluð burt en boltinn dettur á Birki sem nær honum, missir hann samt svo. Fylkismenn loksins að ná að ógna eftir að Afturelding skoraði.
76. mín
Áhorfendur
1347 manns, vel gert.
76. mín
Guðmudnru kemur með sendingu inn í boxið. en hann er rangstæður.
75. mín
Elmar Kári lætur vaða úr aukaspyrnu, langt yfir markið.
75. mín
Afturelding er að fá hættulega aukaspyrnu, mér finnst skrýtið að Gunnar sé að dæma á þetta. Hann er að missa þetta.
73. mín
Gult spjald
Kári Sigfússon
73. mín
Mér skilst að suðningsmenn Aftureldingar hafa rifið eitt sætið upp.
72. mín
InnKári Sigfússon
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
71. mín
Gult spjald
Sævar Atli Hugason
70. mín
Fylkismenn eru í veseni með Kooistra sem dansar framhjá þeim.
69. mín
Óðinn kemur með sendinu inn í teiginn sem Fylkismenn blokka sendinguna. Afturelding er að taka yfir leikinn.
64. mín
MAAAARK!
Hlynur Sævar Jónsson (sjm)
Ótrúleg atburðarás þar sem Bjarki Steinsen var nýbúin að negla í slána hjá sínu eigin marki. Bjartur Bjarmi fær boltann og kemst inn í teiginn, sendingin ætlar á Kooista en fer í Hlyn, breytir um stefnu og í áttina að markinu, boltinn fer yfir Ólaf í markinu.63. mín
Bart Kooistra kemst í gegn, alveg einn. Kemur með sendingu en það er enginn samherji til þess að taka á móti boltanum.
62. mín
Færi
Stutt horn fyrir Aftureldingu, Bjart Bjarmi fær hann og tekur skotið, rétt framhjá markinu.
62. mín
Aukaspyrna fyrir Aftureldingu, tveir í veggnum og Elmar hittir í hausinn hjá einum.
61. mín
Fylkir er að fara í skyndisókn en Óðinn lætur sig falla frekar léttilega. Soft að mínu mati.
58. mín
Dauðafæri
Gunnar Bergmann með sendingu inn í teiginn, beint á Kooistra sem skallar beint á Ólaf.
57. mín
Langt innkast inn í teig Fylkis en Ólafur grípur boltann.
57. mín
Afturelding með hættulegt færi, Óðinn á kantinum ætlar að senda á Bjart Bjarma sem er seinn í boltann.
56. mín
Gult spjald
Arnór Breki Ásþórsson
55. mín
Hættuleg aukaspyrna, Tumi stendur yfir boltanum og tekur slökustu aukaspyrnu sem ég hef séð lengi.
53. mín
Horn fyrir Aftureldingu, boltinn skoppar inn í teignum en Gunnar dæmir svo brot.
52. mín
InnDagur Traustason
ÚtEyþór Aron Wöhler
Meiðsli, batakveðjur.
51. mín
Eyþór Wöhler er niðri og virðist vera meiddur.
50. mín
Holtan setur Elmar í gegn en en færið er þröngt og Ólafur ver.
47. mín
MAAAARK!
Tumi Fannar Gunnarsson (stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson)
Tumi fær boltann, sendir eina sendingu á Theodór sem sendir Tuma strax í gegn. Tumi rennur en nær að skjóta boltanum framhjá og í hliðarnetið. Svaka byrjun á seinni, en hvernig svara gestirnir?46. mín
Stöng
Elmar Kári vippar boltanum á Holtan sem kemst í gegn, neglir svo beint í stöngina og út.
46. mín
Seinni hálfleikur
Heimamenn byrja núna. Nóg af færum í fyrri, sjáum til hvernig seinni verður.
45. mín
Skemmtilegur fyrri hálfleikur er búin, tvískiptur hálfleikur. Sjáumst eftir korter.
45. mín
+1
Dómarinn er ekki búin að segja hvað er í uppbótartíma. RÚV segir 2 mín, ætli þeir viti ekki best.
45. mín
Theodór stendur yfir aukaspyrnunni, skýtur beint í vegginn. Fær boltann aftur og skýtur framhjá markinu.
44. mín
Gult spjald
Axel Óskar Andrésson
Wöhler er að sleppa í gegn inn í teig andstæðings, Axel fer í hann á fullum hraða og fær beint gult.42. mín
