Fotbolti.net
Besta deildin
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Besta karla
Eikarvöllurinn
Rjómablíða og 15°!
Breiðablik
Breiðablik
1 - 3
Valur
Valur
0 - 138' Dagur Orri GarðarssonDavíð Ingvarsson 54'1 - 11 - 278' Tryggvi Hrafn HaraldssonHelgi Jónas Guðfinnsson 83'1 - 389' Jónatan Ingi Jónsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Leik lokið!
Þannig fór það! Fyrsti sigur Chris Brazell í Bestu Deildinni er staðreynd í kvöld! Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma á eftir!
93. mín
Valshorn í lokin
Endar svo þannig að þeir fá annað horn
91. mín
Þremur mínútum bætt við
Valur
89. mín
ÞEIR KLÁRA ÞETTA

Jónatan Ingi Jónsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Tryggvi kominn einn í gegn og sneiðir honum framhjá Antoni á Jónatan sem er hárréttur maður á hárréttum stað og slúttar honum inn!
Valur
84. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtLúkas Logi Heimisson
Breiðablik
84. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtGabríel Snær Hallsson
Breiðablik
84. mín
InnKristinn Jónsson
ÚtDavíð Ingvarsson
Breiðablik
83. mín
Rautt spjald

Helgi Jónas Guðfinnsson

Stórfurðulegt atvik þarna! Fær rautt fyrir að grýta æfingakeilu!
Breiðablik
80. mín
Gult spjald

Ágúst Orri Þorsteinsson

Fer aðeins of seint og glæfralega í Myles, rétt dæmt að mínu mati
Valur
78. mín
VÁ!

Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Hörður Ingi Gunnarsson)

Jónatan kemur boltanum á Hörð sem þrumar háum og fallegum bolta inn í teig, en þar stekkur Tryggvi Hrafn upp manna hæst og stangar boltanum inn!
76. mín
VALUR KOMIÐ YFIR... eða hvað?
Allt brjálað!!! Sigurður dæmir vitlaust innkast eftir að Valsmenn skora úr því!
75. mín
Færi sem Valsmenn hefðu í raunn átt að klára. Patrick fær frábæran bolta, sendir hann fram á samherja sem skýtur boltanum einu sinni í Anton Ara og tvisvar þrisvar meir í varnarmann!
Breiðablik
73. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtHöskuldur Gunnlaugsson
Valur
73. mín
Gult spjald

Hörður Ingi Gunnarsson

Breiðablik
71. mín
Gult spjald

Gabríel Snær Hallsson

Valur
68. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtBirkir Heimisson
Valur
68. mín
InnKristófer Dagur Arnarsson
ÚtDagur Orri Garðarsson
66. mín
Tryggvi með flott skot sem fer rétt framhjá! Gott spil hjá Val í þessari sókn
62. mín
Horn fyrir Blika
Ekki nægilega vel nýtt, boltinn skallaður frá og endar á Óla Val sem skýtur? Eða sending? Boltinn fer fyrir aftan hann og sóknin í raun búin
61. mín
Frábærlega varið hjá Frederik Schram! Ágúst fær frábæran bolta frá samherja og hleypur upp völlinn. Boltinn endar í skoti sem Frederik ver!
Breiðablik
60. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtDagur Örn Fjeldsted
Breiðablik
60. mín
InnÞorleifur Úlfarsson
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
Mikið klappað fyrir endurkomu Þorleifs!
Valur
60. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtPatrick Pedersen
Valur
56. mín
Gult spjald

Tryggvi Hrafn Haraldsson

Tryggvi nælir sér í gult fyrir peysutog. Kominn svolítill hiti í þennan leik
Breiðablik
54. mín
MAAAARK!

Davíð Ingvarsson (stoðsending: Kristófer Ingi Kristinsson)

Þrumufleygur hjá Davíð þarna! Fær boltann frá Kristófer og dúndrar í fjær! Það hlaut að koma að þessu! Manni sýnist á Spiideo upptöku að hann sé rangstæður samt í þessu!
53. mín
Horn fyrir Val
Flottur bolti á Samúel sem stekkur manna hæst og skallar rétt framhjá!
49. mín
Blikar fengu horn, Dagur með flottan boga inn í teig sem er hreinsaður, við tekur smá klafs en Óli Valur reynir að lokum skotið sem er laflaust og rúllar í áttina að Frederik
46. mín
Seinni farinn af stað!
45. mín
Í seinni hálfleik mun Patrick spila í treyju nr 97, en treyjan hans í fyrri var örlítið rifin
45. mín
Mikið hringt og beðið um hálfleikstölfræði. Hér er hún.
Mynd: Fótbolti.net

45. mín
Hálfleikur
+1
Valsmenn verðskuldað yfir en Blikar geta verið ósáttir að hafa ekki verið búnir að ná einu
44. mín
Blikar reyna að sækja , sýndist það vera Kristófer Ingi sem á skalla sem fer ágæta leið frá markinu.
41. mín
Birkir með skot utan af teig, fer af varnarmanni og Anton ver boltanum útaf í horn
Valur
38. mín
ÞETTA VAR AF DÝRARI GERÐINNI

Dagur Orri Garðarsson (stoðsending: Jónatan Ingi Jónsson)

