SKÝRSLAN: Þróttarar fara inn í versló á toppi deildarinnar
Hvað réði úrslitum?
Afturelding byrjaði leikinn betur og geta svo sannarlega nagað sig í handarbökin að hafa ekki nýtt sér þann meðbyr sem þeir voru með fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Þróttur kemst yfir og eftir það varð þetta í raun enginn spurning. Þróttarar gengu á lagið og voru í stuði sem skilaði sér með fjórum mörkum og þeir leiða deildina inn í verslunarmannahelgina.
Bestu leikmenn
1. Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
Var besti maður vallarins í dag. Skoraði tvö mörk og var að hóta þrennunni í kvöld. Var stórhættulegur á boltanum og vel að þessu kominn.
2. Örn Bragi Hinriksson (Þróttur R.)
Skoraði fjórða markið og var feldur í rauða spjaldinu. Hefur komið inn með miklum krafti inn í þetta Þróttaralið á tímabilinu og er virkilega skemmtilegt að horfa á hann spila.
Atvikið
Þróttur fékk vítaspyrnu sem var að mínu mati réttur dómur. Þróttur kemst yfir og við það þá sveiflast leikurinn gjörsamlega og Þróttur tekur yfir.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur hoppar uppfyrir Aftureldingu í toppsætið með 33 stig á meðan Afturelding fer í annað sætið með sín 31 stig.
Vondur dagur
Andi Hoti óheppinn að fara í Örn Braga þegar þeir eru að sleppa í gegn og fær rautt. Arnar Daði markmaður átti líka skelfileg mistök í þriðja markinu. Efast ekki um að þeir félagar komi sterkari til baka fyrir lokasprettinn í deildinni.
Dómarinn - 9
Fannst Sveinn dómari negla allar helstu ákvarðanir í kvöld. Mér fannst vítaspyrnudómurinn réttur. Hárrétt rauð spjöld og fannst hann komast virkilega vel frá sínu í kvöld.



