Leik lokið!
Keflavík vinnur hér sterkan 1-0 sigur á ÍBV. Þetta var ekki fallegt hjá heimamönnum en þetta tókst. Eyjamenn væntanlega mjög súrir að fá ekkert úr þessu miðað við hvernig seinni hálfleikurinn spilaðist.


93. mín
Þetta er að renna út í sandinn. Keflvíkingar eru að koma þessu yfir línuna.
91. mín
FÆRI!!!
Núna fær Omar Sowe dauðafæri til að jafna metin en Ásgeir Orri nær að verja frá honum af stuttu færi. Þetta var fyrsta skot ÍBV á markið í leiknum og þarna var mögulega leikurinn fyrir Eyjamenn.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
89. mín
FÆRI!!
Sigurður Arnar með skelfileg mistök í öftustu varnarlínu, Muhamed Alghoul vinnur boltann af honum og rennir honum á Marin Mudrazija sem er í alvöru færi til að ganga frá leiknum en Ari i Haraldstovu Petersen ver frá honum. Ekki góð afgreiðsla.
88. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtEiður Orri Ragnarsson
86. mín
Vicente Valor með skot yfir markið fyrir utan teig. Hættulítið.
85. mín
InnAron Lucas Vokes
ÚtArnór Ingi Kristinsson
85. mín
Eyjamenn fá horn!
82. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtStefan Alexander Ljubicic
81. mín
Bjarki Björn í ágætis færi en skot hans fer yfir markið.
81. mín
Gult spjald
Felix Örn Friðriksson
Smá hiti.80. mín
Eyjamenn eru búnir að vera 60% með boltann en hafa ekki átt eitt einasta skot á markið. Það er hægt að nálgast þessa tölfræði með því að vera í áskriftarþjónustu Fótbolta.net.
Þú getur keypt áskrift með því að smella hér!
Þú getur keypt áskrift með því að smella hér!
79. mín
Vicente Valor með langa sendingu upp völlinn sem fer í innkast. Þetta er of bitlaust hjá Eyjamönnum.
74. mín
Eiður Orri reynir aftur; fast skot fyrir utan teig sem Ari grípur.
73. mín
Eiður Orri með skot sem fer í varnarmann og fram hjá markinu. Aðeins að lifna yfir Keflvíkingunum aftur.
72. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtMilan Tomic
70. mín
Klúður hjá Ara
Færeyingurinn í marki ÍBV að hóta því að gefa mark. Sendir beint á Keflvíkingar og Alpha Conteh fær í kjölfarið ágætis tækifæri en Ari ver frá honum. Alghoul átti sendinguna, hefði því verið skemmtileg saga ef Conteh hefði skorað þarna.
67. mín
Viggó Valgeirs með hörkuskot! Rétt fram hjá markinu.
66. mín
Eyjamenn eru að stjórna ferðinni, þurfa að finna glufurnar á sterkri vörn Keflavíkur til að jafna metin.
65. mín
Núna eru Muhamed Alghoul og Alpha Conteh inn á í fyrsta sinn síðan þeir slógust á æfingu. Það er búið að halda nokkra fundi eftir það og þeir hafa sæst.
64. mín
InnMate Simicic
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
64. mín
InnAlpha Conteh
ÚtDagur Ingi Valsson
63. mín
Viggó kominn í góða stöðu á teignum en Keflvíkingar ná að trufla hann áður en Ásgeir Orri handsamar boltann.
62. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtSesar Örn Harðarson
60. mín
ÍBV búnir að vera betri í þessum seinni hálfleik og eru alveg að hóta því að jafna metin.
58. mín
DAUÐAFÆRI!!!
Þarna hefði Sigurður Arnar átt að jafna metin! Fær boltann nánast upp við markið en setur boltann einhvern veginn yfir markið.
54. mín
Stuðningsmenn ÍBV láta vel í sér heyra. Þeirra menn eru hættulegir núna.
54. mín
Eyjamenn með nokkrar tilraunir að marki. Sesar á þá síðustu en skot hans fer hátt yfir markið.
52. mín
Sesar Örn með hættulegan bolta inn á teiginn sem Keflvíkingar skalla aftur fyrir og í hornspyrnu.
51. mín
Geggjuð varsla!
Stefan Ljubicic með mjög flotta takta hérna og á fínasta skot sem Ari i Haraldstovu ver frábærlega!
50. mín
Valor svo með aðra sendingu inn á teiginn sem Ásgeir Orri grípur þægilega.
49. mín
Vicente Valor með slaka hornspyrnu inn á teiginn sem Keflvíkingar eiga ekki í vandræðum með að koma frá.
46. mín
Fyrir áhugasama var þetta tölfræðin úr fyrri hálfleik, Keflvíkingar vinstra megin og ÍBV hægra megin. Það er hægt að nálgast þessa tölfræði með því að vera í áskriftarþjónustu Fótbolta.net.
Þú getur keypt áskrift með því að smella hér!
Tölfræðin úr fyrri hálfleik

