Cleverley ráðinn til Plymouth (Staðfest)
Tom Cleverley hefur verið ráðinn þjálfari Plymouth sem leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð eftir að liðið féll úr Championship deildinni á þeirri síðustu. Hann skrifar undir þriggja ára samning.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25117 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Tom Cleverley hefur verið ráðinn þjálfari Plymouth sem leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð eftir að liðið féll úr Championship deildinni á þeirri síðustu. Hann skrifar undir þriggja ára samning.
Real Madrid hefur gengið frá kaupum á hinum 17 ára gamla Franco Mastantuono frá River Plate. Hann er yngsti leikmaðurinn til að spila keppnisleik fyrir landslið Argentínu,
Gríski sóknarmaðurinn Charalampos Kostoulas er genginn til liðs við Brighton frá Olympiakos.
Þýski vængmaðurinn Leroy Sane er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við tyrkneska félagið Galatasaray. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Tottenham Hotspur hefur staðfest ráðninguna á Thomas Frank en hann tekur við stjórastöðunni af Ange Postecoglou sem var látinn fara á dögunum.
Belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne hefur skrifað undir samning við ítölsku meistarana í Napoli. Samningurinn gildir til ársins 2027 og er möguleiki á einu ári til viðbótar. De Bruyne hefur í fjöldamörg ár verið einn besti miðjumaður Evrópu en hann hefur lengi spilað með Manchester City og unnið fjölda titla þar.
Enski landsliðsmaðurinn Trent Alexander-Arnold var í dag formlega kynntur sem leikmaður Real Madrid. Hann gekkst undir læknisskoðun í morgun og skrifaði svo undir fimm ára samning við félagið.
Haraldur Björgvin Eysteinsson er genginn til liðs við Grindavík frá Breiðabliki. Haraldur er miðvörður fæddur árið 2006 en hann hefur skrifað undir samning við Grindavík sem gildir út árið 2027.
Marseille hefur náð samkomulagi við Angel Gomes um að hann gangi til liðs við félagið á frjálsri sölu. Gomes er 24 ára gamall enskur miðjumaður en hann er uppalinn hjá Manchester United. Hann gekk til liðs við Lille árið 2020 og hann lék 134 leiki fyrir franska liðið.
Eins og Fótbolti.net greindi frá á sunnudag er Damir Muminovic búinn að skrifa undir samning við Breiðablik. Samningur hans hefur verið skráður inn á heimasíðu KSÍ og þar segir að samningurinn taki gildi 1. júlí og gildi út árið. Breiðablik hefur ekki enn greint frá endurkomu Damirs í Kópavoginn. <b>Uppfært 15:52:</b> Breiðablik hefur staðfest tíðindin eins og sjá má hér neðst.
Bandaríski framherjinn Kayla Rollins hefur gengið til liðs við Þrótt og mun leika með kvennaliði félagsins frá og með 15. júlí, þegar félagaskiptaglugginn opnar á ný. Þetta kemur fram í tilkynningu úr Laugardalnum á þessum ágæta miðvikudegi.
Manchester City hefur gengið fá kaupum á hollenska miðjumanninum Tijjani Reijnders frá AC Milan. Kaupin voru kláruð í tæka tíð fyrir HM félagsliða, Reijnders má spila með City á mótinu. City greiðir 46,3 milljónir punda fyrir leikmanninn sem skrifar undir fimm ára samning við félagið. Hann er sá miðjumaður sem kom að flestum mörkum í ítölsku deildinni á liðnu tímabili.
Rayan Cherki er genginn til liðs við Manchester City og skrifar undir fimm ára samning. City borgar 34 milljónir punda fyrir hann. Cherki er 21 árs gamall franskur sóknarmaður og kemur frá Lyon. Hann átti frábært tímabil með franska liðinu þar sem hann skoraði 12 mörk og lagði upp 20. Alls lék hann 185 leiki fyrir Lyon og skoraði 29 mörk
Tveir fyrrum þjálfarar Liverpool hafa verið ráðnir í þjálfarateymi Pep Guardiola hjá Manchester City. Pep Lijnders sem aðstoðarþjálfari og James French sem sérfræðingur í föstum leikatriðum. Pep Lijnders var í þjálfarateymi Liverpool hjá Brendan Rodgers árið 2014. Hann tók við sem þjálfari NEC Nijmegen árið 2018 en snéri aftur til Liverpool og var m.a. aðstoðarþjálfari Jurgen Klopp en hætti eftir að Klopp lét af störfum í fyrra.
Atletico Madrid, sem er eitt af 32 liðum sem taka þátt í HM félagsliða, hefur krækt í nýjan markmann. Juan Musso er kominn til spænsku höfuðborgarinnar og skrifar undir þriggja ára samning. Kaupverðið er talið vera um þrjár milljónir evra. Hann kemur frá Atalanta en var á láni hjá Atletico á liðinni leiktíð. Hann hefur verið staðfestur í 30 manna hóp liðsins fyrir HM.
Celtic kynnti í dag Kieran Tierney formlega sem nýjan leikmann félagsins. Búið var að segja frá skiptunum fyrr í vetur. Hann kemur til Celtic frá Arsenal en hann var fenginn til Arsenal frá Celtic fyrir sex árum síðan. Tierney er 28 ára gamall vinstri bakvörður sem skrifar undir fimm ára samning við Celtic. Hann kemur á frjálsri sölu frá Arsenal.
Manchester City hefur tilkynnt um önnur kaup sín í glugganum en félagið hefur keypt Marcus Bettinelli frá Chelea. Bettinelli er 33 ára markmaður sem semur til eins árs. Hann kemur líklega inn sem þriðji markmaður eftir að Scott Carson yfirgaf City á dögunum. Kaupverðið er óuppgefið en það er ekki hátt.
Enski miðjumaðurinn Jobe Bellingham, hefur fylgt í fótspor eldri bróður síns, Jude, með því að ganga í raðir Borussia Dortmund. Dortmund kaupir Jobe frá Sunderland en einungis nokkur ár eru frá því að Dortmund keypti Jude frá Birmingham og varð hann að stórstjörnu hjá þýska félaginu. Dortmund greiðir 27,8 milljónir punda fyrir Jobe og getur sú upphæð hækkað upp í 32 milljónir punda sem gerir hann að metsölu fyrir Sunderland.
West Ham United er búið að tilkynna að fimm leikmenn muni yfirgefa félagið á frjálsri sölu í sumar.
Ítalska fótboltafélagið Como ætlar sér stóra hluti á næstu árum og er þegar byrjað að styrkja leikmannahópinn fyrir næstu leiktíð.