Jónatan kemur honum á Dag sem er á hægri vængnum, einn á móti Davíð. Hann sneiðar sig svo vel framhjá honum með þeim afleiðingum að Davíð dettur aftur fyrir sig og í kollhnís! Sparkar honum svo í nærhornið en þarna hefði Anton átt að gera betur! 0-1 Valur!
36. mín
Birkir Heimis með þrususkot langt utan af teig en hann ógnar engum og fer hátt yfir
35. mín
Frábært spil hjá Blikum, Dagur Örn og Davíð með flottan einn-tveir, boltinn fer síðan á Kristófer Inga sem tekur skotið en Frederik ver þetta vel
34. mín
Áhorfendur Blikamegin brjálaðir út í Sigurð Hjört. Hann leyfir leiknum að fljóta og þeir ekki par sáttir
27. mín
Önnur frábær varsla hjá Antoni!
Tryggvi fær frábæran bolta á hægri vænginn, rennir honum á Tryggva sem tekur snúning og þrumar honum að markinu sem Anton ver í horn!
25. mín
Blikahorn
Valsmenn skalla þetta út í annað horn. Seinni spyrnan var líka ekki góð, en Samúel Kári hreinsaði hana vel
20. mín
Horn fyrir Val
Smá darraðardans, en Blikar sparka honum aftur út í horn.

Boltinn fer að þessu sinni á Lúkas Loga sem hittir hann illa, en boltinn fer aftur af varnarmanni og út i horn.

Þessi bolti var hins vegar slakur og Lúkas Logi þarf að elta boltann upp og senda hann til baka
19. mín
Anton með svakalega vörslu! Patrick fer með hann á sýndist mér Dag Orra, sem þrumar honum að marki Blika, en Anton gerir frábærlega þarna!
14. mín
Ekki mikið gerst fyrsta korterið. Blikar voru með yfirhöndina en þetta er að jafnast út
11. mín
Fyrsta hornspyrna leiks komin fyrir Blika
Þeir nýta þetta ekki nægilega vel, Höskuldur færir hann aftur að spyrnumanninum sem sparkar út í markspyrnu
8. mín
Stúkan lætur vel í sér heyra þegar brotið er á Valsara sem Sigurður Hjörtur dæmir á
5. mín
Blikar verið meira með boltann fyrstu 5, áttu gott færi áðan, Kristófer Ingi var á góðum stað en náði ekki að klára sendingu í teig Vals
5. mín
Kristalkúlan hefur talað
1. mín
Það eru gestirnir sem sparka þessu af stað!
Góða skemmtun!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn!
Höskuldur Gunnlaugsson byrjar og er kominn aftur með fyrirliðabandið og Þorleifur byrjar á bekknum. Patrick Pedersen byrjar í dag fyrir Val en hann kemur inn fyrir Albin Skoglund sem er ekki með í dag.
Fyrir leik
Spá leiksins!
Óðinn Bjarkason, leikmaður Aftureldingar, tók að sér það verkefni að spá í leikina sem framundan eru og henti í þessa virkilega skemmtilegu spá fyrir þennan leik, hálfgerða ritgerð meira að segja!

Breiðablik 2 - 1 Valur (20:15 í kvöld)
Hlutlaus maður, hann Birkir Már, spáði leiknum 0-5 fyrir Val og Patrick Pedersen fernu. Ég gaf honum einfalt svar „líklegt dagsins“. Stefán verður óvænt í marki Valsmanna og minnkar það bras Chris Brazell í deildinni. Breiðablik stillir upp ógnarsterku liði og ef allt fer eins og það á að fara eiga Blikar hreinlega að vinna leikinn þar sem Valur er í miðju Evrópueinvígi. Óli Valur stendur sig vel í leiknum og svífur upp hægri hlið vallarins eins og honum er best lagið. Dagur Orri leggur hönd á plóg og setur eitt í fyrri hálfleik. Ólafur Ingi gerir taktíska breytingu í hálfleik, setur Ásgeir Orra inn og fær hann til að stíga mikið inn á miðsvæðið. Óli á svo flotta fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Ásgeir þakkar traustið, stekkur manna hæst og skallar hann í slánna og inn. Undir lokin kemst nýi USA maðurinn Thorleifur í gegn og neglir í þaknetið, fagnar því marki með Trump-dansi. Lokatölur 2-1.
Fyrir leik
Glugginn
Nú í gær var hann Þorleifur Úlfarsson kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks, en hann kemur til þeirra aftur frá USL-deildarliðinu Loudoun United. Þorleifur er með leikheimild og verður þá ábyggilega til í slaginn í kvöld. Á tímabilinu hjá Loudoun hefur hann skorað átta mörk og náð tveimur stoðsendingum.

Valsmenn hafa sótt Shkelzen sem hefur verið ágætur í liði þeirra, en hann er eini leikmaðurinn sem þeir hafa sótt í þessum glugga og spurning er hvort þeir sæki fleiri.
Fyrir leik
Staða liðanna
Blikar hafa setið í 4. sæti frá 6. umferð og það mun ekki breytast í kvöld, þeir eru eiginlega bara í sínum eigin heimi þar, en það munar 7 stigum milli þeim og KR í 3. sæti og Keflavík sem situr í 5. sæti.


Valsmenn eru í 6. sæti eins og er og ef þeir sigra Blika í kvöld og Keflvíkingar tapa gegn Stjörnunni, þá eru þeir komnir upp í 5. sæti. Chris Brazell hefur verið í brasi í deildinni með Valsara, en hann hefur aðeins unnið einn deildarleik með þeim, og tapað öllum hinum. Þeir þurfa þennan sigur í kvöld
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins er Sigurður Hjörtur Þrastarson, en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarsson. Fjórði dómari er Hreinn Magnússon og eftirlitsmaður er Oddur Helgi Guðmundsson!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta Deildin kallar!
Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Eikarvellinum þar sem Breiðablik tekur á móti Val í 18. umferð Bestu deild karla!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Staðan fyrir umferðina:
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.