SKÝRSLAN: Vítamartröð Blika í Kasakstan
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag er hreinlega bara vítaspyrnukeppnin sem fór alveg með Blika liðið! Þær skoruðu ekki úr einni einustu spyrnu og Aktobe fer áfram með 2 skoraðar spyrnur! Hins vegar hefði Blika liðið átt að klára þennan leik miklu fyrr og á góðum degi með fullan hóp hefðu þær átt að rúlla yfir þær!
Bestu leikmenn
1. Karitas Tómasdóttir
Var lífleg í liði Blika í dag og lagði upp jöfnunarmarkið. Það er alltaf hörku barátta í Karitas og hún lét finna vel fyrir sér í dag!
2. Elín Helena Karlsdóttir
Átti einnig góðar rispur í leiknum og vann vel með Kristínu Dís og Elísu í öftustu línu. Katelyn Líf og Ása koma líka til greina hér en vantaði aðeins upp á gæði í sendingum og að klára færi í dag til að koma Blikaliðinu yfir endalínuna.
Atvikið
Tvö atvik sem eru mér efst í huga eftir þennan leik! Bæði vítaspyrnufíaskóin! Fyrst vítaspyrnan sem Paola dæmir og Agla María er búin að stilla boltanum upp og er að fara spyrna boltanum þegar hún allt í einu skiptir um skoðun og lætur heimakonur fá boltann! Ég hef bara aldrei séð svona áður! Vítaspyrnukeppnin er síðan bara sér kafli útaf fyrir sig, Blikarnir náðu ekki að nýta neina af fjórum spyrnum sinum, tvær varðar og tvær hátt yfir markið! Ég bara er ekki viss um það hafi gerst áður.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Breiðablik er úr leik í undankeppni Meistaradeildarinnar en spilar um 3. sætið viðDinamo-BSUPC frá Belarús til að tryggja á áframhaldandi evrópuævintýri í Evrópubikarnum. Aktobe hins vegar fer í úrslitaleikinn við Servette frá Sviss
Vondur dagur
Það vzr nú ekki áberandi vondur dagur hjá neinum einum í dag! Hins vegar vantaði heilmikið upp á, á síðasta þriðjung hjá Blikum. Gæðin í sendingum voru oft á tíðum léleg og alltaf verið að reyna háar úrslitasendingar sem tókust bara því miður ekki í dag! Hefði viljað sjá Blikana spila örlítið betur saman inn á milli og síðan keyra á þetta, löngu boltarnir fram voru ekki að skila sér á samherja. Vítaspyrnukeppnin hlýtur að svíða rosalega líka eftir hetjulega 120 mínútur með einungis 2 skiptingar. Ekki gott fyrir sjálfstraustið hjá Öglu Maríu að láta verja aðra vítaspyrnuna í röð hjá sér.
Dómarinn - 3
Ég var bara núll hrifin af dómarateyminu í dag. Fannst hún ekki hafa nein tök á leiknum, gróf brot sem ekki voru spjölduð og heimakonur komust upp með ansi margt miðað við Blikana, auk þess að ýkja öll brot sjálfar. Að snúa vítaspyrnudómnum svo við var eiginlega bara Cherry on top!


