Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Lengjudeild kvenna
BIRTU völlurinn
Stillt og fínt veður
Haukar
Haukar
0 - 2
HK
HK
0 - 178' Valgerður Lilja Arnarsdóttir0 - 281' Henríetta Ágústsdóttir
Dómari: Jovan Subic
Leik lokið!
HK skemmir partýið í kvöld og rænir sigrinum 0-2!

Viðtöl og skýrsla kemur inn seinna í kvöld!
Takk fyrir samfylgdina
92. mín
Bryndís Halla með fyrirgjöf sem Kaylie nær að grípa áður en Sara Björk kemst í þetta
92. mín
Ástrós Birna í góðri stöðu en skotið ekki nógu nákvæmt
HK
89. mín
InnÁstrós Birna Hólmsteinsdóttir
ÚtHenríetta Ágústsdóttir
Haukar
85. mín
InnSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
ÚtElma Dís Ólafsdóttir
Haukar
85. mín
InnBryndís Halla Gunnarsdóttir
ÚtKristín Fjóla Sigþórsdóttir
HK
81. mín
MAAAARK!

Henríetta Ágústsdóttir

Þær TVÖFALDA! Henríetta með skot bara við miðjubogann nánast og setur boltann hreinlega bara upp í samskeytin, Viktoría var komin of framarlega og átti ekki séns í þennan bolta
HK
78. mín
MAAAARK!

Valgerður Lilja Arnarsdóttir

HK konur komnar yfir! Það er fyrirliðinn sjálfur sem hirðir frákastið af skallanum hjá Henríettu og potar boltanum inn!
HK
78. mín
InnÞorbjörg Rún Emilsdóttir
ÚtÍsabel Rós Ragnarsdóttir
Haukar
77. mín
Gult spjald

Anna Rut Ingadóttir

75. mín
Þeir segja mér hér að það er allskonar skyldleiki í Haukaliðinu Viktoría í markinu og Sara Björk eru frænkur og þá eru Anna Rut og Berglind systkinabörn!
74. mín
Haukakonur hafa verið í brasi með uppspilið og hér eru þær alltof seinar að ákveða hvað þær ætla að gera við boltann í öftustu línu...
72. mín
ÚFFF
Lilja með skalla rétt framhjá, Sara var þarna rétt fyrir aftan hana
71. mín
Það á að setja kraft í sóknarleikinn!
Haukar
71. mín
InnÁsthildur Lilja Atladóttir
ÚtValgerður Ósk Valsdóttir
Haukar
71. mín
InnRakel Lilja Hjaltadóttir
ÚtRagnheiður Tinna Hjaltalín
70. mín
Sara Björk finnur Höllu út á kantinn, hún setur hann svo fyrir en enginn Haukakona mætt á fjærstöngina
69. mín
Henríetta tekur hornið en boltinn í gegnum allan pakkann, HK konur vilja víti en ekkert dæmt og setja boltann svo út fyrir endalínu í klafsinu
68. mín
VIKTORÍA
Ragnhildur með hööööörkuskot en Viktoría með vörslu úr efstu hillu og ver þetta glæsilega!
65. mín
Hornið fer svo beint í hendurnar á Kaylie!
64. mín
Lilja strax komin í baráttuna! setur hann í varnarmann og rétt framhjá
Haukar
63. mín
InnLilja Þórdís Guðjónsdóttir
ÚtÍsold Hallfríðar Þórisdóttir
Lánsmaðurinn frá Blikum að koma inn í sinn fyrsta leik
62. mín
Ísabel tekur horn fyrir HK og sem fyrr er Viktoría í markinu með allt á hreinu, stekkur hæst og grípur þetta!
61. mín
Halla Þórdís reynir sendingu á Völu en Ragnhildur sem fyrr að komast inn í hættulegar sendingar
60. mín
Fínasta samspil hjá Völu og Ragnheiði en Ragnhildur kemst inn í sendinguna á síðustu stundu! Horn sem ekkert kemur úr
HK
58. mín
Gult spjald

Henríetta Ágústsdóttir

57. mín
Cally Queen nælir í horn fyrir HK, Ísabel tekur það sem fyrr, setur hann á miðjann teiginn, Cally Queen er fyrst á boltann en hún veit ekkert hvar hún er í loftinu
55. mín
Cally Queen kemur sér í fínast færi, reynir skotið en það er yfir
53. mín
Tæææpt
Ragnhildur finnur Henríettu innfyrir en aðeins of föst sending í þetta sinn
51. mín
Maggý reynir að finna Elmu Dís í hlaupið en HK konur skynsamar og skýla boltanum útaf
49. mín
Ísold með ágætis tilraun en Kaylie ver þetta vel
47. mín
Hæææætttaaaa
Sara Björk kemur Völu í gegn sem er ekki alveg nægilega vel staðsett, rennir sér á boltann en Kaylie nær þessu, Þetta kom bara uppúr engu!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Vala hefur seinni hálfleikinn fyrir Hauka
45. mín
Það er sunshine og stemming á BIRTU vellinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
0-0 í hálfleik!
Þetta hefur verið kaflaskiptur leikur þar sem liðin hafa skiptst á að vera með yfirhöndina

