Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Besta karla
ELKEM völlurinn
ÍA
ÍA
2 - 0
Þór
Þór
Viktor Jónsson (víti) 28'1 - 0Erik Tobias Tangen Sandberg 55'2 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Skagamenn taka öll 3 stiginn!
Mjög sanngjarn sigur í dag hjá heimamönnum verðskuldaður sigur í alla staði.
Ég þakka fyrir mig skýrsla og viðtöl væntanleg!
ÍA
94. mín
Gult spjald

Ómar Björn Stefánsson

90. mín
+4
90. mín
Færi!
Þarna hefði Viktor geta klárað leikinn á skot en Aron með góða vörslu!
Þór
89. mín
Gult spjald

Vilhelm Ottó Biering Ottósson

Vilhelm rífur Ómar Björn niður, þegar Ómar var kominn fram fyrir hann
86. mín
Hvernig fer þetta ekki inn?
Kristófer Kristjáns í dauða dauða færi en Árni með stórbrotna vörslu, svo fór boltinn í eitthvað klafs og leikmaður Þórs sem ég því miður sá hver var átti skalla í slánna!
ÍA
84. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtMarkús Páll Ellertsson
Þór
82. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtKevin Vazquez Comesaña
Þór
82. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtÁgúst Eðvald Hlynsson
81. mín
Þórsarar fá hér horn.
80. mín
Markús með fína tilraun fyrir utan teig en boltinn framhjá.
78. mín
Ágúst Hlyns með fína tilraun en beint á Árna.
77. mín
Árni Marínó situr hér eftir. Spurning hvort þetta sé taktíkt hjá Árna?
73. mín
Þórsarar fá horn!

Árni Blakar henni aftur fyri r og Þórsarar fá annað horn.
67. mín
Ísak Máni með tilraun rétt yfir markið
Þór
66. mín
InnKristófer Kristjánsson
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Þór
66. mín
InnÞorri Ingólfsson
ÚtVictor Bertomeu
ÍA
64. mín
Gult spjald

Steinar Þorsteinsson

Ætlaði að koma sér lengri leiðinna af velli. Gunnar Oddur ekki hrifinn af því.
ÍA
64. mín
InnÍsak Máni Guðjónsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
ÍA
64. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
61. mín
Victor Bertomeu reynir bakfallsspyrnu á vítateigslínunni en beint á Árna.
59. mín
Dauðafæri!
Victor Bertomeu nokkur veginn sloppinn í gegn en Erik Tobias með alvöru tæklingu og kemur boltanum í horn.
58. mín
Þórsarar fá horn!
ÍA
55. mín
Skagamenn komnir í 2-0!

Erik Tobias Tangen Sandberg

Það er Erik Tobias sem kemur Skaganum í tveggja marka forystu. Gísli Laxdal á gott skot sem Aron Birkir þarf að hafa fyrir að verja, en Erik Tobias fylgir eftir og klárar vel
50. mín
Aron Birkir kominn með derru
Siggi var svo lánsamur að lána Aroni derhúfuna sína !
Þór
49. mín
InnVilhelm Ottó Biering Ottósson
ÚtEinar Freyr Halldórsson
Skipting snemma í seinni. Sennilega meiðsli hjá Einari.
48. mín
Skagamenn fá horn. Gísli með góða fyrirgjöf sem Þórsarar hreinsa í horn.
46. mín
Færi
Jón Gísli með aukaspyrnu sem dettur fyrir Erik Tobias sem hittir ekki markið!
45. mín
Komið í gang
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað!
45. mín
Hálfleikstölfræðin
Mynd: Fótbolti.net

45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur
Gunnar Oddur flautar hér til hálfleiks. Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki. Tökum okkur korters pásu kem síðan aftur með seinni hálfleikinn.
45. mín
Stönginn!
Steinar Þorsteins fær boltann einn og valdur eftir horn, smellir honum í stöngina.
45. mín
+5
Skagamenn fá horn
45. mín
+5
Fimm mínútum er bætt við þennan fyrri hálfleik.
44. mín
Heppinn!
Þetta hefði getað endað illa fyrir Árna Marínó. Kemur aukaspyrna frá Einari Frey sem á að vera æfingabolti fyrir Árna en hann missir hann og heppinn að engin Þórsari hafi náð honum.
ÍA
44. mín
Gult spjald

Jón Gísli Eyland Gíslason

38. mín
Dauða Dauða færi!
Steinar Þorsteins með góðan bolta á Markús Pál sem er sloppinn einn í gegn og reynir að klobba Aron Birki en það gengur ekki.
37. mín
Skagamenn fá enn eina hornspyrnuna.
33. mín
Skemmtileg útfærsla af aukaspyrnu frá Jóni Gísla sem rennir boltanum á Steinar sem á skot sem Aron Birkir ver í horn.
ÍA
28. mín
Mark úr víti - Öruggur!

