Fotbolti.net
Helgi Inguson
Úrslit umspilsins
Laugardalsvöllur
10 gráður og logn, ekki hægt að biðja um betra haustveður
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 0
Fylkir
Fylkir
Aron Snær Ingason 78'1 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Þróttur leikur í Bestu deild karla árið 2027
Til hamingju Þróttarar. Þeir voru vel að þessu komnir og þegar litið er á leikinn í heild sinni voru þeir betra liðið.
Fylkir
90. mín
+5

Hlynur Sævar Jónsson

Ósáttur með Helga Mikael
90. mín
+3
Fyrirgjöf inn á teig Þróttar. Laddi fer úr markinu og kýlir frá, hann fer hressilega í bakið Fylkismanni í leiðinni.

Þeir vilja víti
90. mín
+2
"We are going up," syngja Köttarar. Þeir eru 90 sekúndum frá sæti í Bestu
90. mín
4191 áhorfendur á Laugardalsvelli
90. mín
Þremur mínútum bætt við
87. mín
Fylkir er ekki búið að skapa sér færi eftir að hafa lent undir. Leikurinn hefur þó farið fram á vallarhelmingi Þróttar síðan markið kom. Það verður sviðsmyndin það sem eftir lifir leiks.
85. mín
Brynjar Gautur með ágætis tilraun en Ólafur Kristófer ver örugglega.
Fylkir
82. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtNikulás Val Gunnarsson
Fylkir
81. mín
Gult spjald

Birkir Eyþórsson

Togar Brynjar Gaut niður
Þróttur R.
78. mín
ÞRÓTTUR BRÝTUR ÍSINN

Aron Snær Ingason (stoðsending: Tryggvi Snær Geirsson)

Tryggvi er kominn í frábæra stöðu í teig Fylkis eftir laglegt þríhyrningsspil.

Hann er óeigingjarn og rennir boltanum þvert fyrir markið. Þar er Aron sem kemur boltanum í netið.
Fylkir
77. mín
InnMagnús Daði Ottesen
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
Þróttur R.
77. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtNjörður Þórhallsson
Miðjumaður fyrir hafsent, Baldur fer þá niður í vörnina
74. mín
Guðmundur Tyrfings hoppar aftan á Vilhjálm Kaldal og réttilega dæmdur brotlegur. Spurning hvort Helgi Mikael hefði mátt lyfta sínu fyrsta spjaldi
67. mín
Kári Sigfússon með misheppnaða fyrirgjöf, Fylkismenn voru búnir að fjölmenna á teig Þróttar
67. mín
Íslandsmeistari á vellinum
Íslandsmeistarinn Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga sem unnu KR í dag og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn, er mættur á völlinn. Magnús Daði Ottesen, sonur Sölva, er á varamannabekk Fylkis.
Þróttur R.
64. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtÖrn Bragi Hinriksson
63. mín
Mani Austmann með lúmska tilraun. Á fast skot meðfram jörðinni á nærstöng. Laddi í markinu sér við honum

Fylkir fær horn en ekkert verður úr því
62. mín
Þróttur fær hornspyrnu eftir færið. Boltinn hrekkur til Njarðar sem skýtur yfir mark Fylkis
61. mín
Örn Bragi
Örn Bragi er kominn í hættulega stöðu í teig Árbæinga. Hann sker inn á hægri fót sinn en Ólafur Kristófer ver meistaralega frá honum. Skot Arnar var á leið í fjærhornið.
59. mín
Aron Snær er við það að sleppa í gegn en Tumi Fannar gerir afskaplega vel, stígur hann út og bælir hættunni frá.
55. mín
Þróttur fær enn eina hornspyrnuna, en það verður ekkert úr henni.
52. mín
STÖNGIN!
Sigurður vinnur boltann á eigin vallarhelmingi og finnur Aron Snæ á vinstri kantinum. Hann keyrir framhjá Guðfinni og er kominn inn í teig. Skot Arons af 5 metrum fer svo í nærstöngina.
50. mín
Þróttur fær hornspyrnu.
Fylkir
46. mín
InnTumi Fannar Gunnarsson
ÚtBjarki Steinsen Arnarsson
Fylkir
46. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Heimir gerir tvöfalda breytingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael flautar til hálfleiks. Þróttur hefur verið sterkari aðilinn í þessum fyrri hálfleik þó svo að lítið hafi verið um færi.

