Leik lokið!
Og þar höfum við það! Það er sigur hjá Val í kvöld! Frábærlega gert! Næsti leikur er 30. júlí út í Bosníu! Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld!
92. mín
Bjarni Mark með frábært skot! Ekki mark að þessu sinni samt, sýndist hann fara rétt yfir
91. mín
Dómarinn bætir þremur mínútum við. Emil brýtur á Karlo Abramovic og gestirnir eiga aukaspyrnu svona 25-30 metrum frá teignum held ég.
Juric þrumaði honum rétt framhjá! Ég hélt í smá að hann hefði farið inn!
Juric þrumaði honum rétt framhjá! Ég hélt í smá að hann hefði farið inn!
89. mín
Frederik alveg frábær í dag! Ver aftur frábærlega í dag og horn fyrir gestina sem Valsmenn hreinsa svo!
86. mín
InnEmil Nönnu Sigurbjörnsson
ÚtAlbin Skoglund
Seinasta skipting hjá Chris Brazell
83. mín
InnMatej Sakota
ÚtMario Cuze
83. mín
InnTomi Juric
Út Nemanja Bilbija
Fyrirliðinn útaf
82. mín

Nokkrar myndir komnar inn af fagnaðarlátum og blysum!

79. mín
Gult spjald
Jakob Franz Pálsson
Tekur Cuze niður, aukaspyrna fyrir gestina á hættulegum stað. Frederik kýlir þessum bolta burt og hættan úti78. mín
Valsarar áttu skyndisókn, stela boltanum af Darrick Morris en ná ekki að nýta sér þetta! Hefði verið kjörið tækifæri að bæta öðru við!
73. mín
Frederik að verja vel í dag, hér fær hann annað skot á sig en hann ver það örugglega!
72. mín
Dauðafæri hjá Zrinjski
Ekki auðvelt að sjá vegna reykmökksins sem kemur frá blysunum en Frederik varði í horn. Hornið var hinsvegar illa nýtt hjá gestunum og Valsarar fá markspyrnu
71. mín
Og blysin eru komin á loft hjá gestunum
69. mín
InnViktor Grbic
ÚtMarko Vranjkovic
69. mín
InnKarlo Abramovic
ÚtAntonio Ilic
65. mín
InnBjarni Mark Antonsson
ÚtShkelzen Veseli
65. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtDagur Orri Garðarsson
65. mín
InnPatrick Pedersen
ÚtBirkir Heimisson
65. mín
InnMarkus Lund Nakkim
ÚtLúkas Logi Heimisson
64. mín
OG VALSARAR ERU KOMNIR YFIR
Tryggvi Hrafn Haraldsson
ALGJÖRLEGA UPP ÚR ÞURRU!!! ÞEIR KOMAST Í HRAÐAUPPHLAUP, BOLTINN RATAR SÍÐAN Á TRYGGVA SEM ÞRUMAR HONUM INN63. mín
Annað horn fyrir Zrinjski
Boltinn endar á Ilic sem þrumar honum í varnarmann og út í annað horn.
Boltinn er hinsvegar hreinsaður strax burt í innkast
Boltinn er hinsvegar hreinsaður strax burt í innkast
60. mín
Horn fyrir Zrinjski
Hún fer í hendina á leikmann þeirra og aukaspyrna dæmd
58. mín
Horn fyrir Val eftir gott spil
Lúkas Logi stal boltanum og renndi honum á Jónatan Inga, sem reynir sendinguna en boltinn fer af varnarmanni og í hornspyrnu.
Spyrnan er hinsvegar slök og endar í markspyrnu. En mér sýnist Chris vera undirbúa fjórfalda skiptingu!
Spyrnan er hinsvegar slök og endar í markspyrnu. En mér sýnist Chris vera undirbúa fjórfalda skiptingu!
57. mín
Valur komst í sókn, DAgur var kominn hægra megin við teiginn, reynir fyrirgjöf en gestirnir hreinsa og komast í sókn sem mislukkast svo að lokum
56. mín
InnIvica Vidovic
ÚtAdi Nalic
Fyrsta skipting leiksins komin
54. mín
Aukaspyrna fyrir Zrinjski
Ivancic reynir fyrirgjöfina en Valsmenn hreinsa. Þeir vinna hins vegar boltann aftur til baka og reyna að koma sér inn í teig en boltanum er sparkað útaf í annað innkast fyrir Bosníumenninna. Það innkast leiðir svo til hornspyrnu fyrir gestina en þetta er sjötta hornspyrnan þeirra!
52. mín
Gestirnir næla sér í horn
Boltinn fer af varnarmanni Vals og fer í innkast
49. mín
Zrinjski komast í hraðaupphlaup! Sýnist það vera Ivancic sem hleypur upp völlinn, rennir hann yfir á Adi Nalic held ég að það hafi verið, hann reynir síðan skotið en þetta er eitthvað sem Frederik hefur gert milljón sinnum og tekur þennan upp auðveldlega
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
Sýnist hvorug lið hafa gert einhverjar breytingar!
45. mín
Amine bætir engu við. Zrinjski búnir að vera betri en Valsarar hafa ógnað nokkrum sinnum! Vonumst eftir mörkum hjá Völsurum í seinni! Tökum korter!
45. mín
Frábært skot hjá Degi sýndist mér! Valur ógnuðu núna seinustu mínútuna og hann reynir volleyið! Boltinn fer rétt yfir. Hefði verið frábær leið til að enda fyrri hálfleik
39. mín
Aukaspyrna fyrir Val
Brotið á Tryggva sýndist mér. Myles tekur þessa og reynir ábyggilega fyrirgjöfina.
Fyrirgjöf inn í teig en hann er skallaður frá og þrumað honum fram.
Fyrirgjöf inn í teig en hann er skallaður frá og þrumað honum fram.
37. mín