Sending inn í teig Aftureldingar en Gunnar Bergmann kemur boltanum burt.
42. mín
Hlynur Sævar lætur liðsfélaga sína heyra það, þar sem hann gat ekki sent boltann áfram og neyðist til þess að senda til baka.
41. mín
Holtan og Bjarki eru að kljást, Holtan stígur óvart ofan á Bjarka. Ekkert dæmt.
40. mín
Afturelding fær horn en Fylkismenn skalla boltann burt.
38. mín
Theodór með sendingu inn í teiginn, boltinn dettur á Guðmund sem lætur vaða, en skotið fer beint í Axel. Guðmundur vill hendi en dómarinn dæmir ekki neitt.
35. mín
Guðmundur Tyrfings fær boltann og tekur skotið fyrir utan teiginn, skotið er yfir markið. Eftir slaka byrjun eru Fylkismenn búnir að taka yfir leikinn.
33. mín
Dauðafæri
Hár bolti inn í teiginn á fjær, þar sem Wöhler er. Eyþór Wöhler skallar rétt framhjá, Arnar Daði stóð eins og stytta.
32. mín
Sævar Atli rífur í Theodór og tekur hann svo niður, fær tiltal frá Gunnari.
31. mín
Brot inn í vítateig Aftureldingar og þeir fá aukaspyrnu.
30. mín
Theodór með sendingu fram fyrir markið sem Axel skallar burt í hornspyrnu.
27. mín
Rétt framhjá
Theodór fer illa með gamla manninn, hann kemst framhjá Birki og sendir á Mána sem er við D bogann, Máni skýtur strax framhjá.
25. mín
Dauðafæri
Wöhler setur Theodór í gegn, 1v1 gegn Arnari Daða. Ætlar að reyna að skomast framhjá honum en hann getur það ekki og Arnar Daði nær í boltann. Þetta var besta færið hingað til í leiknum.
24. mín
Wöhler með skalla úr horni, rétt yfir markið.
24. mín
Tumi með langa aukaspyrnu sem Arnar Daði verður að verja, held að þetta var sending en ekki skot en samt hættulegt.
21. mín
Birkir með djarft skot langt frá, rétt yfir slána en Ólafur var ekki í veseni með þennan.
20. mín
Axel Óskar með háan bolta inn í teiginn, Ólafur nær að lemja boltanum burt. Vill fá brot þar sem Holtan var líka að berjast um boltann.
16. mín
Gult spjald
Ólafur Kristófer Helgason
Hár bolti upp í loftið og Holtan er að hlaupa í áttina að honum, Ólafur setur fótinn út og tekur hann niður. Gunnar var ekki lengi að hugsa.15. mín
Gott færi
Afturelding kemst í boltann, Kooistra er í erfiðleikum með því að koma boltanum áfram, sendir svo á Holtan sem skýtur beint á Ólaf Kristófer og út fyrir horn.
12. mín
Holtan skorar, en hann er rangur.
11. mín
Elmar Kári kemst í gott færi, cuttar og skýtur svo en skotið er blokkað. Dómarinn dæmir svo rangstöðu á hann.
10. mín
InnGunnar Bergmann Sigmarsson
ÚtGeorg Bjarnason
Georg fer meiddur út af velli, batakveðjur.
9. mín
Elmar Kári keyrir í áttina að teig Fylkismanna en missir svo boltann.
8. mín
Birkir már er að spila í vinstri bakvörð.
7. mín
Löng aukaspyrna inn í teig Aftureldingar, sendinginn fer beint á Orra sem skallar langt framhjá.
5. mín
Georg er niðri og virðist vera meiddur.
4. mín
Tumi er að sleppa í gegn en Axel stoppar hann.
3. mín
Tvö horn fyrir Aftureldingu sem fara ekki neitt.
2. mín
Elmar Cogic kemur með sendingu í gegnum vörnina sem Orri kemst í og setur boltann út fyrir horn.
1. mín
Afturelding byrjar þessa veislu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt
Heimir með engar breytingar en Maggi með eina.
Elmar Cogic byrjar annan leikinn sinn í röð eftir löng meiðsli.
Elmar Cogic byrjar annan leikinn sinn í röð eftir löng meiðsli.
Fyrir leik
Það má búast við gríðarlega jöfnum leik miðað við könnun sem var á forsíðu

