Fotbolti.net
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
Njarðvík
Njarðvík
0 - 0
HK
HK
Dómari: Elías Ingi Árnason
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
HK tók Njarðvík í Kórnum, 2-0, fyrr á tímabilinu í fyrri leik liðanna. Helstu atvik þessa leiks má finna hér að neðan.

Fyrir leik
Spáin góða
Það eru fjórir leikir framundan í Lengjudeildinni á næstu dögum, í 15. umferð deildarinnar. Það er nú þegar einn leikur búinn í umferðinni en Vestri og Ægir mættust fyrir rúmum mánuði síðan þar sem Vestri leikur í Evrópukeppni.

Afturelding og Grótta mætast eftir mánuð en sá leikur er líklega hluti af þessari umferð.

Við fengum Eið Orra Ragnarsson, leikmann Keflavíkur, til að spá í leikina sem eru framundan og hann fékk líka að velja einn leik úr 2. deild til að spá í. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leik kvöldsins í Njarðvíkinni.


Njarðvík 2 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Þetta verður skemmtilegur leikur sem endar með 2-2 jafntefli þar sem Svavar Örn setur eitt á móti sínu uppeldisfélagi en fagnar ekki.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Liðið sem ég held með í kvöld, þriðja liðið, er þannig skipað að aðaldómari leiksins er gæðablóðið Elías Ingi Árnason, honum til aðstoðar verða þeir Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú. Eftirlitsmaður KSÍ er hann Ingvar Örn Gíslason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gunnar Heiðar mætir gömlu félögunum
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, mætir í kvöld sínum gömlu félögum í Njarðvík en hann tók við Njarðvík í lok tímabils 2023 og náði að halda liðinu uppi með einu marki í lokaumferðinni áður en hann tók liðið í toppbaráttu næstu tvö tímabil. Gunnar lagði frábæran grunn til framtíðar fyrir Njarðvíkinga sem hafa verið að styrktu sig hressilega í vetur fyrir átökin í sumar og fengu Davíð Smára til að taka við liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gengi Njarðvíkinga hefur ekki verið eins og þeir hefðu viljað hafa það í sumar. En þeir hafa verið að stíga upp í seinustu leikjum og stigasöfnunin skánað. Leikurinn í kvöld er hins vegar gífurlega mikilvægur fyrir heimamenn upp á það að gera að ná að minnka bilið í HK úr 8 stigum í 5 stig með sigri en þeir missa þá 11 stigum frá sér með tapi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

HK er í 4. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem á þó leik til góða á HK og önnur lið í toppbaráttunni, þeir leiki verða svo tveir eftir leik kvöldsins. Lærisveinar Gunnars Heiðars hafa unnið 4 af seinustu 5 leikjum og skorað helling af mörkum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
JBÓ heilsar!
Heilir og sælir ágætu lesendur. Það verður gönnað brautina í kvöld fyrir stórleik helgarinnar í Njarðvík þegar HK kemur í heimsókn. Sölvi heiti ég og fæ þann heiður að fylgja ykkur í gegnum þennan leik.

Það er vonandi að við fáum einhvern veisluleik hérna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.