Leik lokið!
LÆTI!!!
96. mín
Rautt spjald
Oumar Diouck
Heyrði að Oumar hafi fengið rautt í látunum eftir leik, en hann var ekki sá eini. Ég verð að skoða þetta betur greinilega.94. mín
DAUÐAFÆRI!!!
Leandro sendir Valdimar einan í gegn, þá meina ég einan!
Hann og Oumar Diuock eru komnir aleinir gegn Óla í markinu en Valdimar tekur skotið í stöngina og útaf.
Hann hefði getað klárað þetta fyrir þá grænu þarna en í staðinn geta HKöingar jafnað!
Hann og Oumar Diuock eru komnir aleinir gegn Óla í markinu en Valdimar tekur skotið í stöngina og útaf.
Hann hefði getað klárað þetta fyrir þá grænu þarna en í staðinn geta HKöingar jafnað!
92. mín
InnSímon Logi Thasaphong
ÚtBragi Karl Bjarkason
Heiðursskipting!
91. mín
+5 mínútur í uppbót
91. mín
Ná Njarðvíkingar að halda þetta út?!
BRAGI KARL!!!!!!!
Bragi Karl Bjarkason (stoðsending: Alexander Helgi Sigurðarson)
Alexander Helgi með frábæran bolta á fjærsvæðið þar sem Bragi Karl er mættur og setur boltann í netið. Þetta lá bara í loftinu. Bragi búinn að vera frábær í þessum leik og klárar hann með þessu sigurmarki líklega.Ná Njarðvíkingar að halda þetta út?!
91. mín
Óbein?!
Sé ekki hver það er en einn varnarmaður HK fær boltann í löppina eða setur löppina rétt svo í boltann eftir að Óli missir hann niður og áður en hann tekur hann svo aftur upp inni í markteig HK.
Þetta var ansi áhugavert!!!
Þetta var ansi áhugavert!!!
87. mín
InnBaldvin Dagur Vigfússon
ÚtAtli Hrafn Andrason
Atli fer meiddur af velli.
Atli Hrafn fær hér högg á miðjum vallarhelming HK og þarf að fara útaf. Baldvin leysir hann af.
84. mín
ARNAR HELGI!
Jóhann keyrir upp í skyndisókn, 2 á þrjá. Hann keyrir inn á teig og kemur með boltann á fjær á Jóhann sem er aleinn á auðum sjó og með allt markið fyrir framan sig. Það leit allt út fyrir að hann fengi boltann þegar seinasti varnarmaðurinn, Arnar Helgi, nær að setja stóru (eða litlu) tána í boltann og aftur fyrir. Þarna kemur hann bara í veg fyrir mark hjá HK.
Guy Smit gerir vel í að handsama boltann í hornspyrnunni.
Guy Smit gerir vel í að handsama boltann í hornspyrnunni.
82. mín
Njarðvíkingar liggja á gestunum!
Nú keyrir Leandro Fernandes inn á teiginn og kemur með bolta fyrir sem Ólafur er nærri búinn að missa út í teiginn en nær að bjarga sér fyrir horn.
Það er stutt í sigurmark Njarðvíkinga finnst mér.
Það er stutt í sigurmark Njarðvíkinga finnst mér.
81. mín
InnDagur Ingi Axelsson
ÚtTumi Þorvarsson
80. mín
Arnleifur kemur með frábæran bolta á fjærsvæðið þar sem Eiður Aron skallar hann inn í mixið en það er ennþá barátta í gestunum sem hreinsa þetta frá með herkjum.
Það eru rosalegar lokamínútur hérna framundan.
Það eru rosalegar lokamínútur hérna framundan.
80. mín
Njarðvíkingar fá hornspyrnu!
77. mín
Heimamenn keyra upp í sókn og það Arnleifur sem kemur með bolta inn á teigin eftir spil við Oumar Diouck. Boltinn berst út í teiginn til Kára sem klárar í netið eftir að varnarmaður HK reynr að hreinsa frá línu.
Njarðvíkingar hafa legið að vítateig HK og þetta lá bara í loftinu. Þeir eru nú mjög líklegir til sigurs verð ég að segja miðað við augnablikið núna.
NJARÐVÍKINGAR JAFNA!
Aron Einarsson
Þetta lá heldur betur í loftinu.Heimamenn keyra upp í sókn og það Arnleifur sem kemur með bolta inn á teigin eftir spil við Oumar Diouck. Boltinn berst út í teiginn til Kára sem klárar í netið eftir að varnarmaður HK reynr að hreinsa frá línu.
Njarðvíkingar hafa legið að vítateig HK og þetta lá bara í loftinu. Þeir eru nú mjög líklegir til sigurs verð ég að segja miðað við augnablikið núna.
76. mín
Davíð Smári ennþá í sviðsljósinu og Elli fær nóg
Davíð Smári stendur, eins og ég sagði hér áðan, fyrir aftan markið sem HK er að sækja að (nær bílastæðinu) og er að láta í sér heyra). Elli stoppar leikinn og biður hann um að fara þaðan sem hann gerir eftir gott spjall við Elías.
76. mín
InnSvavar Örn Þórðarson
ÚtKarl Ágúst Karlsson
74. mín
Rétt framhjá!
Alexander Helgi með hornspyrnu sem Eiður Aron nær til og tekur skotið rétt framhjá
67. mín
Gult spjald
Viktor Helgi Benediktsson
Markaskorari HK fær spjald fyrir að stoppa góða sókn Njarðvíkinga. HK-ingar allt annað en sáttir.67. mín
Leikurinn kominn í rugl
