Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Mjólkurbikar karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
0 - 0
Afturelding
Afturelding
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Fyrir leik
Afturelding
Afturelding komst í undanúrslit eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 á heimavelli, Megaviku Birkir Már með tvö mörk eins og hann er oft kallaður í Mosfellsbæ. Í fyrri umferðum unnu þeir Njarðvík 5-2 þar sem Elmar Cogic skoraði 2 og kom með 3 stoðsendingar. Í umferðinni fyrir þann leik fengu þeir Ými og unnu þann leik 6-1.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding er á toppnum á Lengjudeildinni með 31 stig, þeir hafa ekki tapað leik í mánuð. Í síðustu 5 leikjum hafa þeir skorað 20 mörk og fengið á sig 4 mörk. Óðinn Bjarkason er markahæstur í liðinu með 11 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Fylkir
Fylkir komst í undanúrslit eftir að hafa sigrað Gróttu á heimavelli 4-2 eftir framlengingu. Orri Segatta, Kári Sigfússon og Aron Guðbjörnsson skoruðu mörkin en Caden McLagan skoraði eitt sjálfsmark. Fyrir þann leik sigraði Fylkir FH á heimavelli 5-0 og í umferðinni fyrir þann leik fengu þeir KFA á heimavelli og unnu 2-0.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Fylkir er í öðru sæti í Lengjudeildinni með 30 stig, einu stigi á eftir Aftureldingu. Fylkir eru búnir að sigra tíu leiki og tapað fjórum, á heimavelli hafa þeir unnið fimm og tapað tveimur. Guðmundur Tyrfingsson er markahæstur með 11 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Sæti í úrslitaleik í boði
Sá sem sigrar í dag spilar á móti Breiðabliki í úrslitunum. Breiðablik komst í úrslit eftir 3-0 heima sigur á móti Víkingum. Sá sem sigrar Mjólkurbikarinn fer líka beint í Evrópu eins og Vestri er að gera núna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heilsar!
Það er komið að undanúrslitum Mjólkurbikarsins, Fylkir fær Aftureldingu í heimsókn á Tekk Vellinum. Leikurinn byrjar kl 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.