Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Sambandsdeildin
Gradski Stadion Banja Luka
Borac
Borac
3 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Samtals 6 - 2
0 - 117' Damir Hrelja (sjm) Sebastián Herera 55'1 - 1Luka Juricic 66'2 - 1 Pavle Dajic 90'3 - 1
Dómari: Anastasios Papapetrou (Grikkland)
Leik lokið!
Víkingar úr leik í Evrópu
+5

Eftir lofandi byrjun á leiknum hrynja Víkingar úr leik í seinni hálfleiknum. Svekkjandi að hafa ekki náð að gera meira í þessum leik.
Borac
90. mín
Óþarfa mark

Pavle Dajic (stoðsending: Jurich Carolina)

Víkingar með allt frammi og Borac sækja hratt og ná inn þessu viðbjóðslega þriðja marki.
Varamaðurinn rennir boltanum undir Aron Snær í marki Víkinga.
90. mín
+1
Sveinn Aron dæmdur brotlegur í hornspyrnu hjá Víkingum. Sennilega rétt.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
90. mín
20 - 11 Víkingum í vil í brotum í þessum leik. Víkingar verið grófari að marki Grikkjans.
89. mín
Víkingar aðeins að færa sig ofar en eru þó ekki að ná að ógna að neinu viti.
87. mín
Gylfi Þór með skot sem fer af varnarmanni og í horn.
86. mín
Það er fátt sem bendir til annars en að heimamenn sigli þessu heim en það má alltaf vonast eftir kraftaverkum.

Ótrúlegri hlutir hafa gerst.
Víkingur R.
85. mín
InnSveinn Aron Guðjohnsen
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
Sveinn Aron að fá sínar fyrstu mínútur í búningi Víkings.
Borac
84. mín
InnAnte Roguljic
Út Stefan Savic
Borac
84. mín
Inn Pavle Dajic
ÚtAmer Hiros
Borac
84. mín
InnSinisa Sanicanin
Út Damir Hrelja
Borac
81. mín
Gult spjald

Amer Hiros

80. mín
Grikkinn geðugi á flautunni er mikill spjallari og nýtir öll tækifæri til að taka smá stöðufundi.

Ármann Ingi átti flottan sprett framhjá Sebastian Herera og vann horn.
Borac
78. mín
Gult spjald

Stefan Savic

Fer fyrir aukaspyrnu Víkinga.
77. mín
Verkefnið er ekki ómögulegt þó það sé orðið mun erfiðara.

Víkingar verða að skora og það helst sem strax til að eiga von.
Víkingur R.
76. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtStígur Diljan Þórðarson
Borac
74. mín
Inn Sandi Ogrinec
ÚtEsiti Anderson
Borac
74. mín
InnMatej Deket
ÚtLuka Juricic
Luka Juricic hefur verið eins og ljár í síðu Víkinga í þessu einvígi.
72. mín
Víkingar að reyna koma boltanum inn í teig Borac en þeir verjast vel.
Víkingur R.
68. mín
Gult spjald

Aron Snær Friðriksson

Borac
66. mín
Borac gerir brekkuna brattari

Luka Juricic (stoðsending: Nemanja Jaksic)

Heimamenn með heppna með sér þegar þeir skakklappast í gegn og renna boltanum svo fyrir markið á Luka Juricic sem klárar þetta auðveldlega.

Ojjj hvað þetta var þreytt!
65. mín
Þreföld skipting hjá Víkingum. Vonandi að þetta gefi þeim þann kraft sem þeir þurfa.
Víkingur R.
64. mín
InnÁrmann Ingi Finnbogason
ÚtHrannar Snær Magnússon
Víkingur R.
64. mín
InnNikolaj Hansen
ÚtAron Elís Þrándarson
Víkingur R.
64. mín
InnDaníel Hafsteinsson
ÚtViktor Örlygur Andrason
62. mín
Gylfi Þór með aukaspyrnu fyrir markið sem Jurkas slær frá marki en Víkingar ná ekki frákastinu.
Borac
61. mín
Gult spjald

Esiti Anderson

Brotlegur í baráttu við Valdimar Þór.
58. mín
Heimamenn byrjað seinni hálfleikinn mun betur. Víkingar verða að finna kraftinn sem þeir höfðu í fyrri aftur.
Borac
55. mín
NEEEEI!!!!!!

Sebastián Herera

Þeir skora úr aukaspyrnunni!

Herera með fast skot sem endar í netinu og kemur Borac aftur í tveggja marka forystu í einvíginu.
54. mín
Gylfi Þór dæmdur brotlegur rétt fyrir utan teig og Borac fær aukaspyrnu á hættulegum stað.

