SKÝRSLAN: Hversu lengi er hægt að vera óheppinn?
Hvað réði úrslitum?
Keflvíkingar hafa sýnt það í sumar að þeir eru drullugóðir í fótbolta, eru með öflugt lið og sterka liðsheild. Þeir eru með mikið sjálfstraust og sýna það inn á vellinum - það sást í mörkum þeirra í kvöld. Á sama tíma eru Skagamenn með lítið sjálfstraust og það gengur ekki mikið upp hjá þeim.
Bestu leikmenn
1. Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
Skoraði tvö frábær mörk og var nálægt því að skora þrennu. Þetta er leikmaður sem við munum heyra meira af á næstu árum.
2. Þorlákur Breki Baxter (Keflavík)
Skoraði stórglæsilegt mark og vann frábærlega inn á miðsvæðinu. Hefur smellpassað inn í kúltúrinn í Keflavík. Alpha Conteh var líka öflugur að venju.
Atvikið
Það er markið sem Breki Baxter skorar af löngu færi. Það slær Skagamenn út af laginu og þeir fá svo annað mark strax á sig.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík lyftir sér upp í fimmta sæti Bestu deildarinnar með 19 stig. Hver hefði búist við því að Keflavík væri þar á þessu stigi mótsins? Kannski bara þeir sjálfir. ÍA hefur tapað fimm leikjum í röð og er þremur stigum frá fallsæti.
Vondur dagur
Skagamenn eru búnir að leggja mikinn pening í lið sitt en það er að skila litlu inn á vellinum. Þjálfarateymið og fólkið í kringum liðið horfir á tölfræðina og sér jákvæð merki; óheppni að liðið sé ekki búið að sækja fleiri stig. En hversu lengi er hægt að vera óheppinn? Þetta var vondur dagur fyrir allt Skagaliðið.
Dómarinn - 8
Var með stóru ákvarðanirnar réttar og dæmdi leikinn bara fínt. Var með flotta stjórn á leiknum.




