Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Lengjudeild kvenna
BIRTU völlurinn
Haukar
Haukar
0 - 0
HK
HK
Dómari: Jovan Subic
Fyrir leik
Haukar
Haukarnir sitja fyrir þennan leik í 3. sæti með 17 stig, 5 stigum á eftir KR í 2. sætinu og 11 stigum á eftir Gróttu á toppnum. Grótta hefur þó spilað þremur leikjum fleiri og KR tveimur.

Það er því mikilvægt fyrir Haukana að ná í sigur hér í kvöld ætli þær að gera atlögu að Bestu deildar sæti!

Haukarnir byrjuðu tímabilið með trompi og sigruðu fyrstu 5 leiki sína í deildinni. Þá fór heldur betur að halla undir fæti og í síðustu fjórum leikjum hafa þær einungis náð tveimur jafnteflum og tapað síðustu tveimur en þær fengu stóran 7-0 skell í síðustu umferð gegn Keflavík.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þær búa þó yfir risa leynivopni (sem er þó ekkert leynilegt lengur) en ein besta fótboltakona sem Ísland hefur alið, Sara Björk Gunnarsdóttir, er snúin heim í Hauka úr atvinnumennsku og þetta verður hennar fyrsti leikur fyrir uppeldisfélagið í 18 ár

Risa stórt fyrir íslenska kvennaboltann og risa stórt fyrir Hauka að fá þennan leiðtoga í liðið með alla sína reynslu!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Jovan Subic og honum til halds og trausts verða Lukasz Slawomir Bednarski og Uchechukwu Michael Eze aðstoðardómarar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Ásvelli!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá BIRTU vellinum þar sem Haukar taka á móti HK í 12. umferð Lengjudeildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.