Gylfi ekki parsáttur með að vera dæmdur brotlegur þarna.
53. mín
Gylfi Þór tekur spyrnuna en lyftir boltanum of hátt og hann fer vel yfir.
52. mín
Gylfi Þór Sigurðsson og Helgi Guðjónsson standa yfir boltanum eftir að Víkingar fengu aukaspyrnuna þar sem brotið var á Hrannari Snær.
Borac
52. mín
Gult spjald

Bart Meijers

Tekur Hrannar Snær niður og fær verðskuldað spjald.
51. mín
Víkingar í nauðvörn fyrstu mínúturnar í seinni.

Okkar menn verða að standa þetta af sér.
50. mín
Kraftur í heimamönnum út úr hálfleiknum.
48. mín
Mátti ekki miklu muna!
Luka Juricic með tilraun rétt framjá markinu!
47. mín
Aron Snær!
Amer Hiros á skot sem fer að Gunnari Vatnhamar og Aron Snær á frábæra vörslu!
Luka Juricic setur boltann svo yfir af stuttu færi!

Mátti ekki miklu muna þarna!
46. mín
Tölfræðin hingað til
Mynd: Uefa

46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Borac sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Víkingar leiða í hálfleik!
Að mínu mati verið betri í leiknum og full ástæða til þess að vera bjartsýnir fyrir seinni hálfleiknum.

Tökum okkur stutta pásu og snúm svo aftur í seinni.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
45. mín
Fyrirgjöf ætluð Stíg Diljan en hann er dæmdur brotlegur.
Víkingur R.
43. mín
Gult spjald

Viktor Örlygur Andrason

Fer full hátt með fótinn og fær spjald fyrir það.
42. mín
Heimamenn ekkert að flýta sér enda vinnur tíminn með þeim.
Víkingur R.
38. mín
Gult spjald

Peter Oliver Ekroth

Ekroth fyrstur í svörtu bókina.

Ansi litlar sakir að mínu mati, heldur aðeins í Juricic.
37. mín
Leikar aðeins að jafnast hérna eftir yfirburði Víkinga í upphafi leiks.
35. mín
Valdimar Þór með skemmtilegt brot. Grípur um fæturna á leikmanni Borac eftir að hafa misst hann frá sér.
30. mín
Borac aðeins að minna á sig en vörn Víkinga heldur.
29. mín
Hættuleg staða sem heimamenn voru að koma sér í en Stefan Savic skóflar boltanum yfir eftir sendingu frá Amer Hiros.
28. mín
SLÁIN!
Hrannar Snær með góða fyrirgjöf fyrir markið sem Aron Elís nær að koma fæti í og hann fer í þverslána og niður en því miður ná Borac að koma þessu frá.
25. mín
Heimamenn að halda vel í boltann þessa stundina þó án þess að vera skapa sér neinar stöður.
23. mín
Rétt framhjá!
Gylfi Þór Sigurðsson næstum með vintage Gylfa mark fyrir utan teig en nær ekki að snúa hann á markið!

Þetta hefði verið svaðalegt mark.
21. mín
Stígur með frábæra sendingu fyrir markið en Valdimar nær ekki að stýra boltanum í átt að marki.

Víkingar eru miklu betri hérna í upphafi!
20. mín
Stefan Savic með skot sem Aron Snær ver og virðist halda í leik en Grikkinn gefur merki um horn. Fær svo eitthvað í eyrað og Víkingar fá markspyrnuna.
Víkingur R.
17. mín
JÁÁ!!!

Damir Hrelja (stoðsending: Stígur Diljan Þórðarson) (sjm)

Víkingar komast yfir!!! Stígur Diljan fær boltann úti vinstra og er að koma sér inn á teig og á sendingu fyrir markið sem fer af varnarmanni Borac og inn á nærstönginni.

Verður líklega talið sem sjálfsmark þó ég vilji gefa Stíg þetta en það telur þó jafn mikið!
12. mín
Borac hættulegir þegar þeir fá tækifæri á breikinu. Virðist vera uppleggið að leyfa Víkingum að koma framar og vera tilbúnir að sækja svo hratt í bakið á þeim.
10. mín
Viktor Örlygur með skot sem fer af varnarmanni og framhjá.

Víkinga fá sína aðra hornspyrnu.
8. mín
Helgi Guðjóns nær ekki að lyfta boltanum yfir fyrsta mann úr horninu en Grikkinn dæmir Víkinga brotlega inn í teig svo það kemur ekki að sök.
7. mín
Víkingar að fá sína fyrstu hornspyrnu. Boltinn skýst af leikmanni Borac og aftur fyrir.
5. mín
Heimamenn fá fyrsta horn leiksins.

Karl Friðleifur með góða tæklingu.
4. mín
Víkingar eru mjög grimmir hérna á upphafsmínútum.