Haukarnir voru mun líklegri í upphafi leiks en HK konur tóku svo yfir þegar leið á.
45. mín
Ísabel með enn eitt hornið fyrir HK, þær taka þetta stutt en Haukarnir eru fljótar að pressa
45. mín
Ísabel tekur annað horn setur hann út í teiginn, Eydís nær honum og nælir síðan í annað horn
45. mín
Ísabel tekur hornspyrnuna en hún er ekki nægilega góð og endar útaf
44. mín
Kristín Fjóla kemst inn í sendingu ætlaða Henríettu en útaf fer boltinn, Horn fyrir HK sem ekkert kemur þó úr
HK
42. mín
InnEydís Helgadóttir
ÚtAlma Mathiesen
Alma fer hér útaf meidd, sendi henni batakveðjur
41. mín
ÚFFFF HVAÐ ER AÐ GERAST?!?!
Ísabel með frábæra takta, kemst framhjá þremur Haukakonum, fellur í teignum og HK kallar víti. Henríetta nær frákastinu setur hann á fjærstöngina en Viktoría er heldur betur vakandi og ver þetta frábærlega
39. mín
Berglind reynir að finna Völu innfyrir en aðeins of föst og boltinn út fyrir endalínu
37. mín
Stór stund fyrir kvennaboltann
Hafliði Breiðfjörð myndaði Söru Björk í upphitun

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
36. mín
Alma liggur hér eftir og fær aðhlynningu, vonandi ekkert alvarlegt
35. mín
Færiiiii
Alma kemur sér í frábæra stöðu með ágætis tilraun en Viktoría grípur þetta vel
34. mín
Henríetta nælir í hornspyrnu fyrir HK, Ísabel spyrnir þessu fyrir en Viktoría stekkur hæst og grípur þetta örugglega
31. mín
Vala tekur aukaspyrnu út á hægri kantinum, setur hann fastann á fjær þar er Sara ein á auðum sjó en nær ekki að stýra skallanum á markið
30. mín
JEEEEESÚS!
Rosalegur vandræðagangur í öftustu línu, hörmuleg sending sem Cally Queen er hársbreidd frá að komast inn í og hreinlega setja boltann í opið markið! Anna gerir vel að komast fyrir, Cally nær síðan skotinu sem Viktoría rétt nær að blaka frá! Þetta voru FÆRII!
29. mín
Sólin skín og vindurinn varla bærist, ég mæli með að fólk drífi sig á Ásvelli og nái seinni hálfleiknum hér á staðnum!
27. mín
Vala og Sara með frábært samspil, Vala setur hana í gegn hún nær að setja hann á markið en færið er þröngt og Kaylie lokar markinu
Haukar
25. mín
Gult spjald

Berglind Þrastardóttir

Er líklega að gefa henni spjal fyrir brotið áðan
23. mín
Berglind brýtur á Ölmu, hagnaðurinn dæmdur og þær halda sókninni áfram sem endar með að Viktoría grípur þetta.
22. mín
Haukarnir ógna!
Ragnhildur er að dæla boltum inn á teiginn og reynir nú sjálf að leggja hann en tekst ekki í þetta skiptið
21. mín
HAUKAR setja boltann í MARKIÐ
Ísold fylgir eftir frákasti af Völu en dæmt af, hendi dæmd á Völu. Sýndist þetta hárréttur dómur
20. mín
Ragnhildur!
Ragnhildur finnur Ölmu út á kant, fær hann svo aftur áður en hún mundar skotfótinn en framhjá
18. mín
Sara Björk nálægt því að ná skalla á markið en boltinn fer í gegnum 3 áður en hann rennur útaf
16. mín
ÚFFFF HALLA!
Ragnheiður Tinna með góða fyrirgjöf, finnur Höllu, sú tekur nokkrar snertingar til baka áðue n hún lætur vaða og boltinn svífur rétt framhjá samskeytunum
13. mín
Ísold reynir að koma sér á boltann en brýtur af sér við teig HK, hefði verið í sturluðu færi ef hún hefði verið á undan
12. mín
Þetta hafa verið stöðubaráttur hér til að byrja með, liðin eru aðeins að þreifa á hvort öðru
10. mín
Alma brýtur af sér og Haukarnir taka þetta stutt
9. mín
Ísabel hefur verið að koma sér í góðar stöður hér í upphafi leiks fyrir HK, finnur Ölmu út á vinstri kantinum sem reynir bara skotið en hátt yfir
8. mín
Kristín finnur Ragnheiði út á kantinum en ekkert kemur úr þessu
7. mín
Úffff,
Ragnheiður Tinna með hættulega fyrirgjöf
5. mín
Halla Þórdís komin í fína stöðu, reynir skotið en beint á Kaylie í markinu
4. mín
Ísabel kemst inn í skrítna sendingu, reynir skotið en beint í fangið á Viktoríu
3. mín
Halla Þórdís fær sendingu upp í horn reynir fyrirgjöf en yfir pakkann, Ragnheiður Tinna tekur svo fyrirgjöf frá hinum kantinum, finnur Höllu aftur sem reynir skotið
1. mín
Cally Queen hefur leika fyrir HK
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin eru að ganga inn á völlinn og veislan er að byrja

Minni á að leikurinn er svo sýndur í beinni á Livey!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarlið HK
Andri Hjörvar þjálfari HK gerir 1x breytingu á sínu liði frá 1-3 tapi gegn toppliði Gróttu í síðstu umferð.

