Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
Njarðvík
Njarðvík
4 - 0
Völsungur
Völsungur
Bragi Karl Bjarkason 14'1 - 0Oumar Diouck 32'2 - 0Bragi Karl Bjarkason 51'3 - 0Oumar Diouck 60'4 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
Afskaplega öruggur og þægilegur sigur Njarðvíkinga er niðurstaðan í dag. Skýrslan kemur inn á vefin innan skamms.
92. mín
Skorar næstum úr fyrirgjafastöðu
Viktor Nói líkast til að reyna fyrirgjöfina en vindurinn er svo mikill hérna að boltinn sogast í átt að markinu og Victor þarf bara að hafa sig allan við til að verja þennan bolta.
91. mín
Andri Bergmann reynir skotið fyrir utan teig en skotið langt framhjá.
86. mín
Njarðvík skorar
En rangstaða. Leandro með þrumuskot fyrir utan teig sem Victor ver en beint á Hrafn sem klárar í opið markið, en hann var rangur.
Völsungur
85. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtSergio Parla Garcia
Njarðvík
82. mín
Gult spjald

Aron Einarsson

81. mín
Leandro með skotið af löngu færi en beint á Victor.
79. mín
Dauðafæri!
Njarðvíkingar vinna boltann ofarlega og koma honum út til vinstri á Leandro Fernandes. Hann er kominn í algjört dauðafæri en dúndrar boltanum í hliðarnetið.
Völsungur
77. mín
InnAndri V. Bergmann Steingrímsson
ÚtFernando Jimenez Arranz
Njarðvík
77. mín
InnHrafn Guðmundsson
ÚtOumar Diouck
75. mín
Þetta hefur verið rosalega erfitt fyrir gestina. Virkar eins og það er bara meiri líkur á því að Njarðvík bætir við frekar en öfugt.
68. mín
Völsungur kemst upp hægri kantinn og þeir koma boltanum inn í teig á Elmar. Hann tekur skotið en í varnarmann og aftur fyrir.
63. mín
Slakt skot
Njarðvíkingar vinna boltann ofarlega á vellinum og Oumar kemur sér í gott færi. Færir boltann til hliðar til að búa til meira pláss og tekur skotið en þessi fer langt framhjá.
Njarðvík
60. mín
Það er verið að ganga frá Húsvíkingum

Oumar Diouck

Njarðvíkingar í skyndisókn sem þeir virðast hafa klúðrað. Þá fer boltinn út til hægri á Braga sýnist mér. Hann kemur með fyrirgjöfina inn í teig og Oumar stekkur á boltann og stangar hann í netið!
Völsungur
56. mín
InnIndriði Ketilsson
ÚtModoumatarr Mbye
Völsungur
56. mín
InnTómas Bjarni Baldursson
ÚtXabier Cardenas Anorga
53. mín
Rennur á rassinn
Leandro Fernandes með skotið fyrir utan teig en völlurinn er alveg rennandi blautur og hann rennur í skotinu á rassinn og skotið því hátt upp í loft og Victor grípur boltann.
Njarðvík
51. mín
Þvílík negla!!

Bragi Karl Bjarkason (stoðsending: Oumar Diouck)

Oumar leggur boltann á Braga sem er líkast til svona 30 metrum frá marki. Hann lætur bara vaða og hann smellhittir boltann beint upp í vinkilinn!
47. mín
Leandro Fernandes með skotið fyrir utan teig rétt yfir. Hann kom víst inn á í hálfleik, er að finna út úr því fyrir hvern.
Njarðvík
46. mín
InnLeandro Fernandes
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Njarðvík með örugga forystu í hálfleik. Gestirnir lengi vel ekki verið nálægt því að gera eitthvað en hér rétt fyrir hálfleiksflautið fengu þeir dauðafæri.

Rokið búið að hafa mikil áhrif á leikinn, og í seinni hálfleik verða gestirnir með vindinn með sér. Spurning hvort þeir geta þá komið til baka.
44. mín
Bjargað á línu!
Fyrsta skot Völsunga og það er algjört dauðafæri. Elfar Árni með skotið inn í teig og það er á leiðinni inn, en varnarmaður Njarðvíkur er búinn að koma sér niður á línu og skallar þetta frá!
43. mín
Arnar er staðinn á lappir og virðist ætla að halda áfram leik.
42. mín
Arnar Pálmi sestur í grasið og þarf aðhlynningu. Gat ekki séð að þetta hafi verið eftir einhverja tæklingu eða eitthvað slíkt.
38. mín
Fyrigjöfin frá hægri inn í teig gestanna og Valdimar nær skallanum en hann er laus og beint á Victor.
34. mín
Njarðvíkingar nálægt því að skora aftur
Heimamenn með boltann úti hægra megin og þeir koma með háan bolta inn í teig. Vindurinn grípur boltann og platar Victor markmann Völsungs svakalega. Mér sýnist boltinn enda síðan inni, en línuvörðurinn dæmir þá rangstöðu.
Njarðvík
32. mín
Þeir tvöfalda forystuna!

