SKÝRSLAN: Akureyri er gul og blá!
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mjög kaflaskiptur leikur, bæði lið frekar lokuð bakatil í fyrri hálfleik og var mikill hiti í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik komu Þórsarar sterkari inn í byrjun seinni hálfleik en sköpuðu sér lítið. KA skoruðu fyrsta markið 66 mínútu og það breytti leiknum alveg og sáu Þórsarar ekki til sólar, þetta var heilt yfir sannfærandi hjá KA mönnum
Bestu leikmenn
1. Adam Ægir
Adam skoraði sitt annað mark í KA treyjunni í dag. Adam átti reyndir áti að skora í upphafi leiks þegar hann átti skalla í slá af stuttu færi, en mér fannst Adam vera mjög duglegur framávið og fær þetta frá mér í dag!
2. Jakob Snær
Jakob Snær var gríðarlega góður í dag og setti fyrsta mark leiksins sem breytti leiknum. Jakob var einnig gríðarlega duglegur en hefði einnig geta sett annað í dag.
Atvikið
Nóg af atvikum en það stærsta er þegar Jeppe Pedersen átti að fá seinna gula spjaldið sitt þegar hann fer ansi hátt með löppina og sparkar í Einar Frey.
Hvað þýða úrslitin?
KA fara úr fallsæti og henda Þórsurum í fallsæti!
Vondur dagur
Erfitt að velja þetta í dag Þórsarar sköpuðu sér lítið í dag og áttu eitt skot á markið. Ég ætla gefa bæði Einari Frey sem er búinn að vera góður í sumar var ekki góður í dag. Síðan er það Ágúst Hlyns þetta sem voru ekki góðir í dag Ágúst hafði úr litlu að moða í dag
Dómarinn - 6
Gunnar Oddur var fínn í dag en átti auðvitað að sjá þegar Jeppe Pedersen átti að fá sitt seinna gula í dag




