SKÝRSLAN: Olla hetjan í kveðjuleik sínum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var hreinlega bara mörkin tvö frá Ollu. Bæði lið gerðu atlögur að markinu og bæði lið fengu hættuleg færi. Breiðablik hins vegar náðu inn tveimur en Þór/KA engu og þar við sat.
Bestu leikmenn
1. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Fær þetta í dag! Setti 2 mörk og tryggði Breiðablik sigurinn í kveðjuleiknum sínum en hún heldur aftur út til Harvard í háskólaboltann. Heldur betur gott dagsverk og gott að fara með 2 mörk og sigur til USA.
2. Birgitta Rún Finnbogadóttir
Átti góðan leik hjá Þór/KA djöflaðist í fremstu víglínu og fór illa með Elínu Helenu einn besta hafsent deildarinnar í nokkur skipti. Örlítið betri slútt og leikurinn hefði getað opnast upp á gátt. Hildur Anna fær líka shoutout, var mjög flott í dag.
Atvikið
Verð að setja þetta á báðar vítaspyrnurnar, báðar tæpar dæmdar... var á tæpasta vaði að brotið hafi verið inn í teig í fyrri vítaspyrnu Blika og svo var þetta bolti upp í hönd í seinna vítinu og þeir segja mér fróðari menn að það hefði ekki átt að vera víti skv. reglunum... Hins vegar fóru bæði vítin forgörðum svo kannski enginn skaði skéður?
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Breiðablik tekur stigin þrjú og eru nú jöfn að stigum við FH hafa þó 1 marki verri markatölu og því í 2. sætinu. Þór/KA hins vegar eru áfram með 12 stig í 8. sæti.
Vondur dagur
Enginn sem átti áberandi lélegan dag, en hef séð Elínu Helenu eiga betri daga í varnarlínu Blika, skilaði hins vegar hreinu laki svo ekkert svo vondur dagur!
Dómarinn - 5
Set spurningamerki við báðar vítaspyrnurnar en að öðru leyti var þetta bara skítfín frammistaða hjá dómarateyminu. Leyfði leiknum að fljóta og ekki að flauta að óþörfu.



