25.08.26 - 08:40
Elvar Geir Magnússon
Grikki dæmir leik Víkings í Bosníu - „Hélt fundi fyrir allt og ekkert“

Anastasios Papapetrou dæmdi á Kópavogsvelli í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Anastasios Papapetrou dæmdi á Kópavogsvelli í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það verður reyndur grískur dómari með flautuna þegar Víkingur heimsækir Borac til Bosníu á fimmtudaginn í síðari viðureign liðanna í umspili Sambandsdeildarinnar.
Víkingur er í brekku eftir 1-3 tap á heimavelli og þarf að sýna sínar bestu hliðar í seinni leiknum til að komast í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Anastasios Papapetrou dæmir leikinn en hann er 41 árs. Papapetrou dæmdi leik Breiðabliks og Zrinjski Mostar (1-2) á Kópavogsvelli í fyrra og var Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, ekki sérstaklega hrifinn af hans frammistöðu, gaf honum 4 í einkunn.

„Dómgæsla Grikkjans og hans teymi kom ekki að sök í úrslitunum. Hins vegar fannst mér hann arfaslakur. Hann hélt fundi fyrir allt og ekkert, ég er frekar viss um að Viktor Karl hafi einu sinni sagt aðeins svekktur þegar dæmt var á hann „Ég náði boltanum". Þá var Viktor bara tekinn á heljarinnar fund fyrir það að voga sér að yrða á manninn. Spjöldin virkuðu ekki hafa neina línu," skrifaði hann í skýrslu sinni um leikinn.
Allt dómarateymi leiks Borac og Víkings á fimmtudaginn kemur frá Grikklandi.
Banjaluka (Gradski stadion Banja Luka)
BORAC (BIH) [3:1] VÍKINGUR REYKJAVÍK (ISL)
Referee: Anastásios Papapétrou GRE
Assistant Referee 1: Trýfon Petrópoulos GRE
Assistant Referee 2: Andréas Fotópoulos GRE
Fourth Official: Fótios Polychrónis GRE
Video Assistant Referee: Ioánnis Papadópoulos GRE
Assistant Video Assistant Referee: Stéfanos Koumbarákis GRE
UEFA Referee Observer: Helmut Fleischer GER
UEFA Delegate: Tarik Shamel ENG