Viktor Jónsson

Viktor öruggur, setur boltann í netið og hendir Aroni Birki í vitlaust horn
28. mín
Skagamenn fá víti!
Gísli Laxdal á skot sem smellur beint í hendinni á Fannari Daða sýndist mér. Hárréttur dómur!
26. mín
Dauðafæri!
Gísli Laxdal með góðan bolta inná teiginn þar sem Viktor Jóns er einn og óvaldaður en skalli hans beint á Aron.
25. mín
Þórsarar fá annað horn sem Einar Freyr tekur.
24. mín
Skagamenn fá horn.
22. mín
Víti?
Steinar Þorsteins fellur við í baráttunni ég sá ekki við Affi sýndist mér. Dæmi hver fyrir sig.
20. mín
Þórsarar að fá sína fyrstu hornspyrnu.
18. mín
Mikil barátta hér fyrstu mínúturnar, menn fastir fyrir en Gunnar Oddur gerir vel að leyfa leiknum að fljóta.
15. mín
Victor Bertomeu vinnur baráttuna við Jón Gísla en á slakt skot fyrir utan teig framhjá markinu.
11. mín
Flott tilraun
Einar Freyr gerir vel fyrir utan teig Skagamanna, á gott skot en boltinn framhjá markinu.
8. mín
Jón Gísli með fína aukaspyrnu, en Aron ver í horn.
Þór
7. mín
Gult spjald

Birgir Ómar Hlynsson

Allt of seinn í tæklingum á Gísla Laxdal.
Skagamenn fá aukaspyrnu á góðum stað.
5. mín
Færi!
Gísli Laxdal var kominn í ágætis stöðu inná teignum en setur boltann framhjá úr erfiðu færi.
ÍA
3. mín
InnJón Gísli Eyland Gíslason
ÚtGuðmundur Þórarinsson
Gummi Tóta meiddur
Fékk eitthvað högg og neyðist til þess að fara af velli.
Þungt högg fyrir Skagamenn. Líklegast Tognun
1. mín
Skagamenn byrja af krafti
Skagamenn fá aukaspyrnu strax ú upphafi, og upp úr henni eiga menn skot í varnarmenn, Styrmir biður svo um víti en ekkert verður úr því.
1. mín
Komið af stað!
Gestirnir í Þór koma þessu af stað.
Fyrir leik
Vesen á netinu
Leikurinn fer ekki í gang á slaginu eitthvað vesen á netinu í markinu í átt að Langasandi.
Þór
Fyrir leik
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtÁsbjörn Líndal Arnarsson
Birgir Ómar kemur inn!
Ásbjörn meiddist í upphitun, Birgir kemur inn í hans stað.
Fyrir leik
5 mínútur í leik
Liðin fara að ganga út á völl.
Fyrir leik
Meiðsli í upphitun
Útlit fyrir að Þór þurfi að gera breytingu. Ásbjörn Líndal Arnarsson fer haltrandi inn í klefa úr upphitun.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Bæði lið gera eina breytingu hvor. Steinar Þorsteins kemur inn hjá Skaganum, þar sem Gísli Eyjólfs er í banni eftir rautt spjald gegn Víkingum í síðasta leik.

Þórsarar gera einnig eina breytingu á sínu liði, Þorri Ingólfs þarf að taka sér sæti á bekknum og Victor Bertomeu kemur inn í liðið. Þorri Ingólfs tekur sér sæti á bekknum þrátt fyrir að hafa raðað inn gegn Skagamönnum á undirbúningstímabilinu með Víkingum.
Fyrir leik
Fyrir leik
Þriðja liðið
Gunnar Oddur sér um flautuna góðu í dag. Honum til halds og trausts eru:
Eysteinn Hrafnkelsson
Guðmundur Ingi Bjarnason
Fjórði dómarinn er: Gunnar Freyr Róbertsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þórsarar!
Þór hefur verið á góðu skriði upp á síðkastið eftir erfiðan fyrri hluta tímabilsins. Liðið hefur ekki tapað í síðustu þremur leikjum, unnið Víking 2-1, gert markalaust jafntefli í Akureyrarslagnum og síðan lagt Breiðablik sannfærandi að velli 1-0, í síðasta leik. Í þeim leik var Þór töluvert sterkari aðilinn og sigurinn fyllilega verðskuldaður.

