Leik lokið!
Haukar tryggja sér sæti í Lengjudeildina
Þetta er búið, Haukar eru komnir upp í Lengjudeildina, staðfest. Takk fyrir að fylgjast með!
92. mín
MAAAARK!
Ólafur Darri Sigurjónsson
Ólafur fær boltann fyrir utan teig og kemur sér inn í teigin, fer framhjá varnarmanni og skýtur framhjá markmanninum.91. mín
Viktor Daði með fast skot rétt framhjá marki Hauka. Menn eru sofandi.
89. mín
Gult spjald
Óliver Steinar Guðmundsson
88. mín
MAAAARK!
Rúnar Helgi Björnsson (stoðsending: Gunnlaugur Rafn Ingvarsson)
Þetta var of einfalt, Gunnlaugur sendir í gegnum vörn Hauka beint á Rúnar sem klobbar Svein Óla. Menn eru smá sofandi.87. mín
Rúnar með sendingu inn í teig en Einar Karl stoppar sendinguna og kemur boltanum burt.
86. mín
Ævar Segatta með neglu beint í rassinn hans Jón Arnar.
83. mín
InnMarkús Breki Steinsson
ÚtTómas Atli Björgvinsson
83. mín
Ævar Segatta fær boltann langt fyrir utan teig, lætur vaða en skotið er yfir markið.
81. mín
Þetta voru ótrúlegar 3 mínútur, 3 mörk á 3 mín. Ég var í erfiðleikum og ég afsaka það.
80. mín
InnViktor Daði Sævaldsson
ÚtAires Rodrigo Da Encarnacao Sousa
77. mín
InnÓlafur Darri Sigurjónsson
ÚtSigurður Hrannar Þorsteinsson
77. mín
InnÆvar Daði Segatta
ÚtDaði Snær Ingason
76. mín
Hættuleg aukaspyrna fyrir Hauka, Óliver tekur hana og kemur með háan inn í teiginn. Sigurður rís manna hæst og nær að skalla í boltann. Auðunn snerti boltann en það er ekki nóg.
MAAAARK!
Sigurður Hrannar Þorsteinsson (stoðsending: Óliver Steinar Guðmundsson)
Það er svo mikið í gangi að ég er í erfiðleikum með að fylgjast með.Hættuleg aukaspyrna fyrir Hauka, Óliver tekur hana og kemur með háan inn í teiginn. Sigurður rís manna hæst og nær að skalla í boltann. Auðunn snerti boltann en það er ekki nóg.
75. mín
InnBjarmi Fannar Óskarsson
ÚtViktor Smári Sveinsson
74. mín
MAAAARK!
Jón Gísli Stefánsson (stoðsending: Tómas Atli Björgvinsson)
Tómas keyrir upp vinstri kantinn og sendir fram fyrir markið, boltinn fer í varnarmann og skoppar inn í teignum og endar hjá Jón Gísla sem skorar í autt markið.73. mín
MAAAARK!
Hjörtur Freyr Ævarsson
Spil fyrir utan teig og svo skot, markvörðurinn ver og boltinn dettur á Hjört sem skorar í autt markið. Vörnin sofandi hjá heimamönnum.71. mín
InnJón Gísli Stefánsson
ÚtArnar Númi Gíslason
71. mín
InnBreki Freyr Ágústsson
ÚtPablo Oshan Punyed Dubon
69. mín
Atli Þór með sendingu inn í teig og Hektor nær ekki að skalla í boltann.
65. mín
Markavélin!
Sigurður Hrannar Þorsteinsson (stoðsending: Tómas Atli Björgvinsson)
Tómas keyrir upp vinstri kantinn og rennir boltanum inn í teiginn og Sigurður slædar og potar í boltann og inn í netið. Tómas var að fá gult fyrir að rífa kjaft þetta var gott svar.65. mín
Gult spjald
Tómas Atli Björgvinsson
Steinþór tekur Jón Arnar niður og dettur ofan á hann, fer me hnéð í hann. Heimamenn er ekki ánægðir, Tómas og Einar fara að rökræða við dómarann.63. mín
Pablo á hægri kantinum skýtur beint á Auðunn.
62. mín
InnSævar Þór Fylkisson
ÚtSindri Sigurðarson
62. mín
InnAtli Þór Sindrason
ÚtGabriel Lukas Freitas Meira
60. mín
Stönginnn
Daði með flotta sendingu inn í teig á Sigurð Hrannar sem rennur og rétt nær að pota í boltann og setur hann í stöngina. Haukar eru hársbreidd frá því að skora.
58. mín
Daði með sendingu inn í teig en varnarmenn gestana ná að koma boltanum burt.
57. mín
Pablo vippar á Jón en Auðunn er fljótur út úr markinu og skallar boltann burt.
57. mín
Þetta er víti dómari
Pablo setur Sigurð Hrannar í gegn og hann er tekin niður í boxinu sem truflar hann og skotið fer framhjá markinu. Þetta er víti allan daginn, veit ekki hvað dómarinn er að pæla þarna. Varnarmaðurinn fer ekki í boltann bara manninn.
56. mín
Viktor Smári með háa sendingu inn í teig sem Sveinn Óli grípur.
55. mín
Jón Arnar sendur á Pablo inn í teig, þröngt færi en skotið hans Pablo er blokkað af varnarmanni.
53. mín
Varsla
Jón Arnar lætur vaða fyrir utan teiginn, Auðunn ver en hann missir boltann frá sér en hann nær boltanum aftur. Gaui Lýðs vill meina að Gunnlaugur senti á Auðunn og Auðunn tekur upp boltann, veit ekki með það.
52. mín
Jón Arnar fellur niður í teignum, ekki víti að mínu mati.
51. mín
Gult spjald
Daði Snær Ingason
50. mín
Gunnlaugur með lélega sendingu til baka á Frey sem missir boltann frá sér en Auðunn nær í boltann á undan Arnari Núma.
48. mín
