SKÝRSLAN: Santa kom með þrjú stig úr pokanum
Hvað réði úrslitum?
Þróttur byrjaði leikinn betur og náði forystu sanngjarnt í upphafi leiks. Eftir markið virtist þó meiri kraftur færast í Grindavík/Njarðvík sem náðu öllum völdum á leiknum og náði góðu jöfnunarmarki fyrir hálfleik. Þróttur mætti aftur ögn sterkari út í seinni hálfleikinn og komst aftur yfir en sama uppskrift og í fyrri hálfleiknum og Grindavík/Njarðvík tók stjórn á leiknum aftur. Varamaðurinn Santa Sanija Vuskane setti svo heldur betur sinn svip á leikinn með sinni innkomu og gulltryggði sigur Grindavík/Njarðvík með þrennu.
Bestu leikmenn
1. Santa Sanija Vuskane (Grindavík/Njarðvík)
Varamaðurinn var búin að skora tveimur mínútum eftir að hún kom inná og búin setja þrennu korteri seinna. Erfitt að horfa framhjá þessari stórkostlegu innkomu og þvílík leið til að stimpla sig ekki bara inn í nýtt lið heldur inn í deildina.
2. Hildur Katrín Snorradóttir (Grindavík/Njarðvík)
Skoraði fyrsta mark leiksins og átti bara fínasta leik. Var ógnandi og alltaf eitthvað um að vera þegar hún komst á boltann.
Atvikið
Þriðja mark Santa Sanija Vuskane. Nýtti sér mistök í öftustu línu Þróttara og skoraði í autt markið og stimplaði sig um leið inn með þrennu.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík/Njarðvík lyftir sér upp fyrir Þrótt í 5.sæti deildarinnar með 15 stig. Þróttur eru í 6.sæti með 13 stig í þéttum pakka.
Vondur dagur
Leikur Þróttara hrundi svolítið um leið og Grindavík/Njarðvík komst yfir í kvöld. Virkaði örlítið eins og öll trú hafi farið á verkefninu um leið og þær lenda undir sem skilaði sér í vondum mistökum í fjórða markinu. Andlegur styrkur Þróttar átti að einhverju leyti vondan dag í kvöld.
Dómarinn - 6
Fékk svolítið að heyra það í stúkunni Þróttara megin og mögulega smitast það niður í sexu úr sjöu. Voru atriði sem að hefði mátt tækla betur en heilt yfir var þetta bara ágætt hjá teyminu.




