Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Fótbolti.net bikarinn
BIRTU völlurinn
Haukar
Haukar
0 - 0
Reynir S.
Reynir S.
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Fyrir leik
Dómarinn
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Ingólfur Kristinn Magnússon og Margeir Valur Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikirnir sýndir á Livey
Allir leikirnir eru sýndir í beinni útsendingu á Livey.
Fyrir leik
Leið liðanna til þessa
Reynismenn hófu leik í fyrstu umferð og hafa því farið í gegnum tvær umferðir.

26.05.26 Sindri 1-3 Reynir S.
08.07.26 KH 2-3 Reynir S.

Haukarnir hófu leik í síðustu umferð og fóru örugglega í gegn.

06.07.26 KFR 0-3 Haukar
Fyrir leik
Gestirnir einni deild neðar
Reynismenn eru í 3. sæti 3. deildarinnar. Þeir hafar verið skemmtikraftar þessara deildar í sumar þar sem þeir hafa skorað 44 mörk og fengið 31 á sig. Það gera 5 mörk að meðaltali í leikjum liðsins í sumar og því vonandi líkur á skemmtilegum leik í kvöld. Markahæsti leikmaður Reynismanna þekkir vel til á Hafnarfirði en Ástralinn, Jordan Smiley sem hefur skorað 12 mörk í 3. deildinni í sumar spilaði áður fyrir Haukana.
Mynd: Reynir Sandgerði
Fyrir leik
Haukarnir besta liðið í mótinu?
Haukarnir eru í fyrsta sæti í 2. deildinni með 32 stig eftir 15 umferðir og eru tveimur stigum á undan Selfoss. Það var töluverð breyting á liðinu fyrir tímabil þar sem Guðjón Pétur Lýðsson auk Óskar Arnar Haukssonar og Pablo Punyed tók við þjálfun liðsins. Pablo hefur einnig verið að spila fyrir liðið en þessi breyting hefur gengið nokkuð vel.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fótbolti.net bikarinn heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá 8-liða úrslitum Fótbolti.net bikarnum. Haukar og Reynir Sandgerði mætast í kvöld með sæti í undanúrslitum í boði. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður spilaður á BIRTU vellinum í Hafnarfirði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.