27.08.26 - 10:18
Elvar Geir Magnússon
Um hálfur milljarður undir fyrir Víking

Gylfi Þór Sigurðsson á æfingu í Bosníu í gær.

Mynd: Hörður Ágústsson

Íslandsmeistarar Víkings mæta Borac Banja Luka í Bosníu klukkan 18:30 í kvöld í seinni leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu, þar sem allt er undir.
Víkingar töpuðu fyrri leiknum gegn Borac í Víkinni, 1-3, og þurfa því að eiga stórleik ætli þeir sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í annað sinn.
Visir fjallar um að Víkingur myndi að lágmarki tryggja sér rúmar 447 milljónir íslenskra króna með því að komast áfram.
Samkvæmt opinberu skjali UEFA mun hvert lið, af þeim 36 sem tryggja sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu, fá í sinn hlut í kringum 3.1 milljón evra.

TENGT EFNI
Sölvi í Bosníu: Trúum því að við getum snúið stöðunni við
Með því að tryggja sér sæti í deildarkeppninni koma síðan frekari möguleikar á því að vinna sér inn meiri pening í gegnum góðan árangur.
„Við erum vissulega í erfiðri stöðu en það er samt mikil trú í okkar liði. Það var auðvitað ekki gott að tapa með tveimur mörkum í fyrri leiknum en þannig er staðan og við trúum því að við getum snúið henni við," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, á fréttamannafundi á Gradski-leikvangium í Banja Luka í gær.

Heimild: Vísir

Mynd: Hörður Ágústsson