Inn í liðið kemur Henríetta í stað Karlottu sem varð fyrir því óláni að meiðast í síðasta leik.
Fyrir leik
Byrjunarlið Hauka
Hörður Bjarnar þjálfari Hauka gerir 4x breytingar á byrjunarliði sínu frá 7-0 skellinum gegn Keflavík.

Viktoría Sólveig er aftur komin í markið, þá koma inn í liðið Anna Rut, Ísold og að sjálfsögðu Sara Björk í stað Anítu, Rakelar Lilju, Sigurbjargar og Heklu.
Fyrir leik
Haukar höfðu betur í fyrri viðureigninni
Liðin mættust í Kórnum þann 20. maí þar sem Haukar fóru með 2-1 sigur af hólmi. Halla Þórdís Svansdóttir var hetja Haukaliðsins og skoraði bæði mörkin, það fyrra strax á 7. mínútu og það síðara á 68. mínútu. Alma Mathiesen minnkaði muninn fyrir HK fimm mínútum síðar en nær komust Kópavogskonur ekki.

HK konur eru því væntanlega að leita hefnda hér í kvöld á meðan Haukar freista þess að vinna tvöfalt gegn HK í sumar.

Mynd: Haukar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
HK
HK konur sitja fyrir leikinn í 7. sætinu með 14 stig jafnmörg stig og FHL í 8. sætinu og ÍA í 6. sætinu. Það er síðan rosalega stutt í liðin fyrir ofan og sigur í kvöld fleytir HK liðinu hvorki meira né minna en í 3. sætið! Sem sýnir hversu ótrúlega jöfn og skemmtileg Lengjudeildin hefur verið í sumar!

Gengið hjá HK hefur verið svona upp og ofan, þeim var spáð toppsætinu fyrir tímabilið, það hefur þó ekki gengið eftir og hefur HK tapað öllum leikjum sínum við "toppliðin" Meiðsli hafa sett strik í reikninginn og bekkurinn hjá HK hefur verið mjög ungur í síðustu leikjum.

En það er eins og áður sagði stutt á milli í þessu og sigur hjá HK í kvöld kemur þeim aftur í toppbaráttuna þar sem þær vilja vera!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
RISA STÓRT!
Haukarnir búa þó yfir risa leynivopni (sem er þó ekkert leynilegt lengur) en ein besta fótboltakona sem Ísland hefur alið, Sara Björk Gunnarsdóttir, er snúin heim í Hauka úr atvinnumennsku og þetta verður hennar fyrsti leikur fyrir uppeldisfélagið í 18 ár

Hún snýr til Hauka eftir langan atvinnumannaferil m.a. með Rosengård, Wolfsburg, Lyon, Juventus og síðast Al Qadsiah í Sádi-Arabíu.

Sara Björk er fyrrum landsliðsfyrirliði og næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 145 leiki. Hún fór með Íslandi á EM 2009, 2013, 2017 og 2022.

Hún vann Meistaradeild Evrópu sem leikmaður Lyon. Hún varð sænskur meistari fjórum sinnum, þýskur meistari fjórum sinnum og einu sinni franskur meistari. Hún vann fjóra bikartitla í Þýskalandi, einn bikartitil í Svíþjóð, einn bikartitil í Frakklandi og árið 2023 varð hún bikarmeistari með Juventus á Ítalíu.

Risa stórt fyrir íslenska kvennaboltann og risa stórt fyrir Hauka að fá þennan leiðtoga í liðið með alla sína reynslu!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





Fyrir leik
Haukar
Haukarnir sitja fyrir þennan leik í 3. sæti með 17 stig, 5 stigum á eftir KR í 2. sætinu og 11 stigum á eftir Gróttu á toppnum. Grótta hefur þó spilað þremur leikjum fleiri og KR tveimur.

Það er því mikilvægt fyrir Haukana að ná í sigur hér í kvöld ætli þær að gera atlögu að Bestu deildar sæti!

Haukarnir byrjuðu tímabilið með trompi og sigruðu fyrstu 5 leiki sína í deildinni. Þá fór heldur betur að halla undir fæti og í síðustu fjórum leikjum hafa þær einungis náð tveimur jafnteflum og tapað síðustu tveimur en þær fengu stóran 7-0 skell í síðustu umferð gegn Keflavík.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Jovan Subic og honum til halds og trausts verða Lukasz Slawomir Bednarski og Uchechukwu Michael Eze aðstoðardómarar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Ásvelli!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá BIRTU vellinum þar sem Haukar taka á móti HK í 12. umferð Lengjudeildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.