Tökum okkur korter.
45. mín
Víti eða ekki?
Fylkismenn vildu fá vítaspyrnu áðan. Haukur Gunnarsson náði þessum myndum af þessu stóra atviki. Dæmi hver fyrir sig.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

39. mín
Örn Bragi með fína sendingu á Kára Kristjáns en skot hans er misheppnað. Boltinn skoppaði rétt áður en hann hlóð af
36. mín
Arnór Breki með fallega sendingu inn fyrir vörn Þróttara. Guðmundur Tyrfings er kominn í fína stöðu í teig Þróttar en Baldur Hannes hrifsar af honum knöttinn.

Fylkismenn í stúkunni biðja um víti en það var lítið í þessu
33. mín
Vel mætt hjá Þrótturum
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

32. mín
Fylkir fær sína fyrstu hornspyrnu
32. mín
Ennþá markalaust
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

30. mín
Eiríkur Blöndal tekur listilega á móti boltanum og sigra Arnór Breka hægra megin í vítateig Fylkis. Honum tekst að pota boltanum í hættusvæðið en þar er enginn mættur
27. mín
Besta færi leiksins
Hornspyrnan kemur á fjærstöngina. Hlynur Þórhalls skallar boltann niður á bróður sinn en skot Njarðar fer yfir markið
26. mín
Baldur Hannes með góðan sprett upp völlinn. Hann finnur Örn Braga en skot hans fer af varnarmanni og í horn
22. mín
Haukur Gunnarsson er vopnaður myndavél í Dalnum
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

19. mín
Þróttur er með yfirhöndina.

Hafa komist í nokkrar fínar sóknir, þó svo að þeir hafi ekki skapað sér opið marktækifæri
15. mín
Of lengi að þessu
Örn Bragi kemur með hættulegan sendingu inn á teig Fylkismanna. Aron Snær er með knöttinn en er alltof lengi að athafna sig. Hann hefði þurft að skjóta á fyrsta tempói eð senda á Kára Kristjáns.

Sóknin fjarar svo út í sandinn
14. mín
Leikurinn hefur verið lokaður það sem af er. Þróttarar meira með boltann og tilfinningin er sú að það sé smá skjálfti í Árbæingum.
10. mín
Þróttur fær fyrstu hornspyrnu leiksins
Ólafur Kristófer kýlir boltann frá
7. mín
Þróttur fær aukaspyrnu í ágætis fyrirgjafarstöðu.
4. mín
Kári Kristjáns með fyrstu skottilraun leiksins. Lúmskt skot fyrir utan teig sem fer framhjá
4. mín
Svona stilla liðin sér upp
Þróttur
Laddi
Eiríkur - Hlynur - Njörður - Stefán - Sigurður Egill
Brynjar Gautur - Baldur Hannes - Kári Kri
Aron Snær - Örn Bragi

Fylkir
Ólafur Kristófer
Bjarki Steinsen - Guðfinnur Þór - Hlynur - Arnór Breki
Theodór Ingi - Birkir - Nikulás Val - Kári Sigfússson
Mani Austmann - Gummi Tyrfings
1. mín
Þetta er komið af stað
Máni Austmann sparkar okkur í gang.

Þróttarar sækja að Þróttaraheimilinu. Fylkismenn sækja að Laugardalslaug.
Fyrir leik
Sæti í deild þeirra bestu í boði
Liðin ganga inn á völl og Besta stefið ómar í græjunum, áhorfendur taka svo sannarlega við sér.

