SKÝRSLAN: Fyrsta Evrópumarkið leit dagsins ljós
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikurinn var það sem réði úrslitum. RFS átti góðan hálfleik og fóru með þæginlega forustu inn í hálfleikinn. Í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn og Þórður Gunnar skoraði fyrsta Evrópu marki í sögu Vestra um miðjan seinni hálfleik. Stuttu eftir það skoruðu RFS fjórða markið og leikurinn fjaraði svolítið út eftir það.
Bestu leikmenn
1. Marvin Darri Steinarsson
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig fjögur mörk í dag var Marvin góður í dag. Hann gat lítið gert í mörkunum og átti þrjár frábærar vörslur í lok leiks.
2. Þórður Gunnar Hafþórsson
Þórður Gunnar fær að sjálfsögðu að vera einn að mönnum leiksins fyrir að skora fyrsta Evrópumark Vestra. Þórður var einnig partur af þrefaldri skiptingu sem breytti spilamennsku Vestraliðsins til hins betra.
Atvikið
Atvikið er auðvelt val. Sögulega mark Vestra sem Þórður Gunnar skoraði, markið var fyrsta Evrópumark í sögu Vestra og það var virkilega gaman að sjá Vestramenn komast á blað í Evrópu.
Hvað þýða úrslitin?
RFS fer með góða forustu inn í seinni leikinn í einvíginu sem verður spilaður eftir akkúrat viku á Avis-vellinum. Vestramenn eiga erfitt verkefni fyrir höndum sér en fótbolti er óútreiknanlegur og það getur allt gerst.
Vondur dagur
Það er varla hægt að gefa eitthverjum slæman dag. Hvaða væntingar setur maður á Vestra í þessum Evrópuleikjum? 3-1 hefði verið mun betri staða en 4-1. Þannig fjórða mark RFS var kannski óþarfi.
Dómarinn - 8
Aaron Wyn Jones og hans menn voru flottir í dag, ekkert út á þá að setja.