Leikmenn eru farnir að kasta sér niður með látum í hvert sinn sem þeir fá tækifæri til og kvarta og kveina af fullum hálsi ásamt bekkjum og stuðningsfólki. Elli er að missa tökin á þessu finnst mér eftir þetta atvik sem gerist með rauða spjald Davíðs Smára.
66. mín
Gult spjald
Dominik Radic
Slær óvart í Alexander Helga þegar hann er kominn framhjá honum og fær spjald fyrir, HK-ingum til mikillar mæðu.65. mín
InnLeandro Fernandes
ÚtViktor Nói Vidarsson
63. mín
Alexander Helgi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Þorsteinn Aron skallar frá áður en Njarðvíkingar halda sóknarpressunni áfram en HK-ingar ná að lokum að bægja hættunni frá.
62. mín
Njarðvíkingar fá hornspyrnu!
60. mín
Áhugaverðar mínútur
Elli bíður bara og bíður eftir að Davíð kemur sér frá vellinum sem hann tekur sér sinn tíma í. Þetta voru afar áhugaverðar mínútur. Allir að fylgjast með Davíð fara fyrir aftan grindverkið sem hann gerir.
Nú er hann ásamt hópi manna fyrir aftan mark HK (nær bílastæðinu) að garga inn á völlinn en Njarðvíkingar eru einmitt að sækja á það mark og þar stendur Davíð Smári að garga sína menn áfram.
Nú er hann ásamt hópi manna fyrir aftan mark HK (nær bílastæðinu) að garga inn á völlinn en Njarðvíkingar eru einmitt að sækja á það mark og þar stendur Davíð Smári að garga sína menn áfram.
56. mín
Davíð bara hættir ekki eins og Njarðvíkurliðið og bekkurinn og fær að lokum rautt spjald.
Davíð sér rautt!
Davíð Smári Lamude
Davíð Smári fær rautt fyrir tryllinginn sinn á hliðarlínunni. Hann gengur berserksgang á hliðarlínunni og lætur bæði dómarann og aðstoðardómarann heyra það til skiptis.Davíð bara hættir ekki eins og Njarðvíkurliðið og bekkurinn og fær að lokum rautt spjald.
55. mín
Það sýður allt upp úr!
Valdimar er að komast einn í gegn þegar varnarmaðurinn hann fellur í baráttunni við varnarmenn HK og fær ekkert. Það verður allt vitlaust hjá Njarðvíkingum!
52. mín
Annað mark HK-inga úr hornspyrnu í kvöld en þeir eru komnir yfir á ný!
HK-ingar skilvirkir í sínum hornspyrnum!
Tumi Þorvarsson (stoðsending: Þorsteinn Aron Antonsson)
Spyrna sem er tekin inn á teiginn og ég sé ekki hver skallar boltann í átt að markinu á Tuma sem stýrur honum svo í netið með hausnum.Annað mark HK-inga úr hornspyrnu í kvöld en þeir eru komnir yfir á ný!
47. mín
Arnleifur tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer í pakkann á markteignum en Óli gerir vel og handsamar boltann.
47. mín
Njarðvík að fá fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiks
46. mín
Gestirnir sparka þessu í gang á ný
46. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtÍvar Orri Gissurarson
Ein breyting í hálfleik
45. mín
Allt hnífjafnt í hálfleik
Alexander Helgi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Eiður Aron skallar framhjá og þá flautar Elías Ingi þennan fyrri hálfleik af sem hefur verið fínasta skemmtun.
Tökum okkur korter.
Tökum okkur korter.
45. mín
Hornspyrna sem Njarðvík fær
Síðasta spyrna fyrri hálfleiksins
45. mín
+1 í uppbót
45. mín
Gott skot hjá Alexander
Alexander Helgi gerir frábærlega inni í D-boganum og tekur skotið á markið sem Ólafur gerir sömuleiðis vel í að verja.
42. mín
HK bíta frá sér
Tumi með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn á Atla Hrafn sem var aleinn á auðum sjó en skallinn var auðveldur viðureignar fyrir Guy Smit. En hann var ekkert eðlilega einn þarna.
37. mín
Hendi?
Mér finnst þetta ekki hendi en Dominik Radic hreinsar hornspyrnu Njarðvíkinga í liðsfélaga og heimamenn vilja meina að hann hafi farið í höndina á honum. Þetta hefði verið ódýrt ef Elli hefði bent á punktinn þarna.
36. mín
Áhugavert færi!
Oumar Diouck vinnur boltann og tekur of þunga snertingu sem fer inn fyrir á Valdimar sem er langt fyrir innan og AD flaggar. Þar að leiðandi hægri aftasti varnarmaður HK á sér og Valdimar en ekki Oumar sem keyrir áfram og nær skotinu sem Ólafur ver vel aftur fyrir.
35. mín
Fer fyrir markmanninn
Valdimar Jóhannsson
Ólafur er að fara að sparka út þegar Valdimar er einu skrefi of nálægt honum. Ekki viljaverk en sennilega rétt.33. mín
Njarðvíkingar með skotárás á mark HK!
Löng sókn í kjölfar hornspyrnunnar. Fyrst tekur Viktor stórgott skot af löngu færi á Ólaf sem ver það. Þeir halda síðan áfram að láta vaða. Þar að meðal skot frá Braga af stuttu færi sem fer beint á Ólaf.
