Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Besta karla
ELKEM völlurinn
ÍA
ÍA
0 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Dómari: Pétur Guðmundsson
Fyrir leik
Þriðja liðið
Pétur Guðmunds verður vopnaður flautunni og sér til þess að allt verði samkvæmt reglunum góðu honum til halds og trausts verða þeir
Gylfi Már Sigurðsson, Eysteinn Hrafnkelsson, og fjórði dómarinn er Gunnar Oddur Hafliðason. Alvöru teymi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Fyrri leikur þessara liða. Skagamenn unnu fyrri leikinn í Garðabænum 2-1 þar sem Markús Páll og Viktor Jóns sáu um markaskorun Skagamanna
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Gestirnir úr Garðabænum
Stjarnar eru einnig að koma inní þennan leik í smávegis basli, Stjarnan vann Ilves lið frá Finnlandi en á undan því töpuði þeir ansi ljótt gegn KR-ingum 5-0 og gátu mjög lítið í þeim leik þar sem þeir áttu ekki skot á mark og sáu aldrei til sólar. Bæði Stjarnan og ÍA eru í botnbaráttu og eru jöfn að stigum með 15 stig. Bæði lið ætluðu sér mikið á þessu tímabili en lítið hefur gengið. Það má búast við virkilega spennandi leik á milli þessara liða hef engar áhyggjur af því Jón Þór að koma heim, sól úti grænt gras nóg af mörkum getur eitthvað klikkað?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Skagamenn í basli
ÍA hefur valdið miklum vonbrigðum á þessi tímabili eftir að hafa verið duglegir á markaðnum í vetur og ætlað sér í baráttu um evrópusæti.
En staðan er allt önnur í dag þeir sitja eins og staðan er núna fyrir leik í 9.sæti Bestu deildarinnar eftir 15 leiki. ÍA eru núna búnir að tapa fimm leikjum í röð og eru vægast sagt á slæma kaflanum sínum ef það má orða það þannig. Leikurinn í dag gegn Stjörnunni er því gríðarlega mikilvægur og fá þá mögulega á góðum tíma þar sem Stjarnan er í miðju Evrópu verkefni. ÍA mætti Keflavík í síðustu umferð og lauk leiknum 5-2 fyrir Keflavík. Lárus Orri fór einnig í viðtal við Fótbolti.net eftir leik og segjis ekki óttast brottrekstur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Skaginn býður ykkur velkominn!
Góða kvöldið og verið velkominn í þessa þráð beinu textalýsingu frá Skaganum. Í kvöld fer fram hörku leikur þegar ÍA tekur á móti Störnumönnum í gríðarlega mikilvægum leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.