Fyrir áhugasama var þetta tölfræðin úr fyrri hálfleik, Keflvíkingar vinstra megin og ÍBV hægra megin. Það er hægt að nálgast þessa tölfræði með því að vera í áskriftarþjónustu Fótbolta.net.
Þú getur keypt áskrift með því að smella hér!
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í Keflavík og staðan er 1-0. Ekki mikið fyrir augað þessi hálfleikur en Keflvíkingar leiða.
45. mín
Omar Sowe við það að komast í góða stöðu en Ásgeir gerir vel í að koma út á móti. Sparkar boltanum í innkast.
43. mín
Boltinn fer í gegnum allan pakkann.
43. mín
Eyjamenn fá hér hornspyrnu. Ná þeir að gera eitthvað úr þessu?
40. mín
DAUÐAFÆRI!
Akkúrat þegar ég skrifa þetta, þá fær Keflavík frábært færi til að komast í 2-0. Ásgeir Páll í dauðafæri inn á teignum eftir hornspyrnu en Ari i Haraldstovu ver vel frá honum af stuttu færi.
39. mín
KR komið í 2-4 á Akureyri. Við erum ekki að fá eins mikinn veisluleik hérna, því miður.
34. mín
Axel Ingi með fyrirgjöf sem Eyjamenn skalla frá. Keflvíkingar eru að leita að öðru markinu.
30. mín
Frábært spil hjá Keflvíkingum. Stefan Ljubicic reynir svo skot en það fer beint í Sigurð Arnar.
27. mín
Gult spjald
Muhamed Alghoul
26. mín
VÁÁ!
Sindri Snær stekkur hæst upp eftir hornspyrnuna og á góðan skalla sem fer rétt fram hjá markinu. Ég hélt að þessi væri á leiðinni inn.
26. mín
Sindri Snær fær geggjað skotfæri fyrir utan teig en Felix Örn nær að henda sér fyrir skotið. Keflavík fær hornspyrnu.
23. mín
Stefan Ljubicic skoraði fyrir Keflavík

22. mín
Eiður Orri með baneitraðan bolta inn á teiginn frá hægri kanti, fær fullt af tíma, sem Stefan Ljubicic rekur höfuðið í og skorar.
Keflvíkingar verið að herða tökin eftir því sem liðið hefur á hálfleikinn og skora hérna fyrsta markið.
MARK!!!!!
Stefan Alexander Ljubicic (stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson)
Keflvíkingar taka hér forystuna.Eiður Orri með baneitraðan bolta inn á teiginn frá hægri kanti, fær fullt af tíma, sem Stefan Ljubicic rekur höfuðið í og skorar.
Keflvíkingar verið að herða tökin eftir því sem liðið hefur á hálfleikinn og skora hérna fyrsta markið.
18. mín
Bjarki Björn liggur eftir og heldur um höfuð sitt.
15. mín
Kemur fyrirgjöf inn á teiginn hjá ÍBV. Arnór Ingi hittir boltann skringilega og Ari grípur hann. Keflvíkingar vilja fá óbeina aukaspyrnu en Sveinn er alveg viss í sinni sök, dæmir ekkert.
14. mín
Eyjamenn liggja djúpt og Keflvíkingar reyna að opna þá. Gengur hægt það sem af er.
11. mín
Alghoul með fyrirgjöf sem Sigurður Arnar kemur frá markinu.
8. mín
Alghoul með skot á markið úr fínu færi sem Ari ver en svo missir hann boltann og Keflavík fær horn. Klaufalegt hjá Færeyingnum.
6. mín
Dagur Ingi með fyrirgjöf inn á teiginn sem Eyjamenn eru í smá brasi en ná að koma boltanum frá á endanum.
3. mín
DAUÐAFÆRI!
Omar Sowe fær boltann úti hægra megin og á góða fyrirgjöf inn á teiginn á Sesar sem er aleinn, en hann hittir boltann ekki nægilega vel. Þetta var frábært færi fyrir Eyjamenn að taka forystuna.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl, þetta fer senn að byrja!
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindin
Það eru tvær breytingar hjá Keflavík frá leiknum gegn Þór. Þorlákur Breki Baxter og Stefan Ljubicic snúa aftur í liðið. Marin Mudrazija og Baldur Logi Guðlaugsson fara á bekkinn. Nýju leikmennirnir Elvis Bwomono og Mate Simicic eru áfram á bekknum hjá Keflavík en Alpha Conteh er líka mættur á bekkinn eftir bann.
Það er athyglisvert að Muhamed Alghoul og Alpha Conteh hafa ekki enn spilað saman frá því þeir slógust á æfingu í lok síðasta mánaðar. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net sló Alpha til Mua, eins og hann er kallaður, eftir að hafa verið ögrað og fór það svo að Mua nefbrotnaði.
Alghoul er núna búinn að jafna sig af nefbrotinu og var með í síðasta leik gegn Þór þar sem Conteh var í banni. Núna eru þeir báðir klárir í slaginn en Conteh, sem hefur verið virkilega flottur í sumar, byrjar á bekknum.
ÍBV gerir líka tvær breytingar því Mattias Edeland og Arnór Ingi Kristinsson koma inn í liðið fyrir Pisco og Eið Atla Rúnarsson.

