Fotbolti.net
Andri Stefánsson
Umspil Lengjudeildarinnar
PEPSI völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
2 - 1
Njarðvík
Njarðvík
Samtals 3 - 1
Baldur Hannes Stefánsson 28'1 - 0Sigurður Egill Lárusson (víti) 53'2 - 02 - 168' Valdimar Jóhannsson
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Þróttarar komnir í úrslitaleikinn

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og Njarðvíkingar áttu fá svör við því. Þróttur skapaði mikið af færum og sigurinn verðskuldaður. Njarðvíkingar áttu góðan kafla undir lok leiksins en það dugði ekki til.

Bestu leikmenn

1. Þórhallur Ísak Guðmundsson

Þórhallur var magnaður í dag. Öryggið uppmálað í öllum sínum aðgerðum og varði nokkrum sinnum meistaralega.

2. Aron Snær Ingason

Sá hefur verið funheitur undanfarið og hann var frábær í dag. Aron skapaði mikinn usla allan leikinn og átti stórkostlega sendingu í gegn á Örn Braga sem fiskaði vítaspyrnuna.

Atvikið

Þetta annað mark sem Sigurður Egill skoraði. Frábær vítaspyrna sem gerði út um leikinn og einvígið.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Þróttarar eru komnir í úrslitaleikinn á Laugardalsvelli en tímabil Njarðvíkur er lokið.

Vondur dagur

Oumar Diouck sást mjög lítið í þessum leik og klúðraði dauðafæri sem er alls ekki líkt leikmanni eins og honum.

Dómarinn - 7

Vel dæmdur leikur hjá Elíasi. Kannski aðeins of spjaldaglaður á lokamínútunum þegar það fór að sjóða upp úr en annars flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.