SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur í iðnaðarbuxum
Hvað réði úrslitum?
Haukarnir voru miklu meira með boltann og voru í sókn mest allan leikinn, en þetta var torsótt fyrir þá. Reynismenn voru hættulegir í skyndisóknunum og héldu sér inni í leiknum. Að lokum var stanslaus pressa Haukana bara aðeins of mikil fyrir gestina og Hafnfirðingar fara áfram í undanúrslitin.
Bestu leikmenn
1. Óliver Steinar Guðmundsson (Haukar)
Óliver var með stoðsendinguna í fyrsta markinu, virkilega góð sending inn fyrir vörnina. Svo var hann mjög skapandi fyrir utan það, og vinnusamur á miðjunni.
2. Sævar Orri Valgeirsson (Reynir S.)
Sævar gat varla gert meira, fékk úr litlu að moða en skoraði tvö mörk. Frábær frammistaða sem reyndist ekki alveg nóg.
Atvikið
Vítaspyrnan á 68. mínútu gerði út um leikinn. Jón Arnar Barðdal er tekinn niður inn í teig, fyrst ætlar reyndar Þorfinnur dómari leiksins að dæma aukaspyrnu en sem betur fer ráðleggur hann sig við aðstoðardómara sem sáu að þetta var augljóslega inn í teig.
Hvað þýða úrslitin?
Haukar fara áfram í undanúrslit bikarsins þar sem þær mæta annað hvort Selfoss, Álftanes eða Kormákur/Hvöt. Reynismenn einbeita sér núna bara að toppbaráttunni í 3. deild.
Vondur dagur
Lítið um vonda daga í kvöld. Reynismenn gerðu allt hvað þeir gátu að halda sér inni í þessu. Það er einna helst Daníel Smári Sigurðsson varnarmaður Hauka sem leit mjög illa út í fyrsta marki Reynis. Þar er Sævar bara sterkari, hrifsar boltann af honum í öftustu línu, keyrir að marki og skorar.
Dómarinn - 7
Ein stór ákvörðun í leiknum og útkoman var rétt þó að það þurfti aðeins að ræða saman til að komast að því. Leikstjórnunin fannst mér aðeins ábótavant en það kom ekki að sök.