Verðum að láta þetta telja.
2. mín
Stígur Diljan í kjörstöðu en hittir boltann illa og hann fer í innkast.
2. mín
Fyrirgjöf fyrir markið sem Aron Elís hælar áfram en vantaði Víking þarna og lítil hætta.
1. mín
Leikur hafinn
Víkingar sparka þessu af stað!
KOMA SVO!
Fyrir leik
Liðin komin út á völl
Víkingar taka hringinn og fara yfir síðustu atriðin fyrir leik.

KOMA SVO VÍKINGAR!!
Fyrir leik
28 gráður í Bosníu
Það er heitt í Bosníu þegar Víkingar fara í úrslitaleik um sæti í Sambandsdeildinni.

Það er stutt í leik!
Fyrir leik
Sölvi gerir tvær breytingar
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir tvær breytingar á sínu liði frá fyrri leiknum. Þeir Valdimar Þór Ingimundarson og Hrannar Snær Magnússon koma inn í liðið og þeir Nikolaj Hansen og Ármann Ingi Finnbogason taka sér sæti á bekknum. Daníel Hafsteinsson er að snúa til baka eftir meiðsli og er til taks á bekknum.

Leikurinn er fyrsti byrjunarliðsleikur Hrannars í Evrópukeppni. Gunnar Vatnhamar spilar sinn síðasta leik fyrir Víking í kvöld en hann er á leið til Vejle í Danmörku.

Takist Víkingi ekki að vinna upp tveggja marka forystu meistaranna frá Bosníu og Hersegóvínu mun þátttöku Íslandsmeistaranna í Evrópu ljúka í kvöld.
Fyrir leik
Stuðlarnir eru okkur ekki hliðhollir í kvöld
Á Epicbet er stuðullinn á því að Víkingur vinni upp tveggja marka forskot og komi sér áfram 10,4. Samanborið er stuðullinn á því að Borac fari áfram 1,05. Það eru því taldar minna en 10% líkur á því að Víkingur nái að snúa einvíginu sér í vil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Hálfur miljarður undir fyrir Víkinga í kvöld
Visir fjallar um að Víkingur myndi að lágmarki tryggja sér rúmar 447 milljónir íslenskra króna með því að komast áfram.

Samkvæmt opinberu skjali UEFA mun hvert lið, af þeim 36 sem tryggja sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu, fá í sinn hlut í kringum 3.1 milljón evra.

Mynd: EPA


Með því að tryggja sér sæti í deildarkeppninni koma síðan frekari möguleikar á því að vinna sér inn meiri pening í gegnum góðan árangur.

„Við erum vissulega í erfiðri stöðu en það er samt mikil trú í okkar liði. Það var auðvitað ekki gott að tapa með tveimur mörkum í fyrri leiknum en þannig er staðan og við trúum því að við getum snúið henni við," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, á fréttamannafundi á Gradski-leikvangium í Banja Luka í gær.

Fyrir leik
Frá æfingu Víkings á keppnisvellinum
Mynd: Hörður Ágústsson

Mynd: Hörður Ágústsson

Mynd: Hörður Ágústsson

Fyrir leik
Viðtöl tekin eftir æfingu í gær

Fyrir leik
Bakið er þétt upp við vegg en trúin er enn til staðar
„Við erum vissulega í erfiðri stöðu en það er samt mikil trú í okkar liði. Það var auðvitað ekki gott að tapa með tveimur mörkum í fyrri leiknum en þannig er staðan og við trúum því að við getum snúið henni við," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, á fréttamannafundi á Gradski-leikvangium í Banja Luka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


„Hvað varðar aðstæður þá erum við vanir svona aðstæðum núna. Við höfum spilað tvisvar í Ungverjalandi við álíka aðstæður. Það verður heitt og spilað á náttúrulegu grasi, við munum ekki nota það sem afsökun ef við náum ekki okkar besta fram á morgun[í dag]."

Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómarateymið í kvöld kemur frá Grikklandi og er eftirfarandi:

Referee: Anastásios Papapétrou GRE
Assistant Referee 1: Trýfon Petrópoulos GRE
Assistant Referee 2: Andréas Fotópoulos GRE
Fourth Official: Fótios Polychrónis GRE
Video Assistant Referee: Ioánnis Papadópoulos GRE
Assistant Video Assistant Referee: Stéfanos Koumbarákis GRE
UEFA Referee Observer: Helmut Fleischer GER
UEFA Delegate: Tarik Shamel ENG

Anastasios Papapetrou hefur áður dæmt hjá Íslensku liði í Evrópu en hann dæmdi leik Breiðabliks og Zrinjski Mostar á Kópavogsvelli í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin til Bosníu þar sem Víkingar eru mættir með bakið upp við vegg gegn FK Borac í seinni leik liðana í umspilinu um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Víkingar eru 3-1 undir og þurfa að kafa eftir öllu sem þeir eiga til þess að snúa þessu einvígi við.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.