Fotbolti.net
Besta deildin
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Besta karla
Víkingsvöllur
Sól og létt gola, frábært veður fyrir fótbolta
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 0
Valur
Valur
Valdimar Þór Ingimundarson 49'1 - 0Aron Baldvin Þórðarson 64'Helgi Guðjónsson 69'2 - 0
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
Mjög verðskulduð þrjú stig sem verða eftir í Fossvoginum. Víkingar betra liðið langstærsta part leiksins þrátt fyrir að Valur hafi fengið stöður. Viðtöl og skýrsla koma inn í kvöld.
90. mín
+1
Þrjár mínútur í uppbót.
Valur
90. mín
InnGunnar Karl Heiðdal
ÚtShkelzen Veseli
90. mín
Fínasti bolti á fjær þar sem Daði Berg á skalla í varnarmann og aftur fyrir.
Víkingur R.
89. mín
InnDaði Berg Jónsson
ÚtStígur Diljan Þórðarson
Víkingur R.
89. mín
InnRóbert Orri Þorkelsson
ÚtGunnar Vatnhamar
Lítur allt út fyrir það að Gunnar vatnhamar sé að fá hér heiðursskiptingu og fær standandi lófaklapp úr stúkunni og mikið og stórt knús frá Sölva.
89. mín
Jakob Franz með skot beint á Aron Snæ sem ætti að vera æfingabolti en á einhvern ótrúlegan hátt tekst honum að gera stórhættu úr því, missir hann og Valsarar fá horn. Stálheppinn Aron.
Valur
86. mín
Gult spjald

Tryggvi Hrafn Haraldsson

Togar aftan í Valdimar og stoppar skyndisókn, endurtekning á gula spjaldinu sem Kristófer var að fá.
83. mín
Stígur á fleygiferð upp vinstri kantinn og nær að koma boltanum fyrir markið en hann rúllar í gegnum allan pakkann án þess að nokkur nái til hans.
Valur
83. mín
InnPatrick Pedersen
ÚtHörður Ingi Gunnarsson
Valur
80. mín
Gult spjald

Kristófer Dagur Arnarsson

Togar aftan í treyjuna hans Valdimars og stoppar skyndisókn.
Víkingur R.
77. mín
InnDaníel Hafsteinsson
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Daníel Hafsteinsson sem er búinn að vera að díla við meiðsli kemur hér inn. Mikilvægt fyrir Víkinga að endurheimta hann.
Valur
75. mín
Gult spjald

Jónatan Ingi Jónsson

Stígur Diljan er að komast á ferðina, potar boltanum fram hjá Jónatan og ætlar að hlaupa hinum megin við hann en Jónatan neglir öxlinni fyrir hann til að stoppa hann. Stígur Diljan hefur heldur betur fengið að finna fyrir því í dag.
75. mín
Langt innkast inn á teig Víkinga sem Valsarar ná að flikka lengra áður en Víkingar skalla frá.
74. mín
Lúkas Logi hleður í hörkuskot en það stoppar á Gunnari Vatnhamar.
Víkingur R.
72. mín
InnÁrmann Ingi Finnbogason
ÚtHrannar Snær Magnússon
Víkingur R.
72. mín
InnAron Elís Þrándarson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
Víkingur R.
69. mín
Bakvörðurinn sem skorar bara og skorar!

Helgi Guðjónsson (stoðsending: Hrannar Snær Magnússon)

Stígur gerir frábærlega úti vinstra megin og kemur með góðan bolta fyrir markið. Hann finnur Hrannar á fjær sem skallar boltann aftur fyrir markið þar sem Helgi Guðjónsson kemur á fleygiferð og kemur boltanum í markið.
69. mín
Hrannar Snær er við það að sleppa í gegn, nær að pota boltanum fram hjá Herði Inga sem tekur hann svo niður en ÞÞÞ ætlar ekkert mikið að nota flautuna í dag virðist vera.
68. mín
Valdimar kominn á ferðina og nálgast teiginn, tekur skrýtna ákvörðun um að finna Hrannar, sendingin aðeins fyrir aftan hann og sóknin rennur út í sandinn.
64. mín
Emil Nönnu fær boltann eftir hornspyrnuna en skotið hans er yfir markið.
Víkingur R.
64. mín
Rautt spjald

Aron Baldvin Þórðarson

Tekur tryllinginn á bekknum og fær að líta rauða spjaldið fyrir.
64. mín
Jónatan Ingi kominn á ferðina, skilur Svein Gísla eftir, en Gunnar Vatnhamar gerir frábærlega og stígur upp á móti Jónatan á hárréttum tíma og Valsarar fá horn.
Valur
63. mín
Gult spjald