Þórsarar eru ennþá í fallsæti með 15 stig, en með sigri komast þeir úr fallsæti og geta hent nágrönnum sínum í KA niður í fallsæti.

Þórsarar hafa verið virkir á leikmanna markaðnum og þurftu þeir heldur betur á því að halda.

Þór
Komnir
Victor Bertomeu frá Kerala Blasters
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson á láni frá KR
Þorri Ingólfsson á láni frá Víkingi R.
Kevin Vazquez frá Sporting Gijon

Farnir
Sebastian Haugland til Noregs
Elvar Baldvinsson til Völsungs
Ingimar Arnar Kristjánsson til Danmerkur

Kominn og Farinn
Aron Einar Gunnarsson frá og til Katar

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Skagamenn!
ÍA hefur aðeins verið að rétta úr kútnum eins og menn segja eftir erfiða kafla þar sem liðið tapaði fimm leikjum í röð. Nú virðist þó vera komin betri taktur í Skagamenn sem hafa unnið Stjörnuna 5-1 og gert 2-2 jafntefli gegn Víkingi í síðustu tveimur leikjum.

Skagamenn sitja í 7. sæti deildarinnar með 19 stig, aðeins fjórum stigum frá fallsæti í þessum mikla fallpakka sem deildin býður upp á

Komnir og farnir hjá Skagamönnum!

ÍA
Komnir
Guðmar Gauti Sævarsson frá Fylki
Jón Sölvi Símonarson frá Breiðabliki
Matthías Daði Gunnarsson frá Kára (var á láni)

Búinn að semja og kemur líklega eftir tímabilið
Tryggvi Hrafn Haraldsson frá Val



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hitað var upp fyrir umferðina í útvarpsþættinum
Fyrir leik
Gísli Eyjólfs í banni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gísli Eyjólfsson fékk rautt spjald gegn Víkingi um verslunarmannahelgina og verður því ekki með gegn Þór í dag.
Fyrir leik
Óðinn Bjarka spáir Þórssigri!
Óðinn Bjarka spáir í leikina í þessari umferð í Bestu deildinni. Og verður þetta leikur fyrir þessa helstu “pjúrista” sem ég er sammála alvöru “pjúrista” leikur sem við fáum í kvöld.
ÍA 1 - 2 Þór (18:00 í kvöld)
Fyrir leik hafði mér borist til eyrna að Lárus Orri hefði eytt stuttu fríi með fjölskyldunni fyrir norðan og neyðst til að fá far með Þórsrútunni upp á Skaga. Lárus sá sér leik á borði og æsti vel upp í Þórsurunum alla leiðina en aftur á móti leiddi það til þess að Þórsarar mættu tvíelfdir til leiks. Þetta verður hins vegar leikur fyrir „pjúristana“. Sólin lætur sjá sig, sem hentar Markúsi Páli vel. ÍA tekur miðjuna og spilar tvær sendingar niður og svo einn langan bolta upp. Markús kemst einn í gegn og leggur hann snyrtilega í hornið.Gyrðir Hrafn gírast illa vel upp og verður iðinn við kolann það sem eftir er leiks. Leikurinn verður ekki bragðgóður, líkt og árið 1983 þegar liðin auglýstu Maribo og Pepsi framan á búningum sínum. Langt fram eftir verður þetta ekki mikið fyrir augað, allt þar til Gyrðir skorar á 83. mínútu með kröftugum skalla. Tveimur mínútum síðar skorar Atli Sigurjónsson úr „misheppnaðri“ fyrirgjöf. Gyrðir Hrafn reynir að stela markinu, rífur sig úr að ofan og sver upp á allt sem hann á að ljósu lokkarnir hafi sleikt boltann. Lokatölur 1-2.
Fyrir leik
Góða kvöldið!
Í kvöld mun fara fram mjæg mikilvægur og skemmtilegur leikur, þar sem ÍA fær Þór í heimsókn í 18 umferð Bestu deildar karla.


Ég veit það að þetta verður skemmtilegur og spennandi leikur þar sem bæði lið vilja 3 punkta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

sunnudagur 9. ágúst
18:00 ÍA-Þór (ELKEM völlurinn)
18:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur)
18:00 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn)
18:15 KA-FH (Greifavöllurinn)
20:15 Breiðablik-Valur (Eikarvöllurinn)

mánudagur 10. ágúst
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.