Fyrir leik
Heimamenn hafa ekki tapað í tvo mánuði!
Eftir sigur Þórs í gær er FH í botnsæti deildarinnar með 13 stig. Hafnfirðingar eru þó taplausir í síðustu sjö leikjum, síðasta tap liðisins var gegn ÍA þann 29. maí! Liðið vann tvo og gerði fimm jafntefli í þessum sjö leikjum. Með þéttum varnarleik hefur Jökull nú haldið markinu hreinu í þremur leikjum í röð. Liðið heimsótti Fram í síðasti leik og gerði fínt markalaust jafntefli.


Fyrir leik
Gestirnir úr Vesturbænum
KR situr í 3. sæti deildarinnar með 35 stig. Með sigri í kvöld komast Vesturbæingar upp í 2. sæti deildarinnar og gætu því minnkað forskot Víkinga í sex stig. Liðið heldur áfram að vera eitt það skemmtilegasta sem íslenskur fótbolti hefur boðið upp á, liðið skorar að meðaltali 3,6 mörk í leik. Síðasti leikur KR var fyrir hálfum mánuði, þá sigraði liðið Stjörnuna, 5-0, á Meistaravöllum.


Fyrir leik
Þriðja liðið
Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmir leikinn í kvöld. Honum til halds og trausts eru þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Fjórði dómari er Gunnar Oddur Hafliðason og Ólafur Ingi Guðmundsson veður eftirlitsmaður.


Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Heil og sæl öllsömul og verið þið velkomin í textalýsingu beint frá Kaplakrika. Hér mun FH taka á móti KR í 17. umferð Bestu deildarinnar.





