Fotbolti.net
Helgi Inguson
Lengjudeild karla
Kórinn
HK
HK
6 - 2
Vestri
Vestri
Dominik Radic 25'1 - 0Tumi Þorvarsson 27'2 - 0Viktor Helgi Benediktsson 37'3 - 0Karl Ágúst Karlsson 44'4 - 04 - 167' Guðmundur Arnar Svavarsson Dominik Radic 72'5 - 182' Gunnar Jónas Hauksson (misnotað víti)5 - 285' Marinó Steinar HagbarðssonAlbert Ingi Jóhannsson (sjm) 93'6 - 2
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Leik lokið í hálfleik

Hvað réði úrslitum?

HK liðið gerði þetta afskaplega faglega. Það var augljóst að það væri einhver þreyta í Vestraliðinu enda leikjaálagið búið að vera mikið. Heimamenn mættu ferskir til leiks og tóku öll völd. Það var bara tímaspursmál um hvenær fyrsta markið myndi koma og eftir það hertu HK-ingar einfaldlega tökin. Hálfleikstölur 4-0 og Vestraliðið hafði aldrei trú í þeim síðari.

Bestu leikmenn

1. Dominik Radic (HK)

Hann kom sér strax inn í leikinn og átti þrjú færi áður en hann kom heimamönnum yfir. Bætti við öðru marki í þeim síðari og varð markahæsti leikmaður deildarinnar í leiðinni. Gott dagsverk hjá Króatanum sem getur ekki hægt að skora.

2. Tumi Þorvarsson (HK)

Tumi var mjög góður í kvöld. Ógnaði stanslaust á vinstri kantinum. Skoraði og lagði upp og hefði verið maður leiksins ef Dominik Radic væri ekki liðsfélagi hans.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins kom HK-ingum á beinu brautina. Radic á góðan skalla eftir fyrirgjöf Ívars Arnar. Tveir varnarmenn í honum en það kom ekki að sök.

Hvað þýða úrslitin?

Með sigrinum fer HK upp fyrir Þrótt og í 3. sætið með 28 stig. Vestri er í 6. sæti með 21 stig. Flest lið í deildinni eiga þó leik til góða.

Vondur dagur

Vestraliðið var lélegt í dag. Þeir mættu gíruðum HK-ingum og áttu í raun aldrei séns. Elmar Atli var klaufi í öðru marki leiksins og Gunnar Jónas klikkaði á víti í síðari hálfleik.

Dómarinn - 4

Línan hjá Twana var mjög skrítinn. Það var eitthvað um augljós brot sem hann neitaði að dæma á af einhverri ástæðu. Mér sýndist vítaspyrnudómurinn vera réttur og dómgæslan hafði ekki áhrif á úrslit leiksins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.