Heiðursgestir beggja liða heilsa leikmönnum áður en við hlýðum á lofsönginn.
Fyrir leik
Stuðningsmannasveitir beggja liða láta vel í sér heyra fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik


Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, gerir engar breytingar á sínu liði frá síðasta leik.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, gerir hins vegar tvær breytingar. Arnór Snær Guðbjörnsson lét reka sig af velli í síðasta leik og er því fjarri góðu gamni í dag. Þá fær Magnús Daði Ottesen sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Máni Austmann Hilmarsson og Nikulás Val Gunnarsson.

Fyrir leik
Fyrri leikir liðanna
Þróttarar hafa haft tak á Fylkismönnum í sumar. Báðir leikir liðanna enduðu með 3-1 sigri þeirra rauðu og hvítu. Þess má geta að Keflavík skellti HK 4-0 í úrslitaleik umspilsins í fyrra eftir að hafa tapað báðum deildarleikjunum gegn HK, 3-0. Úrslitin í sumar ættu því ekki að skipta neinu máli þegar flautað verður til leiks.

Sigurður Egill skoraði tvö mörk í fyrri leik liðanna. Magnús Ingi bætti svo við áður en Theodór Ingi klóraði í bakkann.



Sigurður Egill var aftur á skotskónum í seinni leiknum. Aron Snær bætti við öðru marki í fyrri hálfleik. Eyþór Wöhler minnkaði svo muninn áður en Magnús Ingi innsiglaði sigurinn í lokin.

Fyrir leik
„Mér finnst vikan hafa einkennst af yfirvegun. Það er mikið sjálfstraust í liðinu að við séum að fara að klára þetta," sagði Baldur Hannes, fyrirliði Þróttar, í samtali við Fótbolta.net á fréttamannafundinum á fimmtudaginn.

Fyrir leik
Heimir lét ekki sjá sig
Sérstakur fréttamannafundur var haldinn í höfuðstöðvum KSÍ á fimmtudaginn. Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, mætti ekki á fundinn, en það var vegna persónulegra ástæðna að sögn Arnórs Breka, varafyrirliða liðsins. Þá sló Kári Sigfússon á létta strengi og sagði Heimi vera í golfi



       

     

Fyrir leik
100 milljóna króna leikurinn
Sjónvarpsrétthafinn, Livey birti færslu á dögunum sem sagði að 100 milljóna króna leikurinn yrði spilaður á laugardag. Fótbolti.net ræddi við Birgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, um þá fjármuni sem felast í því að vinna leikinn.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Stál í stál
Eins og flestum er kunnugt var það Afturelding sem sigraði Lengjudeildina. Þróttur og Fylkir komu þar á eftir í öðru og þriðja sæti deildarinnar.

Það var því ljóst að liðin þyrftu að fara í gegnum umspilið til þess að tryggja sér þátttökurétt í Bestu deildinni næsta sumar. Leið liðanna á Laugardalsvöllinn var erfið en Þróttur hafði betur gegn Njarðvík í einvígi sínu og Fylkir sló HK út.

Búist er við hörkuleik, enda eru liðin skipuð mörgum spennandi leikmönnum sem félög úr Bestu deildinni fylgjast grannt með. Fótbolti.net bar saman liðin og dæmdi um hvort liðið væri öflugra í hverri línu.


Mynd: Livey
Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson mun dæma leikinn. Guðmundur Ingi Bjarnason og Eysteinn Hrafnkelsson eru aðstoðardómarar. Fjórði dómari er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, varaaðstoðardómari er Antoníus Bjarki Halldórsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Gunnar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Allt undir á Laugardalsvelli!
Heil og sæl öllsömul og verið þið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Laugardalsvelli. Klukkan 16:15 mun Helgi Mikael flauta til leiks Þróttar og Fylkis í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar. Sigurvegari leiksins mun leika í Bestu deildinni á næstkomandi tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.