Jón Arnar á vinstri kantinum keyrir inn í teig og sendir fram fyrir markið en varnarmenn gestana ná að koma fyrir sendinguna.
48. mín
Selfyssingar unnu 3-1 gegn Þrótti Vogum þannig að Haukar geta ekki unnið deildina ef þeir vinna en þeir tryggja sér sæti upp um deild með sigri í dag.
46. mín
Heimamenn byrja vel, Arnar númi sendir Jón Arnar í gegn en hann missir boltann frá sér.
46. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtMagnús Máni Sigursteinsson
46. mín
Seinni hálfleikur
Gestirnir byrja.
45. mín
Hálfleikur
45 mín búnar og Haukar eru á leiðinni í Lengjudeildina, nema ef Dalvík/Reynir getur gert eitthvað í seinni og eyðilagt partýið. Sjáum til eftir korter.
45. mín
Einar Karl með hættulega aukaspyrnu á Punyed sem skallar framhjá, Punyed fær í bakið eftir þetta.
43. mín
Stönnnggg
Gestirnir með hræiðlega sendingu til baka, Auðunn er langt út úr markinu, Arnar Númi fær boltann og skýtur lágt en Auðunn ver með fótunum og boltinn fer í stöngina. Haukar geta verið tvö eða þrjú núll yfir í þessum fyrri.
40. mín
Auðunn með flotta vörslu á nær stönginni.
36. mín
MAAAARK!
Sigurður Hrannar Þorsteinsson (stoðsending: Pablo Oshan Punyed Dubon)
Pablo sendir á Sigurð Hrannar sem tekur hræðilega snertingu, boltinn fer upp í loftið og yfir varnarmenn Dalvíkur/Reynis, en Sigurður keyrir áfram og eltir boltann. Auðunn hleypur út úr markinu en Sigurður kemst í boltann á undan öllum og skýtur framhjá markmanninum. Magnús Máni á að gera betur þarna, hann var tekinn.34. mín
Arnar Númi reynir að senda Jón Arnar í gegn en sendingin aðeins of föst.
32. mín
Haukar fá enn eitt annað hornið. Hornið fer nú ekki neitt.
30. mín
Haukar eru miklu meira með boltann en strákarnir af norðan eru mættir með rútuna sem er pörkuð fyrir framan mark gestana. Hörður Snævar Mourinho, eins og hann er kallaður.
28. mín
Darraðadans
Einar Karl tekur horn, boltinn skoppar og inn í teignum og mikill darraðadans, Arnar Númi reynir skot sem fer framhjá markinu.
26. mín
Af línu!
Sending í gegnum vörn gestana á Arnar Núma sem fer framhjá markmanninum, færið er þröngt en hann lætur vaða og það er varið af línu.
23. mín
Hallur með góða fyrirgjöf á Daða Snæ sem skallar framhjá markinu.
21. mín
Heimamenn ekki ánægðir
Einar Karl tekur stutt horn, sending beint inn í teiginn. Daði Snær er straujaður inn í teig, heimamenn eru brjálaðir og vilja víti.
20. mín
Óliver fær boltann fyrir utan teiginn, lætur vaða en skotið fer í varnarmann og í horn.
19. mín
!
Jón Arnar dettur inn í teignum, heimamenn vilja víti en fá ekki. Mér sýndist þetta vera víti en kannski hef ég rangt fyrir mér, þetta var tæpt.
18. mín
Einar Karl lætur vaða langt frá, Auðunn var ekki í vandræðum með þetta skot sem fór framhjá.
15. mín
Gaui Lýðs, þjálfari Hauka er ánægður með spilamennsku síns liðs í dag.
14. mín
Hár bolti inn í teig gestana á Sigurð sem hælar boltann til Daða sem tekur skotið en það er blokkað.
11. mín
Arnar Númi fær boltann á kantinum, cuttar inn en varnarmenn Dalvíkur/Reynis blokka skotið.
11. mín
Stuðningsmenn Hauka mættir með gjallarhornið, stemming í stúkunni.
10. mín
Daði Snær fær boltann á kantinum og ætlar að koma sér inn í teiginn en hann rennur og gestirnir fá markspyrnu.
8. mín
Rétt framhjá
Sveinn Óli með sendingu beint á Sindra Sig, sem keyrir inn í teiginn og skýtur framhjá markinu.
6. mín
Sigurður Hrannar fær boltann inn í teignum, nær að snúa sér og lætur vaða. Auðunn Ingi með svaka vörslu.
4. mín
Hjörtur Freyr rennir boltanum inn í teiginn, Hektor fær boltann og nær að snúa sér en skotið er framhjá markinu.
2. mín
Varslaaa
Jón Arnar á hægri kantinum með háa sendingu inn í teig, beint á Daða Snær sem skallar fast en Auðunn Ingi ver.
1. mín
Sigurður Hrannar fær boltann inn í teignum en hann missir hann frá sér og gestirnir fá markspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja.
Fyrir leik
Aðeins um gestina
Dalvík/Reynir situr í 8. sæti deildarinnar með 22 stig eftir 18 leiki. Liðið hefur unnið sex leiki, gert fjögur jafntefli og tapað átta, en sex af þeim átta töpum hafa komið á útivelli. Formið hefur verið slakt að undanförnu og Dalvík/Reynir hefur nú leikið átta deildarleiki í röð án sigurs. Síðasti sigur liðsins kom gegn KFA þann 27. júní.
Dalvík/Reynir unnu fyrri leik liðanna 3-0. Sousa og Sindri Sigurðarson skoruðu fyrir Dalvík/Reyni, en Einar Karl skoraði einnig sjálfsmark.