32. mín
Njarðvík fær hornspyrnu
27. mín
Leikurinn róast
Það er mikil barátta á miðjunni í gangi þessar mínútur. Leikurinn er aðeins að róast núna.
21. mín
Rétt framhjá!
Aron Einarsson fær boltann í teignum og reynir skot á markið sem fer rétt framhjá. Njarðvíkingar virðast vera að vakna til lífsins hérna eftir ekki góða byrjun.
Mörk breyta leikjum!
Mörk breyta leikjum!
18. mín
Valdimar jafnar fyrir heimamenn!
Valdimar Jóhannsson (stoðsending: Arnar Helgi Magnússon )
Arnar Helgi fær boltann á vinstri kantinum og kemur með frábæra fyrirgjöf sem Valdimar stangar í netið framhjá Ólafi. Allt orðið jafn hér í Njarðvík!15. mín
Spyrnan er tekin stutt og svo inn í á Þorstein Aron sem reynir skot í fyrst en það fer í varnarmann og Njarðvíkingar hreinsa að lokum frá.
14. mín
HK fær hornspyrnu
12. mín
Bragi óheppinn!
Frábær sókn hjá Njarðvíkingum. Viktor Nói fær boltann inni á teig HK eftir flott spil og rúllar honum til hliðar á Braga sem er einn gegn Ólafi í marki HK. Það var enginn í honum en það er eins og einhver þúfa þarna á fjærsvæðinu hafi fellt hann og þar að leiðandi kikksar hann boltann langt framhjá og yfir.
10. mín
Fín sókn Njarðvíkinga
Bragi Karl keyrir upp hægri vænginn og kemur með boltann fyrir á Valdimar en Ólafur Örn í markinu gerir vel og nær að koma sér fyrir sendinguna.
5. mín
Frábærlega gert hjá Viktori að komast í þessa stöðu og skora en maður setur spurningamerki við þennan varnarleik hjá Njarðvík því við fyrstu var þetta auðverjanleg hornspyrna.
Viktor stangar hann í netið - HK leiðir!
Viktor Helgi Benediktsson (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )
Ívar tekur hornspyrnuna á nærsvæðið þar sem Viktor Helgi er mættur og stangar boltann í netið.Frábærlega gert hjá Viktori að komast í þessa stöðu og skora en maður setur spurningamerki við þennan varnarleik hjá Njarðvík því við fyrstu var þetta auðverjanleg hornspyrna.
4. mín
Það er fyrirliðinn Ívar Örn sem tekur spyrnuna. Veggurinn gerir vel og skallar boltann aftur fyrir í hornspyrnu.
3. mín
HK að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað eftir flotta sókn, sjáum hvað gerist hér.
1. mín
Oumar Diouck á upphafsspark þessa leiks.
Sólin er mætt og það eru toppaðstæður hér í Njarðvík fyrir knattspyrnuiðkunar.
Áfram fótbolti
Sólin er mætt og það eru toppaðstæður hér í Njarðvík fyrir knattspyrnuiðkunar.
Áfram fótbolti
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
HK tók Njarðvík í Kórnum, 2-0, fyrr á tímabilinu í fyrri leik liðanna. Helstu atvik þessa leiks má finna hér að neðan.
Fyrir leik
Spáin góða
Það eru fjórir leikir framundan í Lengjudeildinni á næstu dögum, í 15. umferð deildarinnar. Það er nú þegar einn leikur búinn í umferðinni en Vestri og Ægir mættust fyrir rúmum mánuði síðan þar sem Vestri leikur í Evrópukeppni.
Afturelding og Grótta mætast eftir mánuð en sá leikur er líklega hluti af þessari umferð.
Við fengum Eið Orra Ragnarsson, leikmann Keflavíkur, til að spá í leikina sem eru framundan og hann fékk líka að velja einn leik úr 2. deild til að spá í. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leik kvöldsins í Njarðvíkinni.
Njarðvík 2 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Þetta verður skemmtilegur leikur sem endar með 2-2 jafntefli þar sem Svavar Örn setur eitt á móti sínu uppeldisfélagi en fagnar ekki.
Afturelding og Grótta mætast eftir mánuð en sá leikur er líklega hluti af þessari umferð.
Við fengum Eið Orra Ragnarsson, leikmann Keflavíkur, til að spá í leikina sem eru framundan og hann fékk líka að velja einn leik úr 2. deild til að spá í. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leik kvöldsins í Njarðvíkinni.
Njarðvík 2 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Þetta verður skemmtilegur leikur sem endar með 2-2 jafntefli þar sem Svavar Örn setur eitt á móti sínu uppeldisfélagi en fagnar ekki.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Liðið sem ég held með í kvöld, þriðja liðið, er þannig skipað að aðaldómari leiksins er gæðablóðið Elías Ingi Árnason, honum til aðstoðar verða þeir Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú. Eftirlitsmaður KSÍ er hann Ingvar Örn Gíslason.