Dagur Orri með frábært hlaup! Valur hreinsar upp völlinn og Vranjkovic reynir að hreinsa, það mistekst og Dagur stelur boltann af honum! Hleypur upp völlinn og inn í teig en þrumar honum framhjá! Samúel lá eitthvað niðri eftir þessa sókn en ég hreinlega sá ekki af hverju það var. Hann er allavega staðinn aftur upp og heldur áfram sem er frábært fyrir Val
35. mín
Þeir liggja þvílíkt á vörninni hjá Val, statistíkin segir ábyggilega 85% með boltann seinustu 5 mínútur, en það er pjúra ágiskun
32. mín
Gult spjald
Shkelzen Veseli
Shkelzen nælir sér í fyrsta gula spjald leiksins fyrir ákaflega mikið peysutog32. mín
Gaman að sjá að Eysteinn Pétur, framkvæmdarstjóri KSÍ sé mættur upp í stúku!
29. mín
Hvað er að frétta?!?!
Frábær bolti inn í teig sem ratar á kollinn á einn af leikmönnum þeirra, Frederik með frábæra vörslu en þeir ná lausa boltanum og skjóta honum í tréverkið! Þeir eru núna að næla sér í sína þriðju hornspyrnu!
27. mín
Horn fyrir Zrinjski
Mark dæmt af! Sýndist leikmaður þeirra ver rangstæður en þetta gerist ca 30 sek eftir hornið! Boltinn endaði hjá Vranjkovic sem tekur skot langt utan af teig sem fer í stöngina og síðan ná gestirnir að brjótast í gegn.
Valsarar í miklu basli hinsvegar og gestirnir næla sér í annað horn
Valsarar í miklu basli hinsvegar og gestirnir næla sér í annað horn
26. mín
Lítið gerst seinustu 5. Hinsvegar eiga gestirnir aukaspyrnu.
Antonio Ilic reynir einhverja fyrirgjöf en hún er hreinsuð strax í burtu
Antonio Ilic reynir einhverja fyrirgjöf en hún er hreinsuð strax í burtu
21. mín
Shkelzen fær boltann og rennir honum á Jónatan Inga sem tekur skotið rétt fyrir utan teig en þetta var auðveldur bolti fyrir markmann gestanna
19. mín
Jæja þeir eru komnir með annan söng! Elska svona stemingu
17. mín
Valur komst í skyndisókn, Dagur með boltann á Shkelzen sem reynir lágan bolta inn í teig en Zvonimir fljótur að hlaupa og dýfa sér niður í þennan bolta
14. mín
Fyrsta hornspyrna Zrinjski
Frábærlega varið hjá Frederik Schram! Fær fastan bolta beint á sig frá einhverjum leikmanni Zrinjski og ver fagmannlega!
13. mín
Valur fékk aukaspyrnu, Trggvi sendi hann stutt á Jónatan Inga sýndist mér. Boltinn ratar inn í teig á Lúkas Logi sem nær ekki að taka skotið, fer aðeins of seint í boltann og tekur einn Bosníumanninn niður og réttilega dæmd aukaspyrna þarna hjá dómaranum
12. mín
Og þeir syngja enn... Kunna þeir ekki fleiri lög?
8. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins komin - og það er fyrir Val
Boltinn endar á Samúel Kára, fyrra skotið fer í varnarmann en boltinn leiðir aftur til Samúels sem tekur hann í fyrsta og skýtur boltanum framhjá!
7. mín
Myles Veldman fer alltof seint í boltann og tekur Bilbija niður. Hefði getað verið spjald ef það væri aðeins seinna í leiknum
6. mín
Ég er ekki að grínast þegar ég segi að Bosníumennirnir í stúkunni hafa verið að syngja sama lag í 6 mínútur!
5. mín
Frábær fyrirgjöf frá sýndist mér Shkelzen en Tryggvi náði ekki móttökunni! Hefðu getað nýtt þetta betur
4. mín
Samúel Kári með langt innkast inn í teig, smá klafs að ná eftir boltanum en á endanum hreinsa gestirnir
3. mín
Gestirnir ógna og fyrsta skot leiksins komið, en Frederik ver þetta örugglega. Þeir ætla ekki að leyfa Völsurum úr sínum vallarhelming
1. mín
Valsarar sparka þessu af stað! Góða skemmtun!
Fyrir leik
Það er þvílíka hersveitin sem kemur frá Bosníu! Strax byrjaðir að syngja og með mikil læti! Elska þetta!
Fyrir leik
Liðin eru mætt út á völl! Valsarar í sínum auðþekktu rauðu treyjum en Zrinsjki spila í svörtum treyjum með hvítum og rauðum röndum frá öxl að síðu! Góða skemmtun kæru lesendur!
Fyrir leik
Ekkert VAR!
Engin VAR-tækni verður notuð í dag, en hún mun fyrst vera notuð í næstu umferð í Sambandsdeildinni!
Fyrir leik
Byrjunarliðið komið inn!
Chris gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu frá seinasta leik, en ég get sagt ykkur það að það eru vissulega ekki tveir fyrirliðar inná hjá Val! Hólmar er með fyrirliðabandið í dag!
Fyrir leik
Mögulegir andstæðingar
Kári Snorrason gerði flotta frétt um daginn um mögulega andstæðinga Vals í Evrópukeppninni, en þeir mæta annað hvort Íslendingaliðinu GAIS frá Svíþjóð eða dönsku bikarmeisturunum Nordsjælland!
Fyrir leik
Dómarateymið!
Dómararnir allir eru frá Belarús, en aðaldómarinn er Amine Kourgheli! AD1 er Yury Khomchanka og AD2 er Viktar Hetsikau. Fjórði dómarinn er svo Anton Lashuk!