Fyrir leik
Dómarakvartett
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna. Kristján Már Ólafs og Guðmundur Ingi Bjarnason verða með flöggin. Gunnar Freyr Róbertsson er með skiltið.


Fyrir leik
Afturelding
Afturelding komst í undanúrslit eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 á heimavelli, Megaviku Birkir Már með tvö mörk eins og hann er oft kallaður í Mosfellsbæ. Í fyrri umferðum unnu þeir Njarðvík 5-2 þar sem Elmar Cogic skoraði 2 og kom með 3 stoðsendingar. Í umferðinni fyrir þann leik fengu þeir Ými og unnu þann leik 6-1.
Afturelding er á toppnum á Lengjudeildinni með 31 stig, þeir hafa ekki tapað leik í mánuð. Í síðustu 5 leikjum hafa þeir skorað 20 mörk og fengið á sig 4 mörk. Óðinn Bjarkason er markahæstur í liðinu með 11 mörk.

Afturelding er á toppnum á Lengjudeildinni með 31 stig, þeir hafa ekki tapað leik í mánuð. Í síðustu 5 leikjum hafa þeir skorað 20 mörk og fengið á sig 4 mörk. Óðinn Bjarkason er markahæstur í liðinu með 11 mörk.

Fyrir leik
Fylkir
Fylkir komst í undanúrslit eftir að hafa sigrað Gróttu á heimavelli 4-2 eftir framlengingu. Orri Segatta, Kári Sigfússon og Aron Guðbjörnsson skoruðu mörkin en Caden McLagan skoraði eitt sjálfsmark. Fyrir þann leik sigraði Fylkir FH á heimavelli 5-0 og í umferðinni fyrir þann leik fengu þeir KFA á heimavelli og unnu 2-0.

Fylkir er í öðru sæti í Lengjudeildinni með 30 stig, einu stigi á eftir Aftureldingu. Fylkir eru búnir að sigra tíu leiki og tapað fjórum, á heimavelli hafa þeir unnið fimm og tapað tveimur. Guðmundur Tyrfingsson er markahæstur með 11 mörk.


Fylkir er í öðru sæti í Lengjudeildinni með 30 stig, einu stigi á eftir Aftureldingu. Fylkir eru búnir að sigra tíu leiki og tapað fjórum, á heimavelli hafa þeir unnið fimm og tapað tveimur. Guðmundur Tyrfingsson er markahæstur með 11 mörk.

Fyrir leik
Sæti í úrslitaleik í boði
Sá sem sigrar í dag spilar á móti Breiðabliki í úrslitunum. Breiðablik komst í úrslit eftir 3-0 heima sigur á móti Víkingum. Sá sem sigrar Mjólkurbikarinn fer líka beint í Evrópu eins og Vestri er að gera núna.


Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heilsar!
Það er komið að undanúrslitum Mjólkurbikarsins, Fylkir fær Aftureldingu í heimsókn á Tekk Vellinum. Leikurinn byrjar kl 19:15.







Afturelding í úrslit bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins - Breiðablik er mótherjinn á Laugardalsvelli þann 11. september