West Ham United er búið að tilkynna að fimm leikmenn muni yfirgefa félagið á frjálsri sölu í sumar.
Kurt Zouma, fyrrum varafyrirliði félagsins, er einn þeirra en hann er 30 ára gamall og var mikilvægur hlekkur í liði West Ham þar til fyrir ári síðan. Á nýliðnu tímabili fór Zouma til Al-Orobah í Sádi-Arabíu á lánssamningi. Þar var hann liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar og féllu þeir niður um deild saman. Zouma lék 103 leiki á þremur árum hjá West Ham.
Pólski markvörðurinn Lukasz Fabianski yfirgefur einnig félagið en hann er orðinn 40 ára gamall og spilaði 17 leiki á nýliðnu tímabili. Hann spilaði 216 leiki á sjö ára dvöl hjá West Ham.
Tékkneski bakvörðurinn Vladimir Coufal hefur einnig yfirgefið félagið ásamt framherjanum Danny Ings og varnarmanninum Aaron Cresswell.
Coufal, sem verður 33 ára í ágúst, lék 25 leiki fyrir Hamrana á nýliðnu tímabili og á í heildina 180 leiki að baki á fimm árum, án þess að hafa nokkurn tímann skorað mark fyrir félagið.
Ings er jafnaldri Coufal og heldur á ný mið eftir þrjú ár með Hömrunum. Þessi framherji skoraði þó aðeins 5 mörk í 69 leikjum fyrir félagið.
Að lokum er það Aaron Cresswell sem hefur verið hjá West Ham síðustu ellefu ár og spilað 369 leiki fyrir félagið. Hann er 35 ára gamall.
Framtíð Michail Antonio er óljós en hann er enn að jafna sig eftir að hafa lent í slæmu bílslysi í desember. Hann rennur út á samningi í sumar en gæti gert skammtímasamning við félagið. Antonio er 35 ára gamall en hefur lengi verið lykilmaður og leiðtogi í liði West Ham.
Hann hefur skorað 83 mörk í 323 leikjum fyrir félagið.
Thank you, Kurt Zouma ? pic.twitter.com/ZelZcei3iv
— West Ham United (@WestHam) June 9, 2025
Athugasemdir