Fotbolti.net
20.07.26 - 23:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Keflavík

Lárus óttast ekki brottrekstur: Er vakinn og sofinn yfir þessu

Auglýsing
Lárus Orri Sigurðsson.

Lárus Orri Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður ekki vel," sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, eftir 5-2 tap gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld. Þetta var fimmti tapleikur Skagamanna í röð.

„Mér fannst leikurinn vera í jafnvægi framan af fyrri hálfleik. Mér fannst við ívið hættulegri en þeir fram að fyrsta markinu og við héldum boltanum miklu betur en þeir. Mér fannst við klaufar að koma okkur ekki í betri færi fram að fyrsta markinu. Svo fáum við tvö mörk í andlitið með stuttu millibili, tvö skot fyrir utan teig. Það kom högg á liðið við það."
Lestu um leikinn: Keflavík 5 - 2 ÍA
„Svo hélt þetta áfram í seinni hálfleik. Við erum að halda boltanum og þeir skoruðu úr aukaspyrnu fyrir utan teig, úr vítaspyrnu og svo skoti fyrir utan teig. Þeir fengu færi fyrir utan þetta en það var mest úr föstum leikatriðum."

„Ég man ekki hvað var búið mikið af seinni hálfleik þegar við erum lentir 4-0 undir. Þá er leikurinn þannig lagað búinn. Ef þú skoðar tölfræðina og stór tækifæri þá held ég að við séum með fimm og þeir með eitt. Samt töpum við 5-2."

Hvernig útskýrirðu það?

„Ég útskýri það þannig að við erum ekki að taka færin okkar, ég útskýri það þannig að núna virðist allt vera að fara inn hjá okkur og þá meina ég ekki að markvörðurinn okkar sé slakur eða vörnin slök - markið sem við fengum á okkur á móti KA er lengst fyrir utan teig og hérna fáum við á okkur þrjú mörk fyrir utan teig. Þetta er brekka núna og vindurinn er beint í andlitið."

Ef horft er á tölfræðina á ÍA að vera miklu ofar í töflunni. „Þú horfir á leikina og sérð hvað er að gerast þar en svo horfirðu á tölfræðina til að sjá hvort það sé ekki rétt sem þú ert að sjá. Tölfræðin styður það sem við erum að horfa á. Þetta er verkefni sem við þurfum að leysa. Við þurfum að vera grimmari þegar kemur að lokahnykknum í sókninni. Við þurfum að vera ákveðnari í færunum okkar og svo þurfum við að fara að loka fyrir þessi mörk sem við erum að fá á okkur."

Vakinn og sofinn yfir þessu
Líður þér áfram eins og þú sért rétti maðurinn til að leiða þetta verkefni áfram?

„Já, mér líður þannig. Alveg klárlega."

Það eru komnir fimm tapleikir í röð. Hefurðu fulla trú á því að liðið nái að rífa sig upp úr þessu?

„Já, ég hef fulla trú á því. Ef þú ætlar að spyrja mig hvort það sé komin pressa á mig, þá er þetta starf þannig að um leið og þú stígur inn í það þá finnurðu fyrir pressu. Það er mikil pressa að vera þjálfari Skagamanna og þannig á það líka að vera. Þú finnur fyrir því að það eru miklar væntingar innan bæjarins og þetta er stórt og mikið starf. Það er pressa og hefur verið pressa alveg frá því ég tók við starfinu. Hef ég áhyggjur af því að missa starfið? Alls ekki, ég hef engar áhyggjur af því. Ég er vakinn og sofinn yfir þessu og á meðan ég vinn eins hart að þessu og ég get, þá sef ég eins og ungabarn á nóttinni. Það sem gerist, það gerist."

Lárus Orri var sérfræðingur í sjónvarpi áður en hann tók við þessu starfi. Hvað myndi sérfræðingurinn Lárus Orri segja um lið Skagamanna í dag?

„Að við séum alveg hrikalega óheppnir," sagði Lárus og glotti.

„Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Lárus Orri tók við Skagamönnum í fyrra.

Lárus Orri tók við Skagamönnum í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA hefur núna tapað fimm leikjum í röð.

ÍA hefur núna tapað fimm leikjum í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég er vakinn og sofinn yfir þessu.

,,Ég er vakinn og sofinn yfir þessu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus óttast ekki brottrekstur: Er vakinn og sofinn yfir þessu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.