SKÝRSLAN: Mannlegir Víkingar misstigu sig aftur
Hvað réði úrslitum?
Víkingur var heilt yfir betra liðið í kvöld en yfirburðirnir voru þó einfaldlega ekki nægilega miklir. Eftir að Víkingur komst yfir í byrjun síðari hálfleiks ætlaði liðið að sigla sigrinum heim í öðrum gír en gestirnir refsuðu. Víkingur hefur nú einungis náð í 5 stig af síðustu 12 mögulegum.
Bestu leikmenn
1. Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)
Gylfi var yfirburðarmaður á miðjunni í kvöld. Ég held nú að það séu allir meðvitaðir um gæðin sem búa í honum og óþarfi að skrifa pistil um þau.
2. Vicente Valor (ÍBV)
Vicente var flottur í kvöld. Hann kom Omar Sowe í dauðafæri sem hann nýtti ekki og skoraði svo af miklu öryggi úr vítaspyrnu sinni.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn undir lokin. Sveinn Gísli er klaufi og sparkar óvart í Mattias Edeland eftir fast leikatriði hjá gestunum. Sölvi vill hins vegar meina að brotið hafi verið á Gunnari Vatnhamar í aðdraganda þess
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin ættu að gefa bæði Fram og KR byr undir báða vængi. Sigurvegari leiksins á morgun er kominn í alvöru baráttu við Víkinga um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV í 9. sæti með 17 stig, tveimur stigum fyrir ofan KA í fallsæti.
Vondur dagur
Víkingsliðið var ekki nægilega gott í dag. Hvort sem það hafi verið þreyta eða eitthvað annað er ekki gott að vita. Omar Sowe fékk dauðafæri til þess að jafna metin um miðbik seinni hálfleiks. Það hefði átt að vekja Víkinga til lífsins. Innkoma Stígs Diljan var ekki góð en þó ekkert sem réði úrslitum.
Dómarinn - 6
Pétur var fínn í dag. Hann var spjaldaglaður í fyrri hálfleik. Víkingar vildu fá rangstöðu í fyrsta marki ÍBV en það var erfitt að meta það, Davíð Atla gæti hafa spilað Róbert Elís réttstæðan. Vítadómurinn var hárréttur en bara spurning með brot í aðdragandanum, rétt eins og Pétur sá ég það ekki.



