Fotbolti.net
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Mjólkurbikar kvenna
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 0
ÍBV
ÍBV
Þórdís Nanna Ágústsdóttir 80'1 - 0
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Þróttur sækir fyrsta miðann á ballið

Hvað réði úrslitum?

Þróttararnir voru bara heilt yfir betri. Eyjakonur áttu rispur og hraðaupphlaup en lélegar ákvarðanir og gæðaleysi á síðasta þriðjungi varð til þess að þær sköpuðu sér lítið að viti. Þróttarar hefðu getað skorað meira en voru klaufar og í raun heppnar að það kom ekki að sök.

Bestu leikmenn

1. Björg Gunnlaugsdóttir (Þróttur R.)

Þvílíkur kraftur í einum leikmanni. Trúi ekki að það séu margir í deildinni fljótari en hún á fyrstu metrunum en hún gerði Helenu, vinstri bakverði ÍBV, lífið leitt í dag. Hefði getað lagt upp í dag en sóknarmenn Þróttar í krummafót í mörgum atvikum.

2. Mist Funadóttir (Þróttur R.)

Gríðarlega mikilvæg Þróttaraliðinu bæði til baka og fram á við. Átti margar góðar fyrirgjafir sem samherjar hennar náðu ekki að nýta sér og er svo grimm í varnarleik liðsins sem hélt auðvitað hreinu í dag.

Atvikið

Það verður að vera sigurmarkið sem sendir Þrótt í úrslitin. Léleg markspyna út úr marki ÍBV og hrikalegur varnarleikur í kjölfarið verður til þess að Þórdís Nanna skilar boltanum í netið og tryggir þetta fyrir Þróttara.

Hvað þýða úrslitin?

Bikarinn er ekki flókinn. Þróttarar fara á Laugardalsvöll og mæta þar annað hvort Fram eða Grindavík/Njarðvík á meðan ÍBV þurfa að játa sig sigraðar í þetta skiptið og reyna aftur að ári.

Vondur dagur

Jón Óli, þjálfari ÍBV, lét ekki sjá sig eftir leik og veit ég ekki betur en að enginn fjölmiðill hafi náð af honum tali. Ég verð að biðja um hærri standard og að fólk mæti í viðtöl þrátt fyrir svekkelsi.

Dómarinn - 6

Stefán og hans teymi voru með þetta allt í teskeið þangað til alveg í lokinn. Þróttarar áttu að fá einhverja augljósustu vítaspyrnu sem ég hef séð þegar Olga varði skot með hendinni sem hann missti af og í kjölfarið missti hann aðeins stjórn. Heilt yfir flott en þegar stóru ákvarðanirnar eru ekki negldar er erfitt að gefa góða einkunn. Heppinn í dag að það skipti ekki máli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.