Fyrir leik
Gunnar Heiðar mætir gömlu félögunum
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, mætir í kvöld sínum gömlu félögum í Njarðvík en hann tók við Njarðvík í lok tímabils 2023 og náði að halda liðinu uppi með einu marki í lokaumferðinni áður en hann tók liðið í toppbaráttu næstu tvö tímabil. Gunnar lagði frábæran grunn til framtíðar fyrir Njarðvíkinga sem hafa verið að styrktu sig hressilega í vetur fyrir átökin í sumar og fengu Davíð Smára til að taka við liðinu.

Gengi Njarðvíkinga hefur ekki verið eins og þeir hefðu viljað hafa það í sumar. En þeir hafa verið að stíga upp í seinustu leikjum og stigasöfnunin skánað. Leikurinn í kvöld er hins vegar gífurlega mikilvægur fyrir heimamenn upp á það að gera að ná að minnka bilið í HK úr 8 stigum í 5 stig með sigri en þeir missa þá 11 stigum frá sér með tapi.

HK er í 4. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem á þó leik til góða á HK og önnur lið í toppbaráttunni, þeir leiki verða svo tveir eftir leik kvöldsins. Lærisveinar Gunnars Heiðars hafa unnið 4 af seinustu 5 leikjum og skorað helling af mörkum.


Gengi Njarðvíkinga hefur ekki verið eins og þeir hefðu viljað hafa það í sumar. En þeir hafa verið að stíga upp í seinustu leikjum og stigasöfnunin skánað. Leikurinn í kvöld er hins vegar gífurlega mikilvægur fyrir heimamenn upp á það að gera að ná að minnka bilið í HK úr 8 stigum í 5 stig með sigri en þeir missa þá 11 stigum frá sér með tapi.

HK er í 4. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem á þó leik til góða á HK og önnur lið í toppbaráttunni, þeir leiki verða svo tveir eftir leik kvöldsins. Lærisveinar Gunnars Heiðars hafa unnið 4 af seinustu 5 leikjum og skorað helling af mörkum.

Fyrir leik
JBÓ heilsar!
Heilir og sælir ágætu lesendur. Það verður gönnað brautina í kvöld fyrir stórleik helgarinnar í Njarðvík þegar HK kemur í heimsókn. Sölvi heiti ég og fæ þann heiður að fylgja ykkur í gegnum þennan leik.
Það er vonandi að við fáum einhvern veisluleik hérna.

Það er vonandi að við fáum einhvern veisluleik hérna.






Ég verða að skoða þetta og þakka fyrir mig!