Það er athyglisvert að Muhamed Alghoul og Alpha Conteh hafa ekki enn spilað saman frá því þeir slógust á æfingu í lok síðasta mánaðar. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net sló Alpha til Mua, eins og hann er kallaður, eftir að hafa verið ögrað og fór það svo að Mua nefbrotnaði.
Alghoul er núna búinn að jafna sig af nefbrotinu og var með í síðasta leik gegn Þór þar sem Conteh var í banni. Núna eru þeir báðir klárir í slaginn en Conteh, sem hefur verið virkilega flottur í sumar, byrjar á bekknum.
ÍBV gerir líka tvær breytingar því Mattias Edeland og Arnór Ingi Kristinsson koma inn í liðið fyrir Pisco og Eið Atla Rúnarsson.

Fyrir leik
Það er sól og blíða í Keflavík, menn eru byrjaðir að tromma og það eru heitir hamborgarar. Gerist ekki betra.
Fyrir leik
Það er mikill andi í Keflavík fyrir leiknum og allir þeirra bestu menn eru fit. 2.13 á Keflavík sigur á Epic er frábært veðmál að mínu mati.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 23, 2026
Fyrir leik
Dæmir sinn fyrsta leik í Bestu deildinni
Dómari leiksins verður Sveinn Arnarsson en hann er að fara að dæma sinn fyrsta leik í deildinni.
Hann hefur undanfarin ár starfað sem fjórði dómari í Bestu deildinni en þetta verður hans fyrsti leikur sem aðaldómari í efstu deild karla.
Patrik Freyr Guðmundsson og Jovan Subic verða aðstoðardómarar og Jóhann Ingi Jónsson fjórði dómari.

Hann hefur undanfarin ár starfað sem fjórði dómari í Bestu deildinni en þetta verður hans fyrsti leikur sem aðaldómari í efstu deild karla.
Patrik Freyr Guðmundsson og Jovan Subic verða aðstoðardómarar og Jóhann Ingi Jónsson fjórði dómari.

Fyrir leik
Jónas Guðni í viðtal
Varstu búin/n að hlusta á útvarpsþáttinn frá því í gær? Jónas Guðni Sævarsson, yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík, var í áhugaverðu viðtali í þættinum.
Fyrir leik
Ótrúlegur leikur fyrr í sumar
Leikurinn var svakalegur þegar þessi lið mættust fyrr í sumar í Vestmannaeyjum. Þá hafði ÍBV betur, 6-1. ÍBV hafði ekki unnið í fyrstu átta leikjum sínum fram að leiknum gegn Keflavík en komst svo á ágætis skrið eftir þann leik. Róbert Elís Hlynsson skoraði tvö mörk í þeim leik fyrir ÍBV.


Fyrir leik
Spáin góða
Guðmundur Tyrfingsson, sóknarmaður Fylkis, spáir í leikina sem eru framundan í Bestu deildinni. Hann spáir því að Keflavík vinni hér í dag.
Keflavík 2 - 1 ÍBV
Mikið undir í þessum leik fyrir bæði lið. Það verður brjálað rok í þessum leik, eins og alltaf, en það sakar ekki því þetta eru tvö lið sem kunna vel á rokið og elska það. Keflavík mun vinna þennan leik. Nacho Heras skorar úr horni. Síðan bætir Sindri Snær öðru markinu við, eins og refur í boxinu, sem mun minna á hið fræga mark hans fyrir ÍA árið 2021 í „Great Escape“-leiknum í Keflavík. Halldór Jón skorar svo með skalla því hann er orðinn sköllóttur.

Keflavík 2 - 1 ÍBV
Mikið undir í þessum leik fyrir bæði lið. Það verður brjálað rok í þessum leik, eins og alltaf, en það sakar ekki því þetta eru tvö lið sem kunna vel á rokið og elska það. Keflavík mun vinna þennan leik. Nacho Heras skorar úr horni. Síðan bætir Sindri Snær öðru markinu við, eins og refur í boxinu, sem mun minna á hið fræga mark hans fyrir ÍA árið 2021 í „Great Escape“-leiknum í Keflavík. Halldór Jón skorar svo með skalla því hann er orðinn sköllóttur.

Fyrir leik
Eyjamenn í lægð
Á meðan hefur ekki gengið nægilega vel hjá Eyjamönnum upp á síðkastið. Þeir áttu ágætis kafla fyrir nokkrum vikum en hafa svo dottið aftur niður núna og ekki unnið í síðustu sex leikjum sínum. ÍBV situr þessa stundina í níunda sæti, einu stigi frá fallsvæðinu.


Fyrir leik
Keflavík það lið sem hefur komið mest á óvart
Keflavík er það lið í Bestu deildinni sem hefur komið mest á óvart í sumar en liðið situr í sjötta sæti deildarinnar með 25 stig eftir 19 leiki. Það spáðu nánast allir Keflvíkingum fyrir tímabilið en þetta hefur verið heldur betur flott hjá þeim.
Fyrir leik
Góðan daginn!
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og ÍBV í Bestu deild karla! Hér munum við fylgjast með öllu því sem gerist í leiknum.