Dalvík/Reynir unnu fyrri leik liðanna 3-0. Sousa og Sindri Sigurðarson skoruðu fyrir Dalvík/Reyni, en Einar Karl skoraði einnig sjálfsmark.

Fyrir leik
Tíðindi frá heimamönnum
Það er staðfest að Einar Karl Ingvarsson, miðjumaður Hauka ætlar að spila fyrir Hauka næsta sumar. Einar Karl skrifaði undir framlengingu á samningnum sínum út næsta tímabil.


Fyrir leik
Geta keypt sér farmiða upp í Lengjudeildina í dag
Það er stór dagur fram undan hjá Haukum. Með sigri eða jafntefli í dag tryggja Haukar sér sæti í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Ef Selfoss tapar fyrir Þrótti Vogum í dag verða Haukar þar að auki krýndir deildarmeistarar.
Selfoss spilar á móti Þrótti Vogum kl 14:00. Selfoss situr í 2. sæti með 33 stig, á meðan Haukar tróna á toppnum með 41 stig. Selfyssingar verða að vinna ef þeir hafa drauma um að vinna deildina.
Eftir þennan leik eru 3 leikir eftir eða 9 stig í pottinum, ef allt fer á versta veg fyrir heimamenn þá getur 2. deildin orðið ansi spennandi.

Selfoss spilar á móti Þrótti Vogum kl 14:00. Selfoss situr í 2. sæti með 33 stig, á meðan Haukar tróna á toppnum með 41 stig. Selfyssingar verða að vinna ef þeir hafa drauma um að vinna deildina.
Eftir þennan leik eru 3 leikir eftir eða 9 stig í pottinum, ef allt fer á versta veg fyrir heimamenn þá getur 2. deildin orðið ansi spennandi.

Fyrir leik
Dómaratríóið
Brynjar Þór Elvarsson er með flautuna í dag, Arnþór Helgi Gíslason og Óliver Thanh Tung Vú eru með flöggin.


Fyrir leik
Birtu völlurinn heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Hauka og Dalvíkur/Reynis í 19. umferð 2. deild karla.






