Leik lokið!
Tíu marka leikur í krikanum
90. mín

MAAAARK!
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Erika Ýr skýtur á markið, Aldís ver þetta út og þar kemur Úlfa Dís á ferðinni og skóflar boltanum í markið
87. mín
Nia gerir ógeðslega vel, kemur sér í frábæra stöðu og pikkar svo boltanum á Hrönn þegar Skiba mætir henni og Hrönn bara getur ekki annað en skorað í autt markið

Í hvaða heimi erum við eiginlega?!?!
Hrönn Haraldsdóttir (stoðsending: Nia Raisa Christopher)
Hrönn að skora sitt 2x mark í kvöld!Nia gerir ógeðslega vel, kemur sér í frábæra stöðu og pikkar svo boltanum á Hrönn þegar Skiba mætir henni og Hrönn bara getur ekki annað en skorað í autt markið

86. mín
Jakobína gerir vel og kemur í veg fyrir að Hrönn eigi auðvelt skot á markið
85. mín
Stjörnukonur eru ekki hættar þrátt fyrir stöðuna og Erika Ýr á skalla rétt framhjá
84. mín
Andrea Rán með horn, hann er nú bara á leiðinni inn hjá henni en Skiba kýlir hann frá
83. mín
Unnur gerir vel, hleypur upp kantinn og setur hann fyrir en ekki alveg nógu nákævmt
80. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
80. mín
InnKara Sigríður Sævarsdóttir
ÚtTelma Steindórsdóttir
79. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
77. mín

MAAAARK!
Nia Raisa Christopher (stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir)
Andrea Rán tekur hornið stutt, fær hann aftur og finnur svo Niu inn á miðjum teignum sem klárar þetta frábærlega
76. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
73. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
72. mín

MAAAARK!
Hrönn Haraldsdóttir
Jakobína er að reyna skýla boltanum fyrir Skiba sem kemur bara ekki til hennar, Hrönn gengur á lagið og klobbar Skiba!
69. mín

MAAAARK!
Murielle Tiernan
Hin ný trúlofaða Murielle Tiernan klórar í bakkann fyrir Stjörnuna! Aldís fer í skógarhlaup og Murielle klárar þetta vel í autt markið
68. mín
Murielle nælir í horn fyrir Stjörnuna, Andrea Mist tekur það að vana, setur hann fyrir en FH konur koma þessu frá
67. mín
Andrea Mist með hornið, barrátta inn í teignum áður en boltinn berst svo til hennar aftur, hún mundar fótinn en boltinn hátt yfir markið
66. mín
Úlfa Dís finnur Murielle í gegn en þær eru fljótar að bakka og Deja kastar sér fyrir skotið hjá henni
64. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
64. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtHelena Maree Errington
64. mín
InnMackenzie Elyze Smith
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
62. mín
Eva Marie í baráttunni við Ídu Marín og nær skallanum frá á undan henni
60. mín
InnMurielle Tiernan
ÚtHulda Hrund Arnarsdóttir
60. mín
InnSandra Hauksdóttir
ÚtÞóra María Hjaltadóttir
58. mín
Skiba!
Ída Marín aftur í hööööööörkufæri en Skiba ver þetta frábærlega!
58. mín
ÚFFF
Snædís er nálægt því að stela boltanum af Aldísi!
53. mín
Eva Marie gerir vel, setur líkamann fyrir og skýlir boltanum útaf svo Thelma Lóa nær ekki að setja boltann fyrir
51. mín
Hornið frá Andreu er hættulegt eftir smá klafs endar boltinn framhjá markinu
50. mín
Telma þræðir sig í gegnum völlinn fyrir Stjörnuna, missir hins vegar boltann og þær eru fljótar að koma honum upp á Ídu Marín, hún kemst í frábæra stöðu en Jakobína rétt kemst fyrir skotið og það fer yfir markið
48. mín
Gult spjald
Telma Steindórsdóttir
Stöðvar skyndisókn FH full harkalega en bráðnauðsynlega hins vegar48. mín
Úlfa Dís kemst í góða stöðu inn í teignum en þær eru fljótar að komast fyrir hana og þrýsta henni út.
47. mín
Stjarnan ætlar greinilega að stíga meira upp og pressar hér hátt í upphafi
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn á ný!
Andrea Mist þrumar boltanum fram fyrir Stjörnuna
45. mín
4-1 í hálfleik!
Fjörugum fyrri hálfleik lokið!
Þvílík veisla sem við erum að fá. Vonandi verður seinni hálfleikurinn jafn fjörugur!
Þvílík veisla sem við erum að fá. Vonandi verður seinni hálfleikurinn jafn fjörugur!
45. mín
Andrea Mist tekur hornið fyrir Stjörnuna setur hann fastann á fjær þar sem Hulda Hrund rétt missir af honum! FH þeytist svo í skyndisókn en Telma með frábæra tæklingu
45. mín
a.m.k. 1 mín í uppbótartíma
45. mín
Fínasta tilraun frá Hafrúnu en hárfínt framhjá stönginni
45. mín
Andrea Rán tekur hornspyrnuna, setur hann fastann á Hafrúnu en hún setur hann beint í Þóru Maríu
44. mín
Andrea Rán tekur spyrnuna fast niðri á fjærhornið en Skiba ver frábærlega, engin til í frákastið og hornið er niðurstaðan
43. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað!
Jakobína með Ídu Marín í heljargreipum í bókstaflegri svo Stefán dómari getur ekki annað en dæmt aukaspyrnu bara upp við vítateiginn!
41. mín
Stjörnu konur hafa freistast til að stíga framar en það þýðir að þær skilja eftir pláss fyrir aftan sig sem FH elskaaaar
35. mín

