Fotbolti.net
21.08.26 - 12:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Róbert Hauks spáir í 20. umferð Lengjudeildarinnar

Róbert Hauksson.

Róbert Hauksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld hefst 20. umferð Lengjudeildar karla, en spennan í deildinni er gríðarlega mikil.

Róbert Hauksson, sóknarmaður Fram, tók að sér það verkefni að spá í leikina sem eru framundan.
Ægir 1 - 5 Afturelding (18:00 í kvöld)
Fallnir Ægismenn reynast lítil fyrirstaða fyrir Eldinguna sem stefnir hraðbyri aftur upp um deild. Aftureldingu hefur loks tekist að fylla í skarð Bjarna Páls Linnet Runólfssonar og komnir á mikið flug. Óðinn Bjarkason heldur uppteknum hætti og setur tvö í fyrri hálfleik, áður en Andi Hoti gerir út um leikinn með fræga þriðja markinu. Höggin halda áfram að dynja í seinni hálfleik og enda leikar 1-5 eftir sitt hvort markið frá Sævarssonum.

Grótta 2 - 2 ÍR (19:15 í kvöld)
Kjartan Leifur, blaðamaður og ÍR-ingur mikill, þarf því miður að sætta sig við eitt stig úr þessum leik sem reynist þó gulls ígildi í baráttu þeirra um áframhaldandi veru í deildinni. Þessi leikur verður mikil skemmtun í logninu á Seltjarnarnesi þar sem dramatískar lokamínútur verða til þess að liðin skipta á milli sín stigunum. Bæði lið ganga ósátt af velli með úrslitin.

HK 1 - 2 Þróttur R. (14:00 á morgun)
HK hefur tekist að búa til alvöru virki inni í Kórnum í sumar og eru enn ósigraðir á heimavelli. Það breytist þó í þessum leik þar sem þróttarar eru í hefndarhug eftir tap þeirra í umspilinu í fyrra. Baldur Hannes skorar sitt fyrsta mark í sumar eftir mikinn darraðardans í vítateig andstæðinganna áður en Tryggivi Geirs setur þrumufleyg um miðbik seinni hálfleiks. HK-ingar klóra í bakkann í lokin en nær komast þeir ekki og fara þróttarar með stigin þrjú heim í Laugardalinn.

Fylkir 0 - 0 Grindavík (14:00 á morgun)
Ráðfærði mig við dáðasta son Grindavíkur, Sigurjón Rúnarsson sem handviss var um það að bróðir sinn fengi ekki mark á sig í þessum leik. Grindavík gert sex markalaus jafntefli í sumar og verður þetta það sjöunda sem hlýtur að vera met, hvað segir Víðir Sig?

Vestri 2 - 3 Leiknir R. (15:00 á morgun)
Vestramenn byrja þennan leik af miklum krafti og komast snemma í 2-0 forystu. Eftir taktíska og ástríðufulla hálfleiksræðu frá Nemanja Pjevic „nemmaball“ aðstoðarþjálfara snýst hins vegar pendúllinn og leiknismenn taka alveg yfir leikinn. Daði Bærings fyrirliði byrjar endurkomuna með lausu skoti sem skoppar yfir hendur markmanns Vestra. Það er síðan Árni Elvar sem jafnar leikinn áður en funheitur Axel Freyr setur sigurmarkið í lokin.

Njarðvík 2 - 2 Völsungur (16:00 á morgun)
Bæði lið verið á góðu skriði undanfarið og Völsungur komið skemmtilega á óvart í sumar eftir brotthvarf ævintýramannsins De Wilde. Fjöldinn allur af KA-mönnum verða skráðir á leikskýrslu hjá Völsungi en það nægir ekki til að skila stigunum þremur. Aron Einarsson skorar eitt og leggur up annað en lætur svo reka sig af velli þegar hann er of lengi að fara út af og fær verðskuldað sitt seinna gula spjald.

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ágúst Hlynsson (3 réttir)
Jón Gísli Eyland (3 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Eiður Gauti (2 réttir)
Áki Sölva (2 réttir)
Alexander Rafn (2 réttir)
Andri Júl (2 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
Ásgeir Orri (1 réttur)
Haukur Haralds (1 réttur)
Eiður Orri (?)
Óðinn Bjarkason.

Óðinn Bjarkason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kjartan Leifur þarf því miður að sætta sig við eitt stig.

Kjartan Leifur þarf því miður að sætta sig við eitt stig.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Funheitur Axel Freyr.

Funheitur Axel Freyr.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.19+2137
2Afturelding18+2236
3Fylkir19+734
4HK19+932
5Njarðvík19+632
6Grótta18+127
7Leiknir R.19+225
8Vestri19-1124
9ÍR19-722
10Grindavík19-621
11Völsungur19-1220
12Ægir19-328
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.