Oumar Diouck (stoðsending: Aron Einarsson)

Frábær sprettur hjá Aroni sem fer framhjá þremur varnarmönnum. Leggur svo boltann á Oumar inn í teig, hann tekur skotið og boltinn fer af varnarmanni og síðan í mikinn sveig framhjá Victor.
30. mín
Aðeins búið að róast
Njarðvík heldur góðum tökum á þessum leik og Völsungur kemst eiginlega bara ekki nálægt marki. Mjög vel stýrður leikur hjá heimamönnum hingað til.
23. mín
Njarðvík í færi
Narðvíkingar vinna boltann og sækja svo hratt. Oumar Diouck leggur boltann á Valdimar sem er í fullt af plássi. Hann tekur svo skotið en það er mjög slak og fer vel framhjá markinu.
19. mín
Njarðvíkingar með öll tök á leiknum. Arnar Helgi með skot fyrir utan teig beint á Victor í markinu.

Gestirnir ekki enn náð að hleypa af skoti.
Njarðvík
14. mín
Þeir þurfa ekki víti til að skora!

Bragi Karl Bjarkason

Njarðvíkingar í stórhættulegri sókn og ná að hleypa af tveimur skotum inn í teig bæði skiptin í dauðafæri. Bæði skotin hins vegar í varnarmann. Þá berst boltinn til Braga sem nær að klára þetta!
13. mín
Aftur vilja heimamenn víti
Flott spil hjá Njarðvík og Alexander fer í hlaupið inn í teiginn að elta boltann. Inigo Albizuri virðist fara utan í hann og hann fellur við en ekkert dæmt!
12. mín
Heimamenn vilja víti!
Oumar Diouck kemst inn í sendingu milli varnarmanna Völsungs og er þá bara strax kominn í dauðafæri. Mbye sýnist mér vera sá sem fer alveg ágætlega hressilega aftan í Diouck en Arnar dómari segir honum bara að standa upp.
11. mín
Fimm mínútum síðar og það er ennþá ekkert að frétta. Rokið er gjörsamlega að skemma gæðin í leiknum.
5. mín
Byrjar hægt
Það er kvasst í Njarðvík og rignir eitthvað. Liðin virðast ekkert voða hrifin af veðrinu, því leikurinn er voða rólegur hér fyrstu mínúturnar.
1. mín
Leikur hafinn
Arnar flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Leiknum lýst í fjarska
Því miður er enginn starfsmaður á vellinum í dag, og því er leiknum lýst úr sjónvarpi. Það verða því engin viðtöl eftir leik, en það má búast við skýrslunni mjög fljótlega eftir leikslok.
Fyrir leik
Spáin
Róbert Hauksson, sóknarmaður Fram, tók að sér það verkefni að spá í leikina sem eru framundan.

Njarðvík 2 - 2 Völsungur
Bæði lið verið á góðu skriði undanfarið og Völsungur komið skemmtilega á óvart í sumar eftir brotthvarf ævintýramannsins De Wilde. Fjöldinn allur af KA-mönnum verða skráðir á leikskýrslu hjá Völsungi en það nægir ekki til að skila stigunum þremur. Aron Einarsson skorar eitt og leggur up annað en lætur svo reka sig af velli þegar hann er of lengi að fara út af og fær verðskuldað sitt seinna gula spjald.
Fyrir leik
Dómarinn
Arnar Ingi Ingvarsson verður með flautuna í kvöld en honum til aðstoðar verða Ronnarong Wongmahadthai og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður verður Jóhann Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Getur Völsungur haldið sér uppi?
Húsvíkingarnir eru í 11. sæti deildarinnar og því á leið niður í 2. deild að öllu óbreyttu. Þeir hafa hins vegar verið á svakalegu skriði undanfarið, en þeir hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum. Þeir eru þá bara einu stigi á eftir Grindavík í 10. sæti, þannig að ef þeir halda þessu áfram þá hljóta þeir að halda sér uppi.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Njarðvík á leið í umspilið?
Njarðvíkingar sitja í 5. sæti deildarinnar þegar aðeins þrír leikir eru eftir af deildinni. Það eru fimm stig niður í 6. sætið sem er Grótta og því ólíklegt að þeir nái þeim. Þá er sjö stig upp í efsta sætið og því enn minni líkur að Njarðvíkingar geti unnið deildina. Umspilið er því mjög líklegt fyrir þá, eftir þessa næstu þrjá leiki.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Njarðvík gegn Völsungi í 20. umferð Lengjudeildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður spilaður á JBÓ vellinum í Njarðvík.
Mynd: UMFN
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.