MAAAARK!
Hafrún Birna Helgadóttir (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)
Andrea Rán og Ingibjörg taka hornspyrnuna stutt, Ingibjörg finnur svo Hafrúnu sem neglir boltanum fast á nærstöngina af löngu færi og inn!
32. mín
Birna Kristín klárar þetta fáránlega vel framhjá Skiba af frekar löngu færi

MAAAARK!
Birna Kristín Björnsdóttir (stoðsending: Helena Maree Errington)
Það má ekki líta af leiknum í eina sekúndu og þá er komið mark!Birna Kristín klárar þetta fáránlega vel framhjá Skiba af frekar löngu færi

31. mín
Fæææææri!
Stjarnan nálægt því að jafn hér, Aldís missir af boltanum og hann er bara við það að renna inn í autt markið en bjargað á síðustu stundu
29. mín

BEINT ÚR HORNI!
Andrea Mist Pálsdóttir
Ég held að þetta sé hennar 3x mark í sumar beint úr horni! Fallegt er það, svífur í fallegum boga inn í fjærhornið!
26. mín

Er einhver sem getur stöðvað Ídu Marín í þessari deild?
Ída Marín Hermannsdóttir (stoðsending: Thelma Lóa Hermannsdóttir)
alveg eins og færið hjá systrunum áðan nema nú er það Thelma Lóa með draumasendingu í gegn á Ídu Marín og hún klikkar nú ekki á svona færi og klárar þetta frábærlega framhjá Skiba í markinu
24. mín
Aftur er FH að ógna, Ída Marín rétt missir af boltanum og Skiba er fljót að hirða hann
22. mín
Thelma Lóa!
Ída Marín með draumasendingu í gegn á systur sína hana Thelmu Lóu, en hún setur boltann beint á Skiba! Dauðafæri!!
20. mín
Stjarnan með fínustu sókn halda boltanum og rúlla honum vel á milli, endar með fyrirgjöf frá Þóru Maríu en setur hann í varnarmann og Aldís grípur þetta svo.
14. mín

