Fyrir leik
Hitað var upp fyrir umferðina í útvarpsþættinum
08.08.26 14:31
Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi
Fyrir leik
Gísli Eyjólfsson fékk rautt spjald gegn Víkingi um verslunarmannahelgina og verður því ekki með gegn Þór í dag.
Gísli Eyjólfs í banni

Gísli Eyjólfsson fékk rautt spjald gegn Víkingi um verslunarmannahelgina og verður því ekki með gegn Þór í dag.
Fyrir leik
Óðinn Bjarka spáir Þórssigri!
ÍA 1 - 2 Þór (18:00 í kvöld)
Fyrir leik hafði mér borist til eyrna að Lárus Orri hefði eytt stuttu fríi með fjölskyldunni fyrir norðan og neyðst til að fá far með Þórsrútunni upp á Skaga. Lárus sá sér leik á borði og æsti vel upp í Þórsurunum alla leiðina en aftur á móti leiddi það til þess að Þórsarar mættu tvíelfdir til leiks. Þetta verður hins vegar leikur fyrir „pjúristana“. Sólin lætur sjá sig, sem hentar Markúsi Páli vel. ÍA tekur miðjuna og spilar tvær sendingar niður og svo einn langan bolta upp. Markús kemst einn í gegn og leggur hann snyrtilega í hornið.Gyrðir Hrafn gírast illa vel upp og verður iðinn við kolann það sem eftir er leiks. Leikurinn verður ekki bragðgóður, líkt og árið 1983 þegar liðin auglýstu Maribo og Pepsi framan á búningum sínum. Langt fram eftir verður þetta ekki mikið fyrir augað, allt þar til Gyrðir skorar á 83. mínútu með kröftugum skalla. Tveimur mínútum síðar skorar Atli Sigurjónsson úr „misheppnaðri“ fyrirgjöf. Gyrðir Hrafn reynir að stela markinu, rífur sig úr að ofan og sver upp á allt sem hann á að ljósu lokkarnir hafi sleikt boltann. Lokatölur 1-2.

Góða kvöldið!
Í kvöld mun fara fram mjæg mikilvægur og skemmtilegur leikur, þar sem ÍA fær Þór í heimsókn í 18 umferð Bestu deildar karla.
Ég veit það að þetta verður skemmtilegur og spennandi leikur þar sem bæði lið vilja 3 punkta.
sunnudagur 9. ágúst
18:00 ÍA-Þór (ELKEM völlurinn)
18:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur)
18:00 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn)
18:15 KA-FH (Greifavöllurinn)
20:15 Breiðablik-Valur (Eikarvöllurinn)
mánudagur 10. ágúst
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)