Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Bibbi
Besta karla
VÍS völlurinn
Norðanstrekkingur en sól og heiður himinn. Vindur gæti haft áhrif.
Þór
Þór
1 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Christian Jakobsen 42'1 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Vinnusigur í Þorpinu

Hvað réði úrslitum?

Samvinna Þórsara í pressunni var aðdáunarverð. Allir unnu saman að því að hirða boltann fljótt af Blikum og ef það gekk ekki bökkuðu þeir þar til þeir náðu honum.

Bestu leikmenn

1. Ágúst Hlynsson

Barðist allan leikinn eins og venjulega. Pressaði út um allt og vann ítrekað boltann af Blikum. Hefði getað sett fleiri hér en þeir koma næst.

2. Ási, Affi, Gyrðir og allir hinir

Það er erfitt að gera upp á milli manna þegar samvinnan er það sem skóp sigurinn. Allir pressuðu saman og hopuðu saman. Þetta var sigur liðsins frekar en einstaklingana.

Atvikið

Það var eiginlega ekkert atvik nema markið. Það skipti náttúrulega sköpum þegar upp var staðið. Einnig þurfti að skipta um dómara. Dómgæslan breyttist lítið. Virðingin var Blikamegin allan leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Þór er komið úr botnsætinu og hefur náð KA að stigum en skildi FH eftir í botnsætinu.

Blikar eru enn í fjórða sæti en misstu af því að draga á liðin fyrir ofan.

Vondur dagur

Þetta var eiginlega vondur dagur fyrir Blika. Þeir náðu engan veginn upp spili og sköpuðu sárafá tækifæri.

Þeir voru sérstaklega brothættir þegar pressan var hve hörðust hjá Þórsurum.

En þetta var ekkert vondur dagur hjá neinum. Þórsarar voru bara betri.

Dómarinn - 5

Þeir eru heppnir að fá 5. Á köflum var dómgæslan fín en þess á milli var dæmt á Þór fyrir brot sem Blikar sluppu með. Til dæmis bakhrinding beint framan við dómarann sem Blikar nýttu til að komast hratt upp völlinn. Það hvorki batnaði né versnaði við dómaraskiptin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.