Fotbolti.net
Ívar Björgvinsson
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 0
Ilves
Ilves
Guðmundur Baldvin Nökkvason 84'1 - 0
Dómari: Oscar Johnson (Svíþjóð)
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Fyrsta sinn á tímabilinu hjá Stjörnunni

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan spilaði ekkert frábærlega í dag en þéttur varnarleikur liðsins skilaði hreinu laki í fyrsta sinn á tímabilinu. Síðan voru það bara einstaklingsgæði í einu augnabliki sem gera gæfumuninn. Guðmundur Baldvin skorar eina mark leiksins sem gefur Stjörnunni forskot fyrir seinni leikinn.

Bestu leikmenn

1. Gustav Kjeldsen

Var frábær í hjarta varnarinnar. Sóknarleikur Stjörnunnar var ekki góður í dag en Gustav hafði mikla stjórn á öllu sem gerðist í sóknarleik Ilves.

2. Guðmundur Baldvin Nökkvason

Sýnir einstaklingsgæði og skorar eina mark leiksins sem getur reynst Stjörnunni mjög mikilvægt.

Atvikið

Sigurmark leiksins var eina atvik leiksins. Guðmundur gerir vel og nær góðu skoti niðri í hægra hornið og það var það sem skildi liðin að. Þessi leikur var mjög leiðinlegur fyrir fótboltaáhugamenn en engu að síður virkilega sterkt að vinna.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Stjarnan fer núna með eins marks forskot til Finnlands og er í frábærum séns á að vinna sér inn sæti í 3. umferðinni. Sigurinn hjálpar einnig íslenskum fótbolta almennt þar sem öll coefficient stig skipta máli en íslenska deildin er að svo stöddu í 31. sæti UEFA listans en við viljum komast ofar og fá enn betri möguleika fyrir bestu liðin í landinu.

Vondur dagur

Birnir Snær Ingason, einn launahæsti leikmaður deildarinnar, sýndi það ekki í dag og hefur ekki gert það nægilega vel á tímabilinu. Hans sóknaraðgerðir heppnuðust engan veginn í dag og hann var farinn að sýna pirring sinn inni á vellinum sem er aldrei gott.

Dómarinn - 6

Virtist elska flautuna sína því hann notaði hana við öll tilefni. Náðist aldrei neitt tempó í leikinn og hefði mátt leyfa leiknum að fljóta betur. Enginn stór mistök samt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.