Fyrir leik
Hverjir eru Zrijnski Mostar?
Zrijnski Mostar er lið sem kemur frá Mostarborg í Bosníu-Hersegovínu og er sögulega höfuðborg Hersegovínu! Zrijnski spilar í Bosnísku Úrvalsdeildinni en þeir lentu í öðru sæti þar í fyrra á eftir Borac Banja Luka!
Liðið er upprunulega stofnað 1905, en liiðið keppti í Króatísku deildinni í á meðan seinni heimsstyrjöld stóð og voru því bannaðir að taka þátt í Júgóslavnesku deildinni fyrir það að vera svokallað áróðurstæki þjóðernissinna. Bannið stóð frá 1945 til 1992 þegar liðið var endurstofnað á ný og kepptu þá fyrst í deildarkeppni 1994.
Zrinjski hefur rúma 26 ára sögu í evrópskum fótbolta en þeir náðu sínum besta árangri í fyrra, þegar þeirkomst í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra, en í deildarkeppninni náðu þeir úrslitum gegn liðum eins og Häcken og Rapid Vín! Þeir náðu jafntefli við Crystal Palace í útsláttarkeppninni í fyrsta leik, en töpuðu síðan seinni leiknum 0-2 og miðað við þetta verður þetta erfiður andstæðingur fyrir Val.
Bestu leikmenn þeirra eru á borð við Matej Sakota sem spilar á hægri væng, en hann er verðmætasti leikmaður þeirra samkvæmt TransferMarkt.
Einnig er nýkominn til liðs við þá Niko Gajzler en hann kom til liðsins fyrir u.þ.b. tveimur vikum síðan frá NK Orijent í Króatíu. Hann spilaði 31 leik í Króatísku deildinni og kom að 17 mörkum. Það er einhver sem Valsarar ættu að passa á vinstri vængnum.
Helsti markaskorarinn þeirra er þó fyrirliðinn Nemanja Bilbija, en hann setti tvö í einvíginu gegn Breiðablik í fyrra í undankeppni Evrópudeildarinnar. Hann spilaði 43 leiki í öllum keppnum í fyrra og skoraði 23 mörk!

Leikmenn Zrinjski fagna marki Bilbija gegn Breiðablik á Kópavogsvelli.

Valur í Evrópu
Seinustu tvö tímabil hafa Valsarar aðeins náð í 2. umferð forkeppnarinnar í Sambandsdeildinni en þeir fara beint í 2. umferð í ár vegna þess að þeir lentu í 2. sæti í Bestu Deildinni í fyrra!
Þetta er fyrsti Evrópuleikur Vals í ár en í fyrra sigruðu þeir Flora Tallinn 5-1 í einvígi en töpuðu svo gegn Kauno Zalgiris frá Litháen 2-3!
Þetta er fyrsti Evrópuleikur Vals í ár en í fyrra sigruðu þeir Flora Tallinn 5-1 í einvígi en töpuðu svo gegn Kauno Zalgiris frá Litháen 2-3!

Fyrir leik
Evrópukvöld á Hlíðarenda!
Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Hlíðarenda , en hér mætast Valur og Zrinjski Mostar frá Bosníu-Hersegovínu í forkeppni Sambandsdeildarinnar! 