MAAAARK!
Ída Marín Hermannsdóttir (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)
Frábær undirbúningur hjá Ingibjörgu Magnúsdóttur, platar Evu Marie nokkrum sinnum uppúr skónum áður en hún setur svo gullfallegan bolta á Ídu Marín sem getur ekki annað en klárað þetta í netið!
14. mín
Stjörnukonur eru með hárnákvæmt gameplan og það er að sækja hratt! Ingibjörg Lúcía með ágætis tilraun en það er yfir markið.
12. mín
Andrea Rán með eina af sínum neglum fyrir utan teig en rétt framhjá!
9. mín
JESÚS MINN
Ingibjörg þrumar boltanum upp í slánna af stuttu færi en þetta er ekki búið og það er vandræðagangur í teignum áður en boltinn hrekkur svo út fyrir endalínu
7. mín
Hulda Hrund!
klobbar Deju og skilur hana eftir! Lætur varnarmenn FH líta illa út, reynir svo stungu á Snædísi en Anna Heiða kemst inn í þetta á síðustu stundu
5. mín
Úfffff
Smá samskiptaleysi hjá Jónínu og Aldísi, það sleppur fyrir horn en hættulegt var það
2. mín
Andrea Mist tekur hornið, setur hann fastann út í teiginn en ekkert kemur þó úr þessu
2. mín
Birna nælir í horn fyrir Stjörnukonur
1. mín
Ída Marín hefur leika fyrir heimakonur í FH
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin ganga hér út á völl og hér er allt til reiðu fyrir frábæran fótboltaleik!
Búningar beggja liða eru hefðbundnir FH eru hvítar-svartar-Hvítar og Stjarnan eru bláar-hvítar-bláar
Búningar beggja liða eru hefðbundnir FH eru hvítar-svartar-Hvítar og Stjarnan eru bláar-hvítar-bláar
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
FH
Bræðurnir Guðni og Hlynur gera 1x breytingu á sínu liði frá 1-6 sigri gegn Grindavík/Njarðvík í síðustu umferð. Inn í byrjunarliðið kemur Jónína Linnet en á bekkinn sest Mackenzie.

Stjarnan
Óskar Smári gerir einnig 1x breytingu á sínu liði frá 3-2 sigri gegn Þór/KA í síðustu umferð. Inn í liðið kemur Hulda Hrund en úr liðinu kemur Fanney Lísa.

Bræðurnir Guðni og Hlynur gera 1x breytingu á sínu liði frá 1-6 sigri gegn Grindavík/Njarðvík í síðustu umferð. Inn í byrjunarliðið kemur Jónína Linnet en á bekkinn sest Mackenzie.

Stjarnan
Óskar Smári gerir einnig 1x breytingu á sínu liði frá 3-2 sigri gegn Þór/KA í síðustu umferð. Inn í liðið kemur Hulda Hrund en úr liðinu kemur Fanney Lísa.

Fyrir leik
Sædís Rún spáir í 13. umferðina
Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir fékk það verðuga verkefni að spá í leikina í 13. umferðinni

FH 1 - 2 Stjarnan
Grannaslagur af bestu gerð, það verður hiti á hliðarlínunni, Óskar og Hlynur keppast um að öskra sín lið áfram og stjarnan skorar undir blálokin. Ingibjörg hefur reimað á sig markaskóna í sumar og setur eitt ásamt Snædísi. Ída skorar fyrsta mark leiksins fyrir FH.

FH 1 - 2 Stjarnan
Grannaslagur af bestu gerð, það verður hiti á hliðarlínunni, Óskar og Hlynur keppast um að öskra sín lið áfram og stjarnan skorar undir blálokin. Ingibjörg hefur reimað á sig markaskóna í sumar og setur eitt ásamt Snædísi. Ída skorar fyrsta mark leiksins fyrir FH.
Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust eins og áður sagði þann 10. maí sl. þar sem FH fór með 1-2 sigur af hólmi, með mörkum frá Deju Sandoval og Hafrúnu Birnu. Hulda Hrund skoraði svo sárabótarmark Stjörnunnar í uppbótartíma.






Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur hafa verið á mikilli siglingu og sitja í 3. sætinu með 21 stig, 3 stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu og 1 stigi á undan ÍBV í 4. sætinu.
Stjarnan hefur ekki tapað leik í deildinni síðan 10. maí þegar þær mættu einmitt FH í fyrri umferðinni. Þær hafa þó gert 2 jafntefli þar sem þær hafa misst stig.
Stjarnan er það lið í deildinni sem hefur fengið lang fæst mörk á sig en þær hafa einungis fengið á sig 11 mörk! eða 5 mörkum færri en FH og 4 mörkum færri en Breiðablik.
Stjarnan mun því eflaust treysta á solid varnarleik í kvöld gegn sóknarliði FH og reyna svo að breika á þær þegar færi gefst.

Stjarnan hefur ekki tapað leik í deildinni síðan 10. maí þegar þær mættu einmitt FH í fyrri umferðinni. Þær hafa þó gert 2 jafntefli þar sem þær hafa misst stig.
Stjarnan er það lið í deildinni sem hefur fengið lang fæst mörk á sig en þær hafa einungis fengið á sig 11 mörk! eða 5 mörkum færri en FH og 4 mörkum færri en Breiðablik.
Stjarnan mun því eflaust treysta á solid varnarleik í kvöld gegn sóknarliði FH og reyna svo að breika á þær þegar færi gefst.

Fyrir leik
FH
FH konur sitja á toppnum fyrir þennan leik, með 26 stig eða 2 stigum á undan Breiðablik í 2. sætinu og 5 stigum fyrir ofan Stjörnuna í 3. sætinu.
FH hafa komið af miklum krafti eftir hléið og markatalan úr síðustu tveimur leikjum er 13-4! en þær unnu Grindavík/Njarðvík 1-6 í síðustu umferð og Þrótt 7-3 þar á undan!
Þær hafa litið fáránlega vel út og bara hætta ekki að skora! Á góðum degi veit ég hreinlega ekki hvaða lið ætlar að stoppa þessa ferð á FH
Það eitt sem víst er að það ætti að vera nóg stuð í kvöld!

FH hafa komið af miklum krafti eftir hléið og markatalan úr síðustu tveimur leikjum er 13-4! en þær unnu Grindavík/Njarðvík 1-6 í síðustu umferð og Þrótt 7-3 þar á undan!
Þær hafa litið fáránlega vel út og bara hætta ekki að skora! Á góðum degi veit ég hreinlega ekki hvaða lið ætlar að stoppa þessa ferð á FH
Það eitt sem víst er að það ætti að vera nóg stuð í kvöld!

Fyrir leik
13. umferðin
Umferðin hófst á sunnudaginn með tveimur leikjum, einn leikur var á dagskrá í gær en umferðin klárast svo í dag með tveimur leikjum.
13. umferðin lítur þá svona út:
Á sunnudaginn:
14:00 Víkingur R. - Fram 1-2
16:00 Þór/KA - ÍBV 2-1
Í gær:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2
Í dag:
19:15 FH - Stjarnan
19:15 Valur - Breiðablik

13. umferðin lítur þá svona út:
Á sunnudaginn:
14:00 Víkingur R. - Fram 1-2
16:00 Þór/KA - ÍBV 2-1
Í gær:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2
Í dag:
19:15 FH - Stjarnan
19:15 Valur - Breiðablik

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Stefán Ragnar Guðlaugsson og honum til halds og trausts verða Jovan Subic og Mikael Ívan AxelssonErlendsson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður í kvöld er Gunnar Helgason.

Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður í kvöld er Gunnar Helgason.

Fyrir leik
Velkomin í Kaplakrikann!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Kaplakrikavellinum þar sem FH tekur á móti Stjörnunni í 13. umferð Bestu deildarinnar.
Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!






Ég bara á ekki til orð! Það bara getur enginn slökkt á þessu FH liði
Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld
Takk fyrir mig!