Hörður Ingi Gunnarsson

Stöðvar skyndisókn
63. mín
Stígur Diljan átti fyrirgjöf rétt fyrir skiptinguna sem var of há fyrir Hrannar Snæ og fór aftur fyrir.
Valur
62. mín
InnEmil Nönnu Sigurbjörnsson
ÚtHólmar Örn Eyjólfsson
62. mín
Valsarar eru að undirbúa skiptingu en þeir verða að bíða aðeins með hana þar sem Hólmar fékk ahlynningu og þeir verða þvi að vera einum færri í mínútu.
60. mín
Hólmar Örn er sestur og þarf aðhlynningu. Virðist vera búinn í dag.
58. mín
Viktor Örlygur fær boltann fyrir markið frá Helga. Hann er aleinn en Frederik gerir mjög vel, er fljótur út úr markinu og étur Viktor.
57. mín
Dauðafæri á hverri mínútu þesa stundina.
Gylfi Sigurðsson með frábæra sendingu, hárfín í gegn um línurnar inn á teiginn þar sem Gunnar Vatnhamar er og nær fínni snertingu en nær svo ekki almennilegu skoti.
55. mín
Hvað er í gangi hérna?
Hrannar Snær fær líklega besta færi leiksins þegar boltinn kemur fyrir markið frá vinstri en á einhvern ótrúlegan hátt fer boltinn á milli lappanna á honum og rúllar í gegnum allan teiginn. Óskiljanlegt hvernig þetta er ekki mark.
54. mín
Stígur Diljan í algjöru dauðafæri inn á markteignum en hann setur boltann yfir.
53. mín
Valsarar í stórsókn og Víkingar henda sér fyrir allt áður en að Sveinn Gísli nær að hreinsa í Jónatan og út af.
52. mín
Dagur Orri Garðarsson í dauðafæri en en Aron Snær gerir vel í markinu og ver frá honum.
51. mín
Sláin
Hornspyrnan kemur inn á markteiginn þar sem, jú, Sveinn Gísli er, tekur boltann á lofti og setur hann í slána. Ljónheppnir Valsarar að vera ekki 2-0 undir
50. mín
Stígur Diljan í dauðafæri en Jakob Franz gerir vel og nær tæklingunni og kemur boltanum í horn.

Boltinn kemur inn á teiginn og enn og aftur er það Sveinn Gísli sem nær skallanum en boltinn í varnarmann og aftur fyrir hinum megin.
Víkingur R.
49. mín
Heimamenn komnir yfir

Valdimar Þór Ingimundarson (stoðsending: Hrannar Snær Magnússon)

Víkingar sækja hratt og Karl Friðleifur ber boltann upp völlinn. Hann potar boltanum á Hrannar sem sér Valdimar aleinan í d-boganum. Valdimar er kominn inn á teiginn þegar boltinn berst til hans, tekur eina snertingu og klárar niðri vinstra megin.
48. mín
Tryggvi Hrafn á skot en Víkingar eru fljótir til baka og henda sér fyrir það.
46. mín
Heimamenn byrja seinni hálfleikinn og Gylfi Sigurðsson setur hann í gang.
45. mín
Hálfleikur
Hafliði Breiðfjörð er að sjálfsögðu mættur í Víkina, vopnaður myndavélinni, og tók þessar myndir í fyrri hálfleiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Aftur endar hornið á enninu á Sveini Gísla en skallinn hans aftur fram hjá markinu. Þá flautar ÞÞÞ til hálfleiks í nokkuð fjörugum leik þrátt fyrir að það sé markalaust í hamingjunni. Víkingar verið ofan á stærstan part leiksins og hafa skapað fleiri færi en Valsarar hafa þó fengið stöður líka.
45. mín
+1
Stígur Diljan á skot á markið sem Frederik ver aftur fyrir.
45. mín
Lúkas Logi finnur Tryggva Hrafn í góðri stöðu á vinstri kantinum, Tryggvi er kominn fram fyrir Karl Friðleif en ákveður að hægja á sér og á svo afleita sendingu inn fyrir vörn Víkings. Mjög illa farið með góða stöðu.
44. mín
Valur fá aukaspyrnu sem er tekin inn á teiginn en þeir ná ekki að skapa neina stórhættu og Víkingar koma boltanum frá að lokum.
43. mín
Gylfi tekur hornið, út sving bolti inn á teiginn og finnur Svein Gísla sem er aleinn en hittir ekki markið.
42. mín
Valdimar í fínni stöðu og nær góðu skoti á markið en Frederik eins og köttur í markinu, eldsnöggur niður, og ver í horn.
41. mín
Stígur með góðan bolta fyrir markið en það var eins og liðsfélagar hans væru ekki að gera ráð fyrir fyrirgjöfinni og boltinn fer í gegnum allan pakkann.
40. mín
Hrannar Snær með frábæra takta inn á teig Valsara áður en hann kemur með þéttingsfastan bolta fyrir markið en þar er enginn samherji hans. Þarna þurfti bara eina tá á boltann.
37. mín
Gylfi skrúfar boltann á fjær þar sem Hólmar Örn skallar frá. Sveinn Gísli fær boltann og reynir aðra fyrirfjöf sem Vals menn skalla frá sömuleiðis, beint fyrir lappirnar á Gylfa sem nær ekki að koma boltanum nægilega vel fyrir sig og kemur ekki skotinu á markið.
36. mín
Brotið á Valdimar nokkrum metrum fyrir utan d-bogann og Víkingar fá aukapsyrnu á fínum stað.
33. mín
Valsarar í fínni sókn þar sem að Lúkas Logi og Shkelzen Veseli ná skoti en í bæði skiptin komast Víkingar fyrir skotin.
32. mín
Tryggvi Hrafn tekur aukaspyrnu utan af velli inn á teig Víkinga þar sem að Aron Snær rís hæst, missis af boltanum en Hólmar Örn fer aðeins inn í hliðina á honum og dæmdur brotlegur.
Aron liggur aðeins eftir en stendur fljótlega upp.
28. mín
Víkingar í kjörstöðu til að sækja hratt eftir hornið en Stígur Diljan ákveður að hægja á og gefur boltann til baka.
27. mín
Tryggvi Hrafn tekur spyrnuna en hún er löng og Karl Friðleifur skallar frá.
26. mín
Hálf klaufalegur varnarleikur Víkinga verður til þess að Valsarar fá horn.
Valdimar trítlar aftur inn á völlinn eftir eina mínútu utan hans.
26. mín
Gylfi finnur Hrannar Snæ í litlu svæði, Hrannar tekur eitt skref inn í völlinn og lætur vaða en skotið í varnarmann. Boltinn heldur áfram að fara á milli manna eins og í kúluspili en Víkingar ná ekki almennilegu skoti á markið og á endanum nær Schram til boltans. Valdimar liggur eftir og þarf aðhlynningu.
24. mín
Helgi endurtekur sama hornið í þriðja sinn en Valsarar skalla frá.
23. mín
Valsarar í nauðvörn þessa stundina og naumlega koma í veg fyrir mark og Víkingar fá annað horn.
22. mín
Helgi tekur spyrnuna stutt á Gylfa sem lætur vaða á markið en skotið hans í varnarmann.
Dagur Orri fær boltann og kemst á ferðina en boltinn vefst fyrir honum og Víkingar vinna af honum boltann.
22. mín
Enn og aftur er Stígur tekinn niður og Víkingar fá aukaspyrnu á fínum stað.
21. mín
Víkingar ofan á þessa stundina og sækja linnulaust.
19. mín
Góð skyndisókn hjá Víkingum, Hrannar Snær að komast á ferðina en Lúkas Logi á frábæra tæklingu. Aftur ná Víkingar boltanum og Valdimar fer á markið en aftur ná Valsarar góðri tæklingu og koma boltanum í horn.

Aftur tekur Helgi spyrnuna á svipaðan stað og áðan en boltinn endar á því að fara aftur fyrir hinum megin.
18. mín
Víkingar halda sókninni áfram og Sveinn Gísli á fyrirgjöf á Nico sem reynir að koma boltanum á markið úr erfiðri stöðu en nær því ekki og Schram hirðir hann á endanum.
18. mín
Helgi Guðjóns tekur spyrnuna sem er löng, og Valsarar skalla boltann frá á fjærstönginni.
17. mín
Víktor Örlygur finnur Karl Friðleif úti hægra megin, hann reynir fyrirgjöf en hún fer í varnarmann og aftur fyrir.
Valur
13. mín
Gult spjald

Jakob Franz Pálsson

Straujar Stíg Diljan sem var að komast á ferðina, klárt gult!
11. mín
Kristófer fer í mjög tæpa tækklingu á Stíg Diljan en ÞÞÞ sér ekkert að því og lætur leikinn halda áfram. Víkingar ekki parsáttir með þessa ákvörðun.
8. mín
Gylfi með skemmtilega sendingu yfir varnarlínu Vals þar sem Karl Friðleifur lúrir en hann nær ekki stjórn á boltanum. Líklegt að flaggið hefði farið á loft ef eitthvað hefði orðið úr þessu.
7. mín
Valdimar keyrir upp miðjan völlin og lætur vaða þegar hann er rétt fyrir utan teiginn en skotið er beint í varnarmann.
5. mín
Gylfi með hárfína sendingu í gegn um línurnar og finnur Stíg sem reynir að koma boltanum fyrir markið en Valsmenn skalla frá.
4. mín
Uppstilling liðanna
Aron Snær
Karl Friðleifur - Vatnhamar - Sveinn Gísli - Helgi
Viktor - Gylfi
Valdimar
Hrannar - Nico - Stígur

Schram
Jakob Franz - Nakkim - Hólmar - Hörður Ingi
Shkelzen - Kristófer - Lúkas Logi
Jónatan - Dagur Orri - Tryggvi Hrafn
2. mín
Valsarar fá aukaspyrnu inn á vallarhelmingi Víkings og turnarnir trítla inn á teiginn.
Tryggvi Hrafn tekur spyrnuna en Gunnar Vatnhamar er fyrstur á boltann og skallar frá.
1. mín
Leikur hafinn
Lúkas Logi sparkar þessu í gang fyrir Val
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Sölvi Geir Ottesen gerir þrjár breytingar á sínu liði frá svekkjandi tapi gegn Borac Banja Luka í vikunni. Aron Elís Þrándarson, Ármann Ingi Finnbogason og Oliver Ekroth koma allir út úr liðinu og sá síðastnefndi er ekki í leikmannahóp Víkings í dag.

Inn fyrir þá koma Sveinn Gísli Þorkelsson, Valdimar Þór Ingimundarson og Hrannar Snær Magnússon, en þetta er fyrsti byrjunarliðsleikur Hrannars fyrir Víking eftir að hann var fenginn til félagsins fyrr í þessum mánuði.

Chris Brazell gerir fjórar breytingar á sínu liði frá 4-4 jafntefli gegn KA í síðustu umferð en út koma þeir Samúel Kári Friðjónsson, Patrick Pedersen, Birkir Heimisson og Myles Veldman. Sá síðastnefndi er ekki í hóp.

Inn koma þá þeir Hörður Ingi Gunnarsson, Kristófer Dagur Arnarsson, Jakob Franz Pálsson og Shkelzen Veseli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Þessi lið mættust á Hlíðarenda 31. maí í leik sem Víkingar unnu 1-5. Helgi Guðjónsson og Karl Friðleifur Gunnarsson skoruðu mark hvor og Óskar Borgþórsson setti þrjú. Tryggvi Freyr Haraldsson skoraði eina mark Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spámaðurinn
Spámaður umferðarinnar er Gummi Tyrfings, leikmaður Fylkis og spáir hann þægilegum heimasigri:

Víkingur R. 3 - 1 Valur
Þægilegt fyrir Víking. Hrannar Snær kemur í liðið og stimplar sig inn með tveimur mörkum. Robert Orri kemur einnig inn og skorar úr langskoti, sláin inn. Valur mun síðan skora þegar Ekroth er að dúlla sér með boltann, rennur á rassinn og Tryggvi Hrafn sleppur einn í gegn og skorar með fallegri chippu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins í dag er Þórður Þorsteinsson Þórðarson og honum til aðstoðar eru Ragnar Þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason á sitthvorri línunni. Fjórði dómari er Arnar Ingi Ingvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Valur
Valsarar koma inn í þennan leik á vondu skriði en liðið hefur aðeins unnið einn leik eftir að Brazell tók við sem aðalþjálfari liðsins. Þeir eru með þrjú töp, einn sigur og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum en síðasti leikur var jafntefli gegn KA í ótrúlegum leik sem endaði 4-4.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur
Víkingarnir hafa auðvitað verið í ströngu prógrammi síðustu vikur og hafa þeir aðeins hikstað í deildinni á meðan en hafa þó haldið í toppsætið í gegnum það. Í síðustu fimm leikjum eru þeir með eitt tap, tvö jafntefli og tvo sigra. Þeir heimsóttu FH-inga í síðustu umferð og unnu nokkuð öruggan 4-2 sigur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Víkings og Vals í Bestu deild karla. Leikurinn fer fram í Víkinni og flautað er